Fréttablaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 58
VIÐ ERUM SAMT
ALLTAF MEÐ EIN-
LÆGNINA AÐ LEIÐARLJÓSI Í
ÞESSU. ÞAÐ ER ENGIN JÓLA-
KALDHÆÐNI Í GANGI HJÁ
OKKUR. ÞETTA ER EINLÆG
JÓLAGLEÐI, GERÐ AF EINLÆGUM
JÓLAÁHUGA.
Ívar
VIÐ ERUM SMÁ
AÐVENTUSJÚKLINGAR
BÁÐIR TVEIR. ÉG ER SJÁLFUR
MEIRA FYRIR AÐVENTUNA EN
JÓLIN. ÞAÐ ER EINMITT TÍMI
JÓLALAGANNA.
Örvar
EKKERT
BRUDL
Wellington
Innbökuð íslensk nautalun
d
Íslandsnaut Wellington Nautalund
Íslensk, frosin
kr./kg.5.998
Þeir Ívar Pétur Kjartansson og Örvar Smárason tilheyra báðir hljómsveitinni FM Belfast, en hugmyndin að jólamixinu kom til þeirra
þar sem þeir voru á tónleikaferða
lagi um Þýskaland.
„Við erum að fara að spila jólalög
á Röntgen,“ segir Örvar.
„Það er einfalda útgáfan,“ bætir
Ívar við.
„Langa útskýringin og útgáfan
er sú að fyrir tveimur árum vorum
við staddir í Þýskalandi með FM
Belfast. Við vorum í hljómsveitar
rútu, en við vorum að túra um Sviss,
Austurríki og Þýskaland. Þetta eru
allt mikil jólalönd,“ segir Örvar.
„Flestar jólahefðir sem við þekkj
um í dag koma frá Þýskalandi, til
dæmis jólatréð,“ segir Ívar.
Einlægni að leiðarljósi
Örvar segir þá félaga hafa farið á
jólamarkað nánast á hverjum ein
asta degi, en þeir eru sammála um
að jólamarkaðurinn í Leipzig hafi
borið af.
Hann heldur svo áfram: „Þá
gerðum við það okkur til dundurs
í rútunni að gera jólamix. Gerðum
smá ruglað plötusnúðamix úr því.
Þetta eru bæði íslensk og erlend
jólalög. Sum eru mjög þekkt en
önnur skrýtin og öðruvísi.“
„Við erum samt alltaf með ein
lægnina að leiðarljósi í þessu. Það
er engin jólakaldhæðni í gangi hjá
okkur. Þetta er einlæg jólagleði,
gerð af einlægum jólaáhuga,“ segir
Ívar.
„Já, við erum smá aðventusjúkl
ingar báðir tveir. Ég er sjálfur meira
fyrir aðventuna en jólin. Það er ein
mitt tími jólalaganna. Jólalögin eru
Tveir aðventusjúklingar spila jólalög
Ívar og Örvar og umboðsmaður þeirra, Jónatan Bjartur Ívarsson, stendur fyrir miðju. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
ekkert spiluð þannig séð á jólunum
sjálfum,“ segir Örvar.
Mikið til af jólatónlist
Þeir segjast hafa ákveðið á sínum
tíma að henda mixinu á Sound
cloud og fengið ótrúlega góð við
brögð í kjölfarið.
„Það er fullt af fólki sem er að gera
eitthvað fyrir jólin; baka, skrifa
jólakort eða taka til. Það vantar
alla eitthvað svona. Einhverja jóla
tónlist sem þú getur bara sett á og er
ekki alltaf það sama og verður strax
leiðinlegt,“ segir Örvar.
„Já, það er mjög mikið þannig
á Íslandi að sömu lögin eru bara
spiluð aftur og aftur. Maður þarf
að grafa svo stutt undir yfir
borðið til að sjá hvað það
er óhemju mikið af frá
bærum lögum til. Haf
sjórinn af jólatónlist er
óendanlegur,“ segir Ívar.
Þeir segjast líka vilja
kynna fólki lög sem
það hefur ekki heyrt, með því að fá
það til að hlusta með lögum sem
það hefur heyrt.
„Fyrir þá sem hafa áhuga á svo
leiðis, sumir eru náttúrulega bara
að leita að stemningu,“ segir Örvar.
Spila ekki Jólahjól
Jólamix númer tvö kom út núna í
byrjun aðventunnar.
„Við ætlum að gera þetta að tvíær
ingi. Nýtt mix mun koma út annað
hvert ár svo lengi sem rafmagn helst
á eyjunni og internet
tenging helst órofin.
Sannkallaður jóla
tvíæringur. Þetta
er svona fyrst og
fremst vegna þess að
við leggjum svo
mikla vinnu í
Ívar og Örvar spila í
kvöld jólamarkaðs-
mix á barnum Rönt-
gen. Þeir segja það
fullkomið fyrir þá
sem elska jólatónlist,
en líka fyrir þá sem
þola hana ekki.
þetta að við getum ekki lagt það á
fjölskyldurnar okkar að gera þetta
hver einustu jól. Við erum strax
báðir byrjaðir að safna lögum fyrir
næsta mix, sem kemur út eftir tvö
ár,“ segir Ívar.
„Í kvöld munum við spila jólalög
úr öllum áttum. Flestum af þeim
höfum við breytt, bætt eða gert
nokkurs konar „remix“ af. Það er svo
hægt að nálgast þetta á Soundcloud
og er algjörlega fullkomið fyrir elda
mennskuna, innpökkunina eða í
skrifstofupartíið,“ segir Örvar.
„Þetta er mikil blanda. Ég gæti
varla valið mín uppáhalds jólalög.
Þetta eru bæði þessi poppuðu og
líka trúarlegu klassísku jólalögin.
Það sem er samt líka áhugavert eru
allar mismunandi útgáfurnar með
ólíkum flytjendum,“ segir Ívar.
Þeir segjast sammála um að hafa
minna gaman af jólalögum sem fara
ekki alla leið.
„Jólafönk, jólablús eða einhver
indíhljómsveit að gera jólaábreiðu
sem er kannski alveg eins og upp
runalega lagið, mér finnst það ekki
skemmtilegt. Það sem ég dýrka við
jólatónlist er eiginlega tónlistar
stefnan. Það má gera alls konar rugl
sem er yfirleitt annars ekki gert,“
segir Ívar.
„Kvöldið í kvöld verður svo
algjört jólakvöld og nánast ein
göngu spiluð jólatónlist, en fólk
þarf ekki að hafa áhyggjur af því að
það sé bara að fara að heyra Jólahjól
aftur og aftur,“ segir Örvar.
„Ég held að fólk sem elskar jóla
tónlist eigi eftir að dýrka þetta og
fólk sem þolir ekki jólatónlist eigi
líka eftir að fíla þetta,“ segi Ívar.
Jólamarkaðsmix Ívars og Örvars
úr FM Belfast verður flutt í kvöld á
Röntgen frá klukkan 22. Jólatónlist
frá öllum heimshornum í breyttum
útgáfum þeirra. Eitthvað fyrir alla
og líklegt að jólaandinn taki yfir og
gripið verði í hljóðnema og sungið
með. Mixið er svo hægt að nálgast á
Soundcloud Örvars.
steingerdur@frettabladid.is
Hugmyndin að
því að gera jólamix
kviknaði þegar þeir voru
á tónleikaferðalagi með
FM Belfast fyrir tveimur
árum. FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR
1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ