Fréttablaðið - 04.12.2019, Side 25

Fréttablaðið - 04.12.2019, Side 25
Guðrún Eva Gunnars-dóttir tók við sem framkvæmdastjóri rekstrar og sam-stæðu Haga í kjölfar skipulagsbreytinga í ágúst en hún var áður fjármálastjóri smásölurisans. Hún segir fjölda- mörg verkefni í gangi sem tengjast mikið til samruna Haga og Olís og nú nýverið kaupum Haga á Reykja- víkur Apóteki. Hver eru þín helstu áhugamál? Mér finnst fátt skemmtilegra en ferðalög og gæðastundir með fjöl- skyldunni. Ég stefni þó á langan lista af áhugamálum í framtíðinni þegar strákarnir mínir stækka. Hvernig er morgunrútínan þín? Morgunrútínan er einföld. Ég hendi mér í sturtu og reyni svo að ná smá gæðastund með strákunum mínum áður en ég fer til vinnu. Hafragrautur er órjúfanlegur hluti af rútínunni og er minn „kaffi- bolli“ í morgunsárið. Ég gef mér þó aldrei tíma til að borða áður en ég legg af stað út í daginn heldur japla á grautnum fyrir framan tölvuna þegar ég mæti til vinnu. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Sú bók sem er hvað eftirminni- legust er án efa Dýragarðsbörnin. Ég las hana fyrir fjöldamörgum árum og hún situr sem fastast í kollinum á mér. Annars les ég mest barnabækur þessa dagana og kemur Buna bruna- bíll þar sterklega til greina sem sú áhrifamesta. Hver hafa verið mest krefjandi verkefnin undanfarin misseri og hver eru helstu verkefnin fram undan? Aðdragandinn að samruna Haga og Olís var langur og strangur. Sam- runaferlinu fylgdu mörg krefjandi en skemmtileg verkefni og var gífur- legt lærdómsferli. Það eru spenn- andi tímar fram undan hjá Högum og fjöldamörg verkefni í gangi sem tengjast mikið til samrunanum og nú nýverið kaupum Haga á Reykjavíkur Apóteki. Verkefnin snúa meðal annars að fasteigna- og þróunarmálum en einnig að því að styrkja innviði félagsins og að ná fram þeirri samlegð sem kynnt hefur verið. Hvernig er rekstrarumhverfi í smásölu að breytast og hvaða tæki- færi felast í breytingunum? Umhverfi smásölu er að taka miklum breytingum þessa dagana, þar sem meðal annars stafrænar lausnir eru að ryðja sér til rúms, eins og flestir vita. Þó stærsti hluti smá- söluverslunar fari enn fram í hefð- bundnum verslunum þá er hlutur netverslunar óðum að aukast. Neyt- endur vilja meiri sjálfvirkni og ein- faldari lausnir og vilja geta verslað á sem stystum tíma. Staðreyndin er hins vegar sú að rekstur netversl- ana er oft á tíðum erfiður og sárafá fyrirtæki sem sjá jákvæða afkomu af slíkum rekstri í dag. Við vitum þó að þetta er fram- tíðin og því fylgjumst við vel með þróuninni. Þá er mikilvægt að átta sig á að mikill munur er á rekstri netverslunar með matvöru og sér- vöru en hlutur sérvöru hefur farið minnkandi hjá Högum undanfarin ár, með lokun fataverslana. Það er því nauðsynlegt að fylgjast vel með þessum breytingum og finna leiðir í stafrænum rekstri sem koma bæði neytendum og fyrirtækjum til góða. Hvers hlakkarðu mest til þessa dagana? Ég hlakka mest til jólanna, það er engin spurning. Æðislegur tími til að njóta í botn með fjölskyldu og vinum. Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Ég geri ráð fyrir að vera útsofin, þá með aðeins eldri börn, og auðvitað með langan lista af áhugamálum. En fyrst og fremst vona ég að heilsan og hamingjan verði mér og fjölskyldu minni hliðholl. Svo verð ég pottþétt á kafi í skemmtilegum verkefnum eins og síðustu ár. Samruninn var gífurlegt lærdómsferli Nám: Eftir stúdentspróf frá Versló 1998 lá leiðin í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. Þaðan út- skrifaðist ég árið 2002. Lauk síðan MBA-námi frá Háskóla Íslands árið 2016. Störf: Ég hef starfað hjá Högum frá því að ég stundaði nám í viðskipta- fræðinni. Fyrstu árin var ég í fjár- hagsdeild 10-11 og sérvörusviði. Þá hef ég sinnt starfi fjármála- stjóra Banana, Ferskra kjötvara og síðast Hagkaups áður en ég fór til móðurfélagsins árið 2010. Þá tók ég við starfi fjármálastjóra Haga og svo við skipulagsbreytingar nú í ágúst síðastliðnum tók ég við starfi framkvæmdastjóra rekstrar og samstæðu Haga. Fjölskylduhagir: Ég er í sambúð með Steinari Gísla- syni og saman eigum við tvo litla stráka, Breka rúmlega 3 ára og Torfa 18 mánaða. Svo eigum við hundinn Tímon sem er 8 ára loð- bolti. Svipmynd Guðrún Eva Gunnarsdóttir Guðrún Eva hefur starfað hjá Högum frá því að hún stundaði nám í viðskiptafræðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Staðreyndin er sú að rekstur netversl- ana er oft á tíðum erfiður og sárafá fyrirtæki sem sjá jákvæða afkomu af slíkum rekstri í dag. Íslendingar hafa tækifæri til þess að verða fyrstir þjóða til að gera alla útgáfu ríkisskulda- bréfa græna, bæði í íslenskum krónum og í erlendri mynt. Íslensk stjórnvöld hafa í framhaldinu tækifæri til þess að nýta afrakstur grænnar skuldabréfaútgáfu til þess að fullfjármagna metnaðar- fulla áætlun í loftslagsmálum. Í heimsókn Sean Kidney for- stjóra og stofnanda Climate Bonds Initiative, helsta sér fræðings heims í grænum skuldabréfum, í október, notaði hann tækifærið til að vekja athygli íslenskra ráða- manna á þessum möguleikum. Kidney, sem er meðal annars ráð- gjafi Evrópusambandsins, Kína og framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um græn skuldabréf, staðhæfir að með því að Ísland sýni fram á að hægt sé að gera ríkisskuldabréfaútgáfu að öllu leyti græna – og fullfjármagna loftslagsáætlun stjórnvalda, verði Ísland öðrum þjóðum mikil fyrir- mynd. Þau ríki sem farið hafa af stað í grænni ríkisskuldabréfaútgáfu, Frakkland, Holland, Pólland og Síle, svo fáein séu nefnd, hafa þurft að skipta upp skuldabréfaútgáfu sinni og gefa þannig bæði út græn skuldabréf og hefðbundin skulda- bréf. Útgáfa grænna skuldabréfa hefur mælst vel fyrir hjá þessum ríkjum sem hafa fengið hagstæð kjör og ætla að halda grænni útgáfu áfram. Ísland er hins vegar í þeirri einstöku stöðu að á sama tíma og nóg er af grænum verkefnum er skuldastaða ríkis- sjóðs með því lægsta sem gerist í heiminum. Því þarf íslenska ríkið ekki að skipta útgáfu sinni upp (e. carve out) í græna útgáfu og hefð- bundna. Græn skuldabréfaútgáfa er að f lestu leyti eins og útgáfa ann- arra skuldabréfa, nema að því leyti að útgefandinn heitir því að veita andvirði útgáfunnar til umhver f isvænna verkefna og aðgerða gegn loftslagsbreytingum. Með því að ríkið taki forystu með útgáfu grænna ríkisskuldabréfa er hægt að slá margar f lugur í hverju höggi; skuldabréfamarkaðurinn dýpkar, eftirspurn og fjöldi fjár- festa eykst, tækifærum fjárfesta til grænna fjárfestinga fjölgar og f leira. Ekki er síður mikilvægt að Ísland yrði þannig fyrirmynd á heimsvísu hvað varðar baráttuna gegn loftslagsvánni með tilheyr- andi kastljósi á sjálf bæra nýtingu auðlinda landsins – meðal annars í sjávarútvegi, orkuframleiðslu og ferðaþjónustu – með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á hagkerfið allt. Þessir kostir hafa komið skýrt fram í grænum skuldabréfaút- gáfum íslenskra aðila að undan- förnu. Í útboðum sem Fossar markaðir höfðu umsjón með fyrir hönd Reykjavíkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur fengust betri kjör en áður. Að auki vöktu útgáfurnar mun meiri athygli en hefðbundnar útgáfur og talsvert f leiri fjárfestar tóku þátt í þeim. Þá hafa grænu bréfin reynst frábær vettvangur fyrir samtal fjárfesta og útgefenda um áherslur beggja í umhverfismálum og þau grænu verkefni sem fjármagnið er nýtt í. Þetta teljum við að verði einnig raunin þegar íslenska ríkið fer af stað með græna útgáfu. Öll íslensk ríkisskuldabréf verði græn Ísland er í þeirri einstöku stöðu að á sama tíma og nóg er af grænum verkefnum er skuldastaða ríkissjóðs með því lægsta sem gerist í heiminum. Andri Guðmundsson, framkvæmda- stjóri hjá Fossum mörkuðum, og Kristján Guy Burgess, ráðgjafi um ábyrgar fjárfestingar Um er að ræða vinsælan fullbúinn einkarekinn leikskóla, sem er í góðum rekstri og staðsettur er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Til sölu er fasteign, rekstur og lausafé. Húsnæði er 462 fm á stórri og skjólsælli lóð. Áhugasamir hafi samband við: radgjof@lmbmandat.is LMB | Mandat slf. Til sölu fasteign og rekstur leikskóla Til þess að árangur náist í bar- áttunni gegn loftslagsbreytingum verður að virkja krafta mark- aðarins. Útgáfa grænna skulda- bréfa er þáttur í því sem fyrir- tæki og stjórnvöld geta gert. Það er fagnaðarefni hvernig íslenska ríkið hefur riðið á vaðið með því að í nýju frumvarpi um stofnun Þjóðarsjóðs, sé sérstaklega tiltekið að græn skuldabréf verði hluti af fjárfestingastefnu hans. Í nýlegri ræðu á þingi Norðurlandaráðs sagði Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra einnig að tryggja þyrfti að lífeyrissjóðir fjárfesti einnig til góðs með þessum hætti. Það er okkar mat að með útgáfu grænna skuldabréfa verði mögu- legt að styrkja fjármögnun ríkis- sjóðs, fjármagna aðgerðaáætlun til kolefnishlutleysis, styrkja alþjóð- legt orðspor Íslands og auka verð- mæti íslensks útf lutnings. Á sama tíma ná árangri sem eftir verður tekið í því sem mun skipta kom- andi kynslóðir öllu máli, að takast á við, loftslagsvána. 9M I Ð V I K U D A G U R 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.