Fréttablaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 24
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Hið íslenska frum-l y f j a þ r ó u n a r -fyrirtæki EpiEndo Phar maceuticals hlaut nú á dög-unum 340 millj-
óna króna styrk úr sjóði nýsköp-
unarnefndar Evrópusambandsins
(EIC) vegna þróunar á nýju frumlyfi
gegn sjúkdómum í öndunarfærum á
borð við langvinna lungnateppu og
astma. Klínískar rannsóknir fyrir-
tækisins hafa komið vel út en fram
undan er langt og strangt þróunar-
ferli sem mun krefjast fjármagns í
veldisvexti.
„Við höfum reynt að láta lítið fyrir
okkur fara á opinberum vettvangi
fram til þessa. Við höfum verið að
þróa viðkvæm hugverk gagnvart
lyfjaefnunum okkar og allar kynn-
ingar til fjárfesta og styrkjaumsókn-
ir verið trúnaðarmál,“ segir Friðrik
Garðarsson, læknir og stofnandi
EpiEndo.
Frá stofnun hefur fyrirtækið
safnað um átta og hálfri milljón
evra, eða um 1,1 milljarði íslenskra
króna, og stefnt er það því að fjár-
magna það aftur fyrir mitt ár 2020
um 750 til 1.000 milljónir íslenskra
króna þar sem um 400 milljónir
gætu komið úr sjóði EIC.
Forsöguna má rekja aftur til árs-
ins 2006 þegar Ólafur Baldursson
lungnalæknir, núverandi fram-
kvæmdastjóri lækninga á Land-
spítalanum, Þórarinn Guðjónsson,
prófessor í líffærafræði, og félagar
þeirra birtu niðurstöður rann-
sóknar sem sýndu að sýklalyfið,
Azithromycin (Zithromax), hefði
styrkjandi áhrif á þekjuna í önd-
unarfærum. Þetta var í raun eins
og stór uppgötvun, þar sem lyfið er
sýklalyf gegn bakteríum og á sam-
kvæmt fræðunum ekki að breyta
starfsemi líffæra mannsins.
„Niðurstöðurnar veittu mér inn-
blástur þegar ég var enn þá í lækna-
námi. Þær urðu kveikjan að því að
ég tengdist þeirri nýju hugmynda-
fræði sem er að rísa um þessar
mundir og er sú að orsök ýmissa
húð- og slímhúðarvandamála, þar
með talinna öndunarvegasjúk-
dóma, sé lekaástand í húðþekjunni
en ekki bólgurnar sem slíkar. Bólg-
urnar væru einkenni en húð- og
slímþekjubresturinn orsökin,“
segir Friðrik Rúnar. Fyrirtækið er
svo stofnað í janúar 2014 og hefur
náð þeim þróunaráfanga að vera
komið með ákveðna lyfjasameind
í formlegt lyfjaþróunarferli.
Zithromax er eitt af fáum lyfjum
sem bæla niður þráláta sjúk-
dóma í öndunarfærum. Almennt
hefur verið talið að það sé vegna
bólgueyðandi eiginleika en lyfin
hafa vissulega slíka virkni. Aftur
á móti virðist svo vera sem lyfin
hafi einnig þekjueflandi eiginleika
sem eru óháðir bólgueyðandi og
sýkladrepandi eiginleikunum; og
þaðan kemur sú gagnályktun að
þekjubrestur sé ein af grundvallar-
orsökum þekjuvandamála. „Þetta
er sú sýn sem hefur grundvallað
þróunarstefnu okkar,“ segir Friðrik.
„Það má kannski lýsa þessu þann-
ig að ef við líkjum bólgunni við gólf-
bleytu þá er búinn að vera pollur
á gólfinu og við höfum í gegnum
tíðina umgengist pollinn sem
vandamálið. Það er búið að reyna
að þurrka hann upp, blása hita á
hann og meira að segja sprengja
dýnamít fyrir utan húsið til þess
að lækka grunnvatnsstöðuna;
sem væri þá einhvers konar ígildi
bælingar á ónæmiskerfinu til að
draga úr bólgunum. Síðan koma
einhverjir Íslendingar og segja: Það
er kannski ekki gat á þakinu hérna
sem sést með berum augum en það
er að öllum líkindum leki í þakinu
og við þurfum þakþéttiefni til að
meðhöndla lekann,“ segir Friðrik.
„Orsök þess að sýklalyfið sjálft er
ekki notað eins og það kemur fyrir
til að meðhöndla þráláta öndunar-
vegasjúkdóma er sú að útbreidd
la ng t íma not k u n sýk la ly fsins
leiddi óumflýjanlega af sér mynd-
un ónæmra bakteríustofna gegn
sýklalyfinu. Það myndi hafa grafal-
varlegar afleiðingar í för með sér á
heimsvísu og nú þegar eru komnir
upp stofnar af bakteríum, einkum
innan sjúkrahúsa og í löndum þar
sem aðgengi að sýklalyfjum er mun
ótakmarkaðra en í þeim menning-
arheimi sem við tilheyrum, sem eru
orðnir ónæmir og fella aldraða og
fólk með fallvalta heilsu sem undir
flestum kringumstæðum væri hægt
að meðhöndla með þessari tegund
sýklalyfja.
Því var frumforsendan sú að
geta fjarlægt alla burði okkar nýju
lyfjaefna til að drepa bakteríur en
að þekjuef landi og bólgueyðandi
eiginleikarnir viðhéldust auk þess
sem lyfin yrðu örugg til langtíma
inntöku. Þannig væri löngun mark-
hópsins eftir lyfinu okkar best full-
nægt og vilji heilbrigðisyfirvalda og
lækna til að heimila lyfið og skrifa
það út gulltryggður.“
Fyrsta íslenska frumlyfið
Hafið þið náð að sinna allri þessari
þróun hér á landi? Hefur þróun á
frumlyfi áður gerst á Íslandi?
„Við vitum ekki til þess nei, að
frumlyf hafi verið þróuð á Íslandi
áður. Einhverjir hafa haft þann
ásetning en ekki tekist eins og
oftast vill verða í þessum bransa.
Aftur á móti hafa íslensk fyrirtæki
gert góða hluti í iðnaði sem tengist
lyfjaiðnaðinum á einhvern hátt. Til
dæmis má nefna Kerecis og Oculis
sem bæði hafa staðið í eftirtektar-
verðri þróun innan heilbrigðis- og
lækningageirans og þessi fyrirtæki
hafa að einhverju leyti að minnsta
kosti haft sína þróun hérna heima,“
segir Friðrik.
„Við höfum náð að sinna megn-
inu af því sem við þurftum að gera
hérna heima, ótrúlegt en satt,“ segir
Finnur Friðrik Einarsson, rekstrar-
stjóri EpiEndo.
„Við höfum notið þess að öll
nauðsynleg aðstaða og sérþekk-
ing var til staðar í landinu og því
gat fyrirtækið skotið rótum í þeim
jarðvegi. Við hefðum aldrei komist
á lappirnar nema vegna þess að Líf-
vísindasetur Háskólans gat þjón-
ustað okkur, veitt okkur ráðgjöf og
leigt okkur bæði starfsafl og rann-
sóknaraðstöðu. Þó að lyfjaefnin
okkar hafi verið þróuð og smíðuð
úti í Svíþjóð hafa allar rannsóknir
sem rutt hafa þróunarbrautina
verið gerðar hérna heima. Staðl-
aðar rannsóknir og athuganir á
efnunum okkar, sem aðallega lúta
að öryggis- og eitrunarathugunum
bæði í tilraunadýrum og í rann-
sóknarlíkönum, hafa farið fram hjá
erlendum þjónustuaðilum,“ segir
Finnur.
„Þegar litið er til framtíðar munu
nánast allar rannsóknir á þeirri
vöru sem nú er verið að fara fram
með fyrir langvinna lungnateppu
verða framkvæmdar erlendis,
þó einhverjar rannsóknir til að
styðja við klínísku þróunina verði
gerðar áfram hér. Áherslan heima
næstu misserin verður á að undir-
búa vöruþróun úr sama lyfjaflokki
fyrir aðra markhópa með önd-
unarvegavandamál, svo sem börn
á leikskólaaldri með viðkvæma
öndunarvegi, sjúklinga með skerta
öndunarhreyfingagetu vegna lang-
vinnra sjúkdóma á borð við vöðva-
og taugahrörnunarsjúkdóma eða
lömunar og jafnvel, þegar fram líða
stundir, fyrir fyrirbura sem fæðast
of snemma og hafa afar viðkvæma
öndunarvegi fyrstu vikurnar og
jafnvel mánuðina eftir fæðingu,“
segir Friðrik.
„Enn fremur er það stefna félags-
ins að leita leiða og samstarfs við
önnur fyrirtæki til að útvíkka
þekju styrkingarhugmyndafræðina
yfir í sjúkdóma í öðrum þekjum en
öndunarveginum svo sem slím-
húðina í ristlinum og jafnvel exem-
bólgur í húðþekjunni og teljum við
yfirfæranleikann vera mjög raun-
hæfan, bæði af líf- og læknisfræði-
legum sjónarhóli. Að minnsta kosti
er það stefna okkar að byrja strax
að leggja drög að framtíð okkar sem
alvöru þróunarfyrirtækis með ein-
staka stefnu í samanburði við flór-
una í frumlyfjaþróunarumhverfinu
í dag.“
Lagði aleiguna undir
En er þetta ekki dýrt ferli? Hvernig
hefur gengið að fjármagna þróun-
ina og hvernig metið þið horfurnar
í þeim efnum?
„Ég setti nú aleiguna mína í þetta,
heilar fimm milljónir íslenskra
króna, í byrjun til að starta þessu,“
segir Friðrik.
„Okkur tókst að safna styrkjum
og þurftum að lifa á þeim fyrst um
sinn áður en það tókst loksins að fá
inn fjármagn síðla árs 2015. Fyrsti
styrkurinn, Frumkvöðlastyrkur,
kom frá Tækniþróunarsjóði um
vorið 2014 og svo fengum við Verk-
efnastyrk, Styrk til hagnýtra rann-
sóknaverkefna og Vöxt frá RANNÍS
og nema innlendir styrkir frá stofn-
un félagsins því rúmlega 150 millj-
ónum íslenskra króna og það er í
raun þannig að styrkveitingarnar
hafa dregið að fjársafnanir og því
verið grundvallarforsenda þess að
við höfum haft bolmagn í þróun-
ina,“ segir Friðrik.
„Þeir fyrstu sem komu inn sættu
sig við það að skyggnið inn í fram-
tíðina var slæmt. Síðan hefur verið
gerð meiri krafa um skýrari sýn á
það hvernig þeir munu á endanum
geta losað um fjárfestinguna. Fyrir-
tækið á Tækniþróunarsjóði Vís-
inda- og tækniráðs mikið að þakka
og má segja að við værum ekki á
þessum stað í dag ef við hefðum
ekki fengið styrki þaðan. Einnig
hefur munað um endurgreiðslu þró-
unarkostnaðar af hálfu stjórnvalda.
En við höfum rekið okkur á
að fyrir utan Tækniþróunarsjóð
er afar veikt fjárfestingabatterí í
Stefna á markað sem
veltir milljörðum dala
Íslenska lyfjafyrirtækið EpiEndo vinnur að þróun lyfs við lungnaþembu sem
gæti orðið fyrsta íslenska frumlyfið. Stefna á markað sem veltir mörgum millj-
örðum dala á ári. Þurftu að treysta á fjármögnun frá einstaklingum og hafa
nú safnað tæplega 1,1 milljarði króna í styrki og hlutafé. Fara í viðræður um
fjárfestingu frá Evrópusambandinu eftir áramót. Fékk 340 milljóna styrk.
Finnur Friðrik Einarsson rekstrarstjóri og Friðrik Rúnar Garðarsson, stofnandi lyfjaþróunarfyrirtækisins EpiEndo. Þeir gera sér væntingar um að það taki skemmri tíma að koma lyfinu á markað en hefðbundið er. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hafa skipað öflugt vísindaráð
EpiEndo hefur átt auðvelt með
að fá leiðandi vísindamenn til að
koma að verkefninu. Hverjir eru
þessir aðilar sem þið nefnið og
hver er reynsla þeirra og hlutverk
í félaginu?
„Við erum með stjórnarfor
manninn Clive Page sem er
prófessor í lyfjafræði við King’s
College London. Hans tengsla
net liggur á efstu hæðum allra
helstu stofnana á heimsvísu
sem skipta sér af rannsóknum
og meðhöndlun á öndunar
vegasjúkdómum og það hefur
verið fyrir hans milligöngu að
við höfum getað mannað okkar
vísindalega ráðgjafarráð með
leiðandi álitsgjöfum á alþjóða
sviðinu gagnvart öndunarvega
sjúkdómum og meðhöndlun
á þeim. Staðan er því sú að við
njótum ráðgjafar sömu aðila við
skipulagningu þróunar okkar
og fyrirtæki á borð við Astra
Zeneca, Böhringer Ingelheim
og GlaxoSmithKlein nota við
sína öndunarvegalyfjaþróun
og erfitt fyrir þessi fyrirtæki
að andmæla því lofi sem þeirra
eigin ráðgjafar bera á EpiEndo
Pharmaceuticals.
Í vísindaráði fyrirtækisins situr
meðal annarra Michael Parnham
sem er prófessor í lyfjafræði við
Goetheháskólann í Frankfurt.
Parnham var í þeim hópi sem
þróaði sýklalyfið sem EpiEndo
byggir lyfjaþróun sína á og hefur
varið stórum hluta síns ferlis í
að rannsaka bólgueyðandi áhrif
þeirra á frumur ónæmiskerfis
ins. Þá eru tveir lungnalæknar í
ráðinu, Professor emeritus Peter
Barnes við Imperial College í
London og professor Dave Singh
við háskólann í Manchester, sem
sitja einnig báðir í hinni alþjóð
legu GOLDnefnd sem skilgreinir
lungnaþembu og meðferðarúr
ræði við henni á alþjóðavísu,“
segir Friðrik.
Þeir fyrstu sem
komu inn sættu sig
við það að skyggnið inn í
framtíðina var slæmt.
Friðrik Garðarsson
1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN