Fréttablaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 28
Mozart við kertaljós
Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Reykjvíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ
Miðasala við innganginn og á tix.is - Miðaverð kr. 3.500 / 2.500
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudag 19. des. kl 21.00
Kópavogskirkju föstudag 20. des. kl 21.00
Garðakirkju laugardag 21. des. kl 21.00
Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudag 22. des. kl 21.00
Camerarctica
Mozart by candlelight
Kammertónlist á aðventu 2019
Piparkökuhús
geta reynst for-
eldrum og að-
standendum
öllum þrautin
þyngri, einkum
þegar kemur að
því að líma þau
saman.
Upp er runninn sá árstími þegar ólíklegasta fólk lendir í störfum arkitekta, hönn-
uða, verkfræðinga og steypubíl-
stjóra, já, tíð piparkökuhúsanna er
gengin í garð. Margir foreldrar alls
óreyndir í byggingarlist takast þau
verkefni á hendur að hanna, sníða,
blanda liti og búa til málningu,
reikna burðarþol mismunandi
piparkökuuppskrifta og fersenti-
metra girðinga og vindubrúa. Og
jafnvel þótt húsið sé keypt í búð
og skreytt án allra afskipta og
ábyrgðar þá vofir alltaf yfir það
vandasamasta af öllu: að líma
húsið saman sem í næstbesta falli
lýkur með því að húsið lítur út
fyrir að standa á miðjum Atlants-
hafshryggnum í miðju kafinu á
flekatilfærslum eða í mýri þar sem
það liðast yfirvegað sundur og
sekkur hægt og hljótt.
Algengustu aðferðir við að líma
saman piparkökuhús eru ann-
ars vegar að bræða sykur niður
í f ljótandi form og flýta sér svo
að gluða honum á allar hliðar og
klessa saman án þess að brenna sig
alvarlega á sjóðheitum sykrinum
áður en hann hleypur í hunangs-
lita þræði og verður eins og gler.
Og hins vegar að nota gæðaglassúr,
sem á ensku kallast royal icing.
Nokkrar aðferðir eru til að gera
hinn fullkomna límglassúr en þær
eiga það þó flestar sameiginlegt
að innihalda flórsykur og eggja-
hvítur. Stöku glassúr er bragð-
bættur með dropum, og eru þá
möndludropar og vanilludropar
algengastir, og litaður með matar-
lit þó að hvíti liturinn fari sérdeilis
vel í hlutverk snjós á piparköku-
húsi um jól. Þá er ekki óalgengt að
nota aðstoðarefni eins og cream
of tartar sem heitir á íslensku vín-
steinslyftiduft og er mikið notað
til marensgerðar. Hér fá örvilnaðir
foreldrar í piparkökuhúsanauð
uppskrift að einu slíku húsalími.
Sement fyrir piparkökuhús
Piparkökuglassúrlímið lítur út eins og snjór en bragðast talsvert betur.
Girnilegt smartíshlaðið piparkökuhús ber við stjörnubláan himin.
Mest krefjandi samverustund fjölskyldunnar á aðventunni felst í piparkökubakstri. NORDICPHOTOS/GETTY
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Sement fyrir
piparkökuhús
2 eggjahvítur
450 g flórsykur
3 eggjahvítur
½ tsk. vínsteinslyftiduft
Þeytið allt saman í sjö til tíu mínút-
ur þar til toppar myndast. Glassúr-
inn á að vera eins og marenstoppur
og jafn stífur. Berið þá rausnarlega
á allar hliðar hússins, jafnvel með
pokasprautu. Ef límið er ekki nógu
þykkt er ráð að bæta örlitlum flór-
sykri við. Notið nógu mikið, þrýstið
hliðum mátulega þétt saman og
vonið það besta. Ef afgangur er af
líminu er ráð að pakka því vel inn
því annars er hætta á því að hörð
skurn myndist.
Ef þetta virkar ekki og ekki
heldur sykurlímið þá má alltaf
seilast í límbyssuna og vonast til
þess að enginn hafi lyst á að brjóta
piparkökuhúsið og snæða eftir alla
vinnuna við að búa það til. Þá getið
þið á nokkrum jólum komið ykkur
upp myndarlegu piparkökuhúsa-
þorpi.
Margir foreldrar
lenda í hlutverki
arkitekta og bygginga-
meistara þegar kemur
að piparkökuhúsum
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R