Fréttablaðið - 04.12.2019, Síða 24

Fréttablaðið - 04.12.2019, Síða 24
Guðmundur Hafsteinsson, f y r r ver a nd i y f i r maðu r vöruþróunar Google Assist­ ant, segist fagna fyrstu aðgerðum nýsköpunarráðherra í þágu nýsköp­ unar. Nálgunin byggi á að ríkið styðji við frumkvöðla en það sé ekki þátttakandi í frumkvöðlastarfi. „Það er verið að tryggja að fólk með góðar hugmyndir geti komið þeim til framkvæmda. Góðar hug­ myndir í dag eru hagvöxtur morg­ undagsins. Ef góðar hugmyndar eru drepnar í dag er verið að fórna tæki­ færum morgundagsins,“ segir hann í samtali við Markaðinn. Guðmundur, sem fór fyrir hópi um mótun nýsköpunarstefnu fyrir Ísland, gleðst yfir því að Þórdís Kol­ brún R. Gylfadóttir nýsköpunarráð­ herra fylgi eftir stefnunni sem kynnt var í október með aðgerðum. Þórdís Kolbrún kynnti á dögunum aðgerðir í sex liðum í þágu nýsköpunar. Á meðal aðgerða er að koma á fót 2,5 milljarða króna fjárfestingasjóði sem bera mun nafnið Kría. Hann á að fjárfesta í öðrum sjóðum sem fjárfesta í frumkvöðlafyrirtækjum. Guðmundur segir að með þessu fyrirkomulagi sé hið opinbera að stoppa í gat á markaðnum og hvetja aðra til að fjárfesta í frumkvöðla­ starfi. „Það mun í framtíðinni skila meiri hagvexti til hagsbóta fyrir þjóðina,“ segir hann. Aðspurður hvort það skjóti ekki skökku við að ríkið fjárfesti í nýsköpun bendir Guðmundur á að í Bandaríkjunum, sem sé þroskað á sviði nýsköpunar, haf i ríkið tekið virkan þátt meðal annars í gegnum sjóði. „Ísrael er annað gott dæmi,“ segir hann. Þar í landi hafi verið ráðist í aðgerðir til að þroska umhverfið fyrir nýsköpun og Ísrael sé fyrir vikið á meðal fremstu ríkja í nýsköpun. Aukinheldur er lagt til að líf­ eyrissjóður megi eiga 35 prósent í fjárfestingasjóði sérhæfðum í frum­ kvöðlafyrirtækjum í stað 20 pró­ senta eins nú er. Það þurfi því færri lífeyrissjóðir að koma að málum. Guðmundur segir að lagabreytingin muni auðvelda stofnun slíkra sjóða og leiða til þess að hægt verði að fjárfesta meira í nýsköpun. Aðspurður hvort það sé áhættu­ samt fyrir lífeyrissjóði að leggja aukið fé í slíkar fjárfestingar segir hann að hlutfallslega lítið sé fjárfest í nýsköpun. „Ég hef frekar áhyggjur af því að það sé of lítið,“ segir Guð­ mundur. Jafnframt verður komið á fót hugveitu þar sem tíu frumkvöðlar og fjárfestar sitja með nýsköpunar­ ráðherra og fjármálaráðherra. Guð­ mundur, sem er á meðal þeirra sem sitja í hugveitunni, segir að það hafi skort samtal á milli þeirra sem séu í frumkvöðlastarfsemi og hins opinbera. Nú verði hægt að vekja athygli á reglugerðum sem geri sprotafyrirtækjum lífið leitt. Ef til vill hafði enginn hjá hinu opinbera heyrt af því að tiltekin reglugerð væri frumkvöðlum fjötur um fót og engin mótstaða sé fyrir hendi fyrir því að gera breytingar á henni. „Ég er spenntur fyrir þessu. Þetta mun vonandi verða til góðs,“ segir hann. helgivifill@frettabladid.is Góðar hugmyndir í dag eru hagvöxtur morgundagsins. Guðmundur Hafsteinsson Ef hægt væri að mæla meðv irk ni my ndum við fara yfir mælinguna með stjórnendum einu sinni í mánuði. Með­virkni er ein stærsta hindrunin í því að fyrirtæki nái árangri. Hún ristir djúpt í fyrir­ tækjamenninguna og hefur veru­ lega neikvæð áhrif á reksturinn og líðan starfsfólks,“ segir Sigríður Indriðadóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Íslandspósti. Sigríður segist hafa velt með­ virkni á vinnustöðum fyrir sér frá því að hún fór fyrst út á vinnu­ markaðinn. Þá tók hún eftir því hvernig meðvirkni hefur neikvæð áhrif á líðan starfsfólks og við störf sín sem mannauðsstjóri hefur hún undanfarin ár unnið markvisst að því að uppræta rótgróna meðvirkni á vinnustöðum. Hún hefur lagt sér­ staka áherslu á þessi mál eftir að hafa hafið störf hjá Íslandspósti í byrjun árs 2018. „Þegar stjórnendur eru meðvirkir taka þeir ekki ábyrgð á starfsskyld­ um sínum. Þeir halda ekki starfs­ fólki sínu ábyrgu fyrir verkefnum og leyfa því að komast upp með ýmislegt. Þeir samþykkja eitthvað sem allir sjá að er ekki í lagi. Með því að taka ekki á hegðunarvanda eða slæmri frammistöðu neita stjórn­ endur þannig að horfast í augu við raunveruleikann,“ segir Sigríður. Áhrifin geta verið vonleysi og van­ líðan, bæði meðal stjórnenda og starfsfólks. Afköstin minnka, sam­ skiptin versna og veikindadögum fjölgar. „Hver kannast ekki við frasann: „Æ, hann er bara svona, við getum ekkert gert í því.“? Bara þetta eitt og sér getur haft neikvæð áhrif. Það grefur undan trausti og virðingu gagnvart stjórnanda á vinnustað þegar fólk sér að hann tekur ekki á vandamálum sem upp koma. Starfsmenn túlka það sem agaleysi og kunna að firra sig ábyrgð á því að sinna skyldum sínum í kjölfarið. Hugsa bara: „Fyrst hann kemst upp með það hlýt ég að geta það líka,“ og láta bara slag standa með það.“ Sigríður segir að meðvirkni grass eri víða og fæstir stjórnendur geri sér grein fyrir því að þeir séu meðvirkir. Slíkt ástand geti leitt til þess að fyrirtæki eigi erfitt með að bregðast skjótt við breytingum í rekstrarumhverfinu og eigi á hættu að verða undir í samkeppni. Í stórum fyrirtækjum með ólíkar deildir og marga stjórnendur sé því mikilvægt að vinna markvisst að því að uppræta meðvirknina. „Ég vinn þannig að ég vísa ábyrgðinni þangað sem hún á heima. Við sem stjórnendur verðum að axla þá ábyrgð sem fylgir starf­ Meðvirkni grasserar á vinnustöðum Framkvæmdastjóri mannauðs hjá Íslandspósti segir meðvirkni grassera á mörgum vinnustöðum. Hefur verulega neikvæð áhrif á rekstur og líðan starfsfólks. Fæstir gera sér grein fyrir meðvirkni. Sérstök áhersla er lögð á að uppræta meðvirkni hjá Íslandspósti. Fékk byr undir báða vængi eftir forstjóraskiptin Töluverðar breytingar hafa orð- ið á rekstri Íslandspósts frá því að Birgir Jónsson tók við sem forstjóri í byrjun síðasta sumars. Fyrirtækið hefur ráðist í stór- felldar hagræðingaraðgerðir til að komast á réttan kjöl. Var sérstaklega mikil þörf á því að taka á þessum málum hjá Íslandspósti? „Ég tók til starfa í byrjun árs 2018 og sá þá fullt af tækifærum til að hjálpa fólki að vaxa í starfi. Við í mannauðsteyminu lögðum línurnar að þessu verkefni og það fékk síðan byr undir báða vængi eftir forstjóraskiptin í sumar. Íslandspóstur er rótgróið fyrirtæki sem byggist á sterkum hefðum. Hlutirnir höfðu alltaf verðir gerðir með ákveðnum hætti og það gekk ágætlega. Svo stóðum við frammi fyrir örum breytingum á póstþjónustu- markaðnum en hefðirnar og menningin komu oft á tíðum í veg fyrir að við gætum hreyft okkur nægilega hratt til þess að bregðast við þeim kröfum sem viðskiptavinir gera til okkar,“ segir Sigríður. „Hér hefur verið meðvirkni, rétt eins og á mörgum öðrum vinnustöðum og það var mikil- vægt að taka á ýmsum málum sem hafa kannski fengið að liggja óáreitt um margra ára skeið. Nú höfum við hins vegar tekið þá afstöðu að við ætlum ekki að vera meðvirk og erum mjög skýr í þeirri afstöðu okkar.“ inu okkar og þess vegna er það í okkar verkahring að brjóta upp meðvirkimynstrin á vinnustaðnum með handafli. Þar spilar uppbyggi­ leg endurgjöf einnig lykilhlutverk,“ segir Sigríður. Mannauðsteymi Íslandspósts hefur komið á fót sérstakri þjálfun fyrir stjórnendur fyrirtækisins sem gengur að miklu leyti út á sjálfskoð­ un, þróun og árangur. Stjórnendur vinna í því að skilgreina styrkleika sína, hvaða árangri þeir vilja ná í starfi og hvers konar áhrif þeir vilja hafa á samstarfsfólk sitt. Það er síðan sett í samhengi við fram­ tíðarsýn Íslandspósts. „Þegar við höfum skilgreint hvers konar frammistaða er æskileg til að ná markmiðum stjórnenda og Íslandspósts þá getum við skilgreint það sem við köllum topphegðun, en þegar við ástundum topphegðun er margfalt líklegra að við náum settu marki. Og út frá þessari topp­ hegðun getum við síðan skilgreint botnhegðun, það er að segja, þá hegðun sem hindrar okkur í að ná markmiðum okkar,“ segir Sig­ ríður. Hún tekur dæmi um að topp­ hegðun sé að nálgast verkefni með jákvæðu hugarfari, mæta brosandi í vinnuna, og bjóða góðan daginn. Botnhegðun sé hins vegar að vera neikvæður, mæta fýldur til vinnu og heilsa engum. Allir starfsmenn fyrirtækisins fá tækifæri til að koma að því að skilgreina lista yfir topp­ hegðun á sínum vinnustað og síðan er gerður sáttmáli um að sýna af sér slíka hegðun. „Þegar við erum búin að setja Sigríður hefur lagt sérstaka áherslu á meðvirkni eftir að hún hóf störf hjá Íslandspósti. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Tryggja að góðar hugmyndir komist til framkvæmda þessa hegðun í orð þá eru stjórn­ endur komnir með verkfæri í hend­ urnar. Segjum sem svo að einhver starfsmaður sýni af sér botnhegðun sem allir hafa komið sér saman um að sé ekki í lagi að samþykkja á vinnustaðnum. Þá er auðvelt fyrir stjórnandann að vísa ábyrgðinni til föðurhúsanna og spyrja: „Heyrðu, nú er botnhegðunin farin að taka svolítið yfir hjá þér og við getum ekki samþykkt það á þessum vinnu­ stað. Hvað ætlarðu að gera til að bæta úr því?“ Flestir taka því vel og bæta sig, en stundum er svarið það að viðkomandi hafi engan áhuga á að vinna á þessum vinnustað og þá verður bara að hafa það. Ef þú ert ekki tilbúinn til að ástunda topp­ hegðun í starfi til að við getum náð árangri, þá einfaldlega þarftu að velja þér annað starf,“ segir Sigríður. thorsteinn@frettabladid.is Þegar stjórnendur eru meðvirkir taka þeir ekki ábyrgð á starfs- skyldum sínum. 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.