Fréttablaðið - 04.12.2019, Síða 23
Við erum í topp
fimm prósent hvað
varðar gæði í skjólfatnaði á
heimsvísu.
fyrra þegar Mous se Partners gekk
í hluthafahópinn. Allan þann tíma
var engu að síður ljóst að við mynd-
um þurfa að fá aðra hluthafa til liðs
við okkur.“
Sóttust eftir erlendum fjárfesti
Það er áhugavert að þið fenguð til
liðs við ykkur fjárfesti sem var ann-
ars vegar erlendur og hins vegar með
þekkingu á rekstri fatafyrirtækja.
Hvernig kom það til?
„Það kom aldrei annað til greina
en að leita til fjárfesta sem höfðu
byggt upp alþjóðlegt vörumerki.
Við vorum að leita að samstarfsað-
ila sem gat sýnt þolinmæði og byggi
yfir þessari reynslu.
Við vorum afar heppin því Lárus
Welding er með tengsl í London.
Hann tengdi okkur við fjárfestingar-
bankann Rothschild sem stofnaður
var á 18. öld og samþykkti að taka
að sér verkefnið. Bankinn tekur
yfirleitt ekki að sér fjármögnunar-
verkefni undir 100 milljónum evra
en samband Lárusar við yfirmenn
bankans réði úrslitum um að við
náðum fundi og gátum kynnt verk-
efnið og framtíðaráætlanir okkar.
Þeir heilluðust af merkinu og trúðu á
framtíðarsýnina. Við vorum örugg-
lega eitt minnsta verkefnið sem þeir
voru að sinna.
Við fengum lista yfir fjárfesta sem
þeir töldu vera áhugaverða sam-
starfsaðila. Mous se Partners voru
efstir á blaði í okkar huga.
Það bárust nokkur tilboð, þar á
meðal frá Mous se Partners og við
ákváðum að taka því.“
Já, voru fleiri reiðubúnir að fjár-
festa í 66°Norður?
„Já. Samningsstaða okkar batnaði
líka við það að fá fleiri tilboð.“
Hvað tók þetta ferðalag langan
tíma?
„Söluferlið erlendis hófst í sept-
ember 2017 og lauk í júní 2018.
Það er mikilvægt að söluferlið taki
skamman tíma til að það taki ekki
of mikinn tíma frá stjórnendum sem
þurfa að sinna daglegum rekstri og
vinna að uppbyggingu félagsins.“
Hvaða virði hefur Mouse Partners
fært ykkur?
„Samstarfsfólk, tengsl og trúverð-
ugleika. Það vilja margir erlendir
aðilar vinna fyrir okkur núna sem
er ekki víst að hefði verið raunin ef
þeirra nyti ekki við.“
Frá Net-a-Porter til 66°Norður
Bandaríkjamaðurinn Matthew
Woolsey tók til að mynda við nýrri
stöðu í sumar hjá 66°Norður sem
framkvæmdastjóri alþjóðlegrar
starfsemi með aðsetur í London
ásamt þremur öðrum starfsmönn-
um. Hann var áður framkvæmda-
stjóri vefverslunarinnar Net-a-
Porter sem er ein sú þekktasta
þegar kemur að gæðavörumerkjum
í fatnaði.
„Þegar öllu er á botninn hvolft
snýst þetta engu að síður allt um
framleiðsluna og gæði f líkanna.
Þegar lagt var upp með að hanna og
framleiða skjólfatnað á íslenska sjó-
menn á þriðja áratug síðustu aldar
þá urðu gæði hluti af DNA fyrir-
tækisins. Út frá því þori ég að full-
yrða að við erum í topp fimm pró-
sent hvað varðar gæði í skjólfatnaði
á heimsvísu.“
Hvað tekur langan tíma að hanna
flík?
„Það tekur allt að tvö ár. Það þarf
að hanna flíkina, framleiða prufur,
prófa vöruna í vissum aðstæðum
oft í samstarfi við íþróttamenn.
Enn fremur skoðum við allt ferlið
með tilliti til umhverfisáhrifa þar
sem við viljum framleiða vöru sem
endist og reynum að nýta hráefnið
til fulls. Það getur reynst dýrt að
gera mistök.“
Það eru því miklir fjármunir
bundnir í f líkunum áður en þær
ratar í verslanir?
„Já, það eru miklir fjármunir
bundnir í birgðum í svona rekstri.
Við erum með nokkur þúsund
vörunúmer ef talið er niður á liti og
stærðir.“
Afkoman hefur ekki verið mikil á
undanförnum árum.
„Já, vegna mikilla fjárfestinga
í innviðum hefur hagnaður fyrir
fjármagnsliði, skatta og afskriftir
(EBITDA) ekki verið mikill hjá
okkur. EBITDA-hlutfallið hefur
verið frá 6-12 prósent síðustu ár. Þau
félög sem við berum okkur saman
við erlendis eru með 20-30 prósent
hlutfall. Þær fjárfestingar sem við
höfum lagt út í eru til þess gerðar að
félagið geti byggt á sjálfbærum innri
vexti til lengri tíma. Þegar búið er að
leggja grunninn mun félagið geta
skilað betri afkomu.
Fyrirtækið hefur auk þess verið
skuldsett en með tilkomu nýrra
hluthafa höfum við greitt skuldir
niður og erum í dag einungis með
birgðafjármögnun. Við innkomu
Mousse var hlutféð í Sjóklæðagerð-
inni aukið um 3,2 milljarða króna
og var eiginfjárstaða félagsins um
síðustu áramót 73 prósent. Fyrir-
tæki eins og okkar getur ekki verið
mikið skuldsett. Það er svo kostn-
aðarsamt.“
Sérstaklega á Íslandi?
„Það er alveg rétt. Því til viðbótar
byggir starfsemi fyrirtækisins á
starfsfólki. Launakostnaður er hár
hjá okkur. Hann verður æ stærri
hluti af kökunni samhliða launa-
hækkunum. Það er erfitt viður-
eignar. Starfsmenn eru um 450, þar
af eru um 200 hér á landi.“
Breytt vinnustaðamenning
Bjarney bendir á að fyrirtækið
byggi á gömlum grunni, því hafi
sumir unnið hjá fyrirtækinu í 30-40
ár á meðan aðrir eru nýir á vinnu-
markaði. „Það er góður andi innan
fyrirtækisins, við gerum reglulega
starfsmannakannanir og þær hafa
komið mjög vel út. Það er mikilvægt
að það sé gaman í vinnunni og hér er
jákvæð orka. Það hefur tekið nokk-
urn tíma að skapa þá vinnustaða-
menningu.“
Hvernig tókst ykkur að breyta
vinnustaðamenningunni?
„Allir starfsmenn skapa menn-
inguna en við höfum lagt áherslu
á að ráða kraftmikið og jákvætt
fólk. Við erum með skýra sýn og
stefnu, rekum 66 skólann innan-
húss, þar sem við þjálfum starfsfólk
í þjónustu og fræðum það um sögu
félagsins, vörur okkar, sem eru oft
mjög tæknilegar og til notkunar í
útivist og að takast á við náttúru-
öflin. Starfsfólkið þarf að þekkja vel
hvað við stöndum fyrir og eiginleika
varanna.
Verslunarrekstur er einn af horn-
steinum félagsins og höfum við gefið
ungu fólki sem hefur starfað í versl-
unum okkar tækifæri til að þróast
áfram í starfi og í dag eru nokkrir af
stjórnendum félagsins starfsmenn
sem byrjuðu á gólfinu.“
Kaupi færri og betri flíkur
Hvaða hlutverk leikur sjálf bærni í
rekstri félagsins?
„Sjálf bærni hefur allar götur frá
stofnun verið lykilstef hjá fyrirtæk-
inu. Við erum mjög heppin að vera
með fyrirtæki í höndunum sem var
stofnað til búa til skjólfatnað, gerð-
an til að mæta ströngustu kröfum
og til að endast. Okkar markmið er
að hanna gæðaflíkur sem endast í
mörg ár.
Við vinnum markvisst að því
að framleiðslan sé umhverfisvæn
og við viljum að hún sé gagnsærri,
helst að hægt sé að fylgjast með í
rauntíma. Við hugum líka að mót-
vægisaðgerðum til að draga úr losun
frá starfseminni. Til að tryggja sjálf-
bærni flíkanna þarf að huga að því
að hönnunin sé klassísk og standist
tímans tönn og að efnin í vörunni
séu sterk og endingargóð. Við viljum
í raun hvetja fólk til að kaupa færri
en betri flíkur sem endast.
Við höfum ávallt rekið viðgerðar-
stofu og hvetjum viðskiptavini til að
nýta sér hana í stað þess að kaupa
nýtt þegar gamla f líkin rifnar eða
verður fyrir skaða. Saumastofan
okkar í Garðabæ gerir við um fjögur
þúsund flíkur á ári. Þar geymum við
íhluti eins og tvinna og efnisbúta til
að gera við f líkur sem voru fram-
leiddar á áttunda áratugnum.
Undanfarin ár höfum við bætt
umhverfisvænum efnum inn í
vörulínuna okkar en um er að ræða
efni sem eru unnin úr endurunnum
efnum og einnig efni sem brotna
auðveldlega niður í jarðvegi þegar
líftíminn er á enda.
Þegar unnið er að hönnun á nýrri
f lík er mikilvægt að hugsa líftíma
vörunnar frá upphafi til enda.
Þetta er í raun hringrás sem hefst á
hönnun og hvað gerist þegar varan
kemst á endaskeið, verður hún nýtt
í annað eða verður gert við hana og
hún notuð aftur. Við hugum líka að
nýtingu efna og notum afgangsefni
í aukahluti eins og hanska og töskur.
Hluti af þessari hringrás er að
mæla kolefnisfótspor fyrirtækisins,
við byrjuðum að vinna með Klöpp-
um nú í haust við að greina okkar
kolefnisspor og okkar mótvægisað-
gerðir verða í endurheimt votlendis
og gróðursetningu á trjám á Íslandi.“
Þrjár verslanir í Danmörku
Hvernær opnaði 66°Norður versl-
anir í Danmörku?
„Fyrsta verslunin var opnuð árið
2014. Við rekum tvær verslanir í
Kaupmannahöfn, þær eru við Øster-
gade og Sværtegade, auk verslunar-
innar í Illum.
Hugmyndin að baki því að opna
verslanir í Kaupmannahöfn var að
koma vörumerkinu betur á fram-
færi í Danmörku. Yfirleitt eru vörur
seldar fyrst í gegnum endursöluaðila
þegar ný vörumerki eru að þreifa
fyrir sér á erlendum mörkuðum.
Þá er fjárfest í markaðsmálum og
vitund fólks eykst gagnvart vöru-
merkinu. Við töldum hins vegar
betra að viðskiptavinir myndu fá
tækifæri til að kynnast starfsfólkinu
okkar og sjá að okkur væri alvara.
Danmörk varð fyrir valinu því við
litum á það sem eins konar heima-
markað enda laut Ísland stjórn
Dana í 500 ár. Auk þess bjó Helgi
Rúnar í fimm ár í Kaupmannahöfn
og þekkti því vel til en hann stofnaði
og rak Subway þar.
Það var góð ákvörðun að opna í
Danmörku og ákveðinn prófsteinn
á vörumerkið.“
Hvernig hefur reksturinn í Dan-
mörku gengið?
„Danir hafa tekið okkur afar vel.
Það tekur tíma að byggja upp vöru-
merki. Við reiknuðum með að það
myndi taka þrjú til fjögur ár að ná
að koma rekstrinum réttum megin
við núllið og það hefur gengið eftir.
Danir eru líka nokkuð fastheldnir
á vörumerki en verða tryggir við-
skiptavinir þegar þeir komast á
bragðið.“
Endurhugsuðu erlenda sölu
Hvað kemur stór hlut i tekna
66°Norður að utan?
„Þegar við tókum við fyrirtækinu
voru um 20 prósent teknanna að
koma frá erlendum mörkuðum og
vörur félagsins voru seldar í versl-
unum sem við töldum ekki styðja
við vörumerkið. Við höfum mark-
visst dregið okkur út úr slíkum
verslunum og einnig slitið samstarfi
við erlenda heildsala og dreifingar-
aðila.“
Af hverju vilduð þið ekki leyfa
þeim að selja ykkar vörur?
,,Þegar unnið er að uppbyggingu
vörumerkis á nýjum mörkuðum
er mikilvægt að merkið sé kynnt í
gegnum viðeigandi dreifileiðir og
með þeim hætti að það auki hróður
merkisins á þeim markaði. Við vilj-
um velja vel þá sem selja vörurnar
okkar og vera í beinu sambandi í
stað þess að nota milliliði.“
Þið hafið væntanlega misst tekjur
fyrir vikið?
„Já, það kostaði okkur umtalsvert
að stíga þetta skref. En þetta var rétt
og þarft skref engu að síður.“
Hver er framtíðarsýn ykkar á
erlendum markaði? Væntanlega
sættir nýi hluthafinn sig ekki við að
selja að mestu á Íslandi?
„Ísland er afar mikilvægt fyrir
okkur og við vonum að Íslendingar
verði alltaf kjarninn í sölunni. Nýi
hluthafinn sér það sömu augum og
við. Auðvitað erum við með skýra
sýn um hvernig við sjáum fyrir
okkur sölu á erlendum mörkuðum í
framtíðinni en ég vil láta verkin tala
hvað það varðar.“
Engin töfraformúla
Hvernig tókst ykkur að komast á
þann stað, að mikið af ungu fólki,
sem er með á nótunum í tísku, gengur
í fatnaði frá 66°Norður?
„Það er engin töfraformúla. Vöru-
merkið þarf ávallt að þróast með tíð-
arandanum og má ekki staðna. Það
má aldrei hugsa að það sem skilaði
góðum árangri í fyrra muni virka
aftur í ár. Þess vegna þarf að vera í
góðum tengslum við markhópana
og hafa framúrskarandi fatnað og
starfsfólk sem er alltaf á tánum.“
Hvar eru flíkurnar framleiddar?
„66°Norður er með þá sérstöðu,
líka úti í hinum stóra heimi, að
framleiða um 60 prósent af vöru-
línunni í eigin verksmiðjum í Lett-
landi og á Íslandi. Við notum líka
verktaka í Kína og Portúgal.
Margar af þeim flíkum sem við
framleiðum eru mjög flóknar í fram-
leiðslu og getur tekið allt að tvo daga
að framleiða dúnúlpu eins og Tind.“
Nafnið 66°Norður
vísar til upprunans
Vörumerkið 66°Norður má rekja
til þess að fyrirtækið var stofn-
að á 66. breiddargráðu norður.
Fyrirtækið, sem þá hét Sjó-
klæðagerð Íslands, var stofnað
á Suðureyri við Súgandafjörð,
að sögn Bjarneyjar. „Þetta var
um 350 manna samfélag árið
1926 og byggði á sjósókn. Hans
Kristjánsson var kostaður af
útgerðarmönnum til að fara í
nám til Noregs í sjóklæðagerð.
Skömmu síðar flutti hann starf-
semina til Reykjavíkur. Í upphafi
var um að ræða vaxborin skinn.
50 árum eftir stofnun fyrirtæk-
isins eða á áttunda áratugnum
var farið að nota vörumerkið
66°Norður sem vísar til upp-
runans,“ segir hún.
Austurstræti 18
Skólavörðustíg 11
Laugavegi 77
Hallarmúla 4
Álfabakka 16, Mjódd
Kringlunni norður
Kringlunni suður
Smáralind
Hafnarfirði - Strandgötu 31
Keflavík - Krossmóa 4
Akureyri - Hafnarstræti 91-93
Akranesi - Dalbraut 1
Ísafirði - Hafnarstræti 2
Vestmannaeyjum - Bárustíg 2
Húsavík - Garðarsbraut 9 540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is
Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG
LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Austurstræti 18
Skólavörðustíg 11
Laugavegi 77
Hallarmúla 4
Álfabakka 16, Mjódd
Kringlunni norður
Kringlunni suður
Smáralind
Hafnarfirði - Strandgötu 31
Keflavík - Krossmóa 4
Akureyri - Hafnarstræti 91-93
Akranesi - Dalbraut 1
Ísafirði - Hafnarstræti 2
Vestmannaeyjum - Bárustíg 2
Húsavík - Garðarsbraut 9 540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is
fé
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG
LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Kúlupenni Gear
Metal króm
Verð: 9.100.-
Dagbók A5
Storyline svört
Verð: 4.600.-
Kúlupenni
Storyline svartur
Verð: 10.100.-
VERTU EINS OG BOSS!
FÁST Í VERSLUN OKKAR Í SMÁRALIND
NÝJAR VÖRUR FRÁ
MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9