Fréttablaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 4
Veður
Norðaustanátt, víða 8-15 m/s,
en N-lægari A-til í dag. Él N- og
A-lands, en samfelld snjókoma
NA- og A-lands fram á nótt. Lengst
af bjartviðri á S- og SV-landi. Frost
yfirleitt 0 til 7 stig. SJÁ SÍÐU 20
Þingmenn komnir í jólafrí
Eftirfarandi eru þakkarorð
frá aðstandendum Leifs
Magnúsar sem lést í lið-
inni viku, og óskað var
birtingar á. Þorri lands-
m anna f ylgd i s t með
björgunaraðgerðum og
því var góðfúslega orðið
við því. – ritstj.
Í síðustu viku gerðist sá sorglegi
atburður að drengurinn okkar
Leif Magnús Grétarsson Thisland
lést af slysförum þegar hann féll í
Núpá í Sölvadal. Í þeirri miklu sorg
sem slysinu fylgdi fyrir fjölskyldu
og vini Leifs Magnúsar vorum við
ólýsanlega þakklát fyrir óeigin-
gjarnt starf björgunarsveita, lög-
reglu, Landhelgisgæslunnar og
annarra viðbragðsaðila sem komu
að björgunaraðgerðum við afar
erfiðar aðstæður við Núpá. Þarna
fundum við fyrst á eigin skinni hve
mikilvægt starf björgunarsveita og
annarra viðbragðsaðila er, en það
skiptir sköpum fyrir okkur öll
þegar veður gerast válynd
og aðstæður verða nánast
óviðráðanlegar.
Við upplifðum fag-
lega og fumlausa fram-
komu viðbragðsaðila í
öllum samskiptum við
okkur aðstandendur Leifs
Magnúsar og var mikla
nærgætni að finna við allar
tilkynningar og upplýsingagjöf í
kjölfar slyssins. Þetta veitti okkur
styrk og vissu fyrir því að verið var
að gera allt sem í mannlegu valdi
stóð til að koma drengnum okkar
til bjargar.
Við erum þakklát ykkur öllum.
Við biðjum ykkur Guðs bless-
unar og gleðilegra jóla.
Fyrir hönd fjölskyldna
Leifs í Noregi og á Íslandi,
Grétar Már Óskarsson
Óskar Pétur Friðriksson
Torf hildur Helgadóttir
Valgerður Erla Óskarsdóttir
Brynjólfur Ásgeir Brynjólfsson
Þakkir til viðbragðsaðila
Mikill skortur er á barnaefni á íslensku táknmáli. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SAMFÉLAG Félag heyrnarlausra
fagnar 60 ára afmæli sínu 11. febrúar
næstkomandi. Verður því fagnað
með því að færa þjóðinni nýtt
smáforrit að gjöf. Fyrirmyndin er
bandarískt smáforrit sem heitir The
ASL App og mun það heita ÍTM APP
(íslenskt táknmál) á íslensku. Ólíkt
því bandaríska verður niðurhal á
hinu íslenska smáforriti ókeypis.
Stendur nú yfir framleiðsla og fjár-
mögnun er sótt til fyrirtækja og
samtaka.
„Þetta verður smáforrit þar
sem hægt verður að læra ákveðin
grunnatriði á táknmáli,“ segir Daði
Hreinsson, framk væmdastjóri
félagsins. „Þarna verða f lokkar
samskipta, til dæmis varðandi útlit,
klæðnað og mannleg samskipti.
Einnig eru uppi hugmyndir um að
hafa samskipti tengd ákveðnum
vinnustöðum, til dæmis eldhúsum
á veitingastöðum.“
Í kringum 200 Íslendingar nota
eingöngu íslenskt táknmál og Daði
áætlar að um 600 Íslendingar noti
táknmál á hverjum degi. Tákn-
málið er ólíkt öðrum tungumálum
að því leyti að það er ekki ritmál
og að læra táknmál svipar til þess
að læra annað tungumál í gegnum
kvikmyndir eða þætti. Rétt eins og
í íslensku er málfræði í táknmálinu,
sem kennd er í Háskóla Íslands, en
með táknum og hreyfingum.
Kostnaðurinn við ÍTM appið
verður í kringum 5 milljónir króna.
„Við höfum fengið mjög hlýjar og
góðar viðtökur víðast hvar,“ segir
Daði. „Félagið á sitt eigið hljóðver
en við þurfum að fjárfesta í búnaði
til að uppfylla ákveðnar kröfur hjá
þeim sem eiga réttinn að forritinu.
Síðan fáum við mismunandi fólk,
allt eftir f lokkum, til að lesa inn.“
Óvíst er hvenær hitt smáforritið
kemur út, en það verður á árinu
2020 segir Daði. Í því verða smá-
sögur á táknmáli fyrir börn, bæði
þekktar sögur og sögur búnar til
af heyrnarlausum. Það er smærra í
sniðum og mun kosta rúmar þrjár
milljónir.
„Sögumaðurinn og tjáning hans
skiptir mjög miklu máli í táknmál-
inu og við eigum mjög hæft fólk til
að segja þessar sögur,“ segir Daði
og jafnframt að mikill skortur sé
á barnaefni á íslensku táknmáli.
„Eina barnaefnið sem hefur verið
birt, til dæmis í Stundinni okkar, er
efni sem við höfum búið til og síðan
talsett til að allir njóti góðs af því,
eins og Tinna táknmálsálfur. Ríkis-
sjónvarpið hefur ekki viljað leggja
til fé en tekur við efni frá okkur.“
Smáforritin verða á tveimur
málum, en ekki hefur verið ákveðið
hvort þau verða textuð eða lesið yfir
á íslensku.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Gefa út tvö smáforrit
í tilefni af stórafmæli
Félag heyrnarlausra ætlar að gefa út tvö smáforrit á næsta ári í tilefni af 60 ára
afmæli félagsins. Annað þeirra er fyrir alla og kemur út á afmælisdeginum
sjálfum, 11. febrúar, og hitt, sem er smásögusafn fyrir börn, síðar á árinu.
Sögumaðurinn og
tjáning hans skiptir
mjög miklu máli í táknmál-
inu og við eigum mjög hæft
fólk til að segja þessar sögur.
Daði Hreinsson,
framkvæmdastjóri
Félags heyrnar-
lausra
Reginn hf. / 512 8900 / reginn@reginn.is / reginn.is
GRUNNLÝSING Í TENGSLUM
VIÐ ÚTGÁFURAMMA
REGINS HF.
Reginn hf. kt. 630109-1080, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, hefur birt
grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa.
Grunnlýsingin er dagsett 12. desember 2019, staðfest af
Fjármálaeftirlitinu, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu Regins,
www.reginn.is/fjarfestavefur. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni
og hjá útgefanda í höfuðstöðvum félagsins að Hagasmára 1,
Kópavogi, á meðan hún er í gildi.
Nánari upplýsingar um Reginn hf. og útgáfurammann má finna í
framangreindri grunnlýsingu. Fossar markaðir hf. hafði umsjón með
því ferli að fá grunnlýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirlitinu.
Kópavogur, 18. desember 2019
LÖGREGLUMÁL Matvælastofnun
hefur óskað eftir lögreglurann-
sókn á meintum flutningi fjögurra
lambhrúta frá Vestf jörðum til
Norðurlands eystra. Flutnings-
bann hefur verið sett á hrútana en
meintur flutningur milli landshluta
uppgötvaðist við eftirlit stofnunar-
innar. Þetta kemur fram í frétt á
vef Matvælastofnunar. Þar kemur
fram að viðtakandi hrútanna hafi
sótt um leyfi til stofnunarinnar árið
2016 um kaup á fimm hrútum úr
Vestfjarðahólfi vestra en umsókn-
inni verið hafnað.
Ekki er heimilt að f lytja sauðfé
yf ir varnarlínur sem ráðherra
ákveður hverju sinni. Varnarlínum
er ætlað að verja bústofna bænda
fyrir dýrasjúkdómum. – aá
Lögregla kanni
hrútaflutninga
Síðasta þingfundi ársins lauk á sjöunda tímanum í gærkvöldi en nú verður gert hlé á þingfundum fram til 20. janúar. Það var létt yfir þingmönnum
þegar forseti hafði hringt jólafríið inn og kvöddust margir með faðmlögum og kossum eins og venja er á þessum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð