Fréttablaðið - 18.12.2019, Síða 18

Fréttablaðið - 18.12.2019, Síða 18
Ekki að þeir sem voru valdir áttu það alveg skilið en ég var smá hissa að toppliðið fengi ekki einn fulltrúa. Kannski endurspeglar þetta það sem ég hef verið að segja í vetur – okkar styrkleiki er liðs- heildin. Gunnar Magnússon Laxeldi í Norður-Noregi Fundur um áhrif laxeldis á strjálbýlum strandsvæðum Norður-Noregs fer fram í Matís að Vínlandsleið 12, Reykjavík fimmtudaginn 19. desember kl. 15:00 til 16:30. Fundurinn verður í boði Matís og verður fyrirlestur í höndum Gunnars Davíðssonar deildarstjóri hjá fylkisstjórn Troms fylkis. Áhugafólk um sjókvíaeldi er hvatt til að mæta. FÓTBOLTI Í kvöld verður vonandi f lautað til leiks í viðureign Barce- lona og Real Madrid í toppslag spænska boltans á Nývangi. Gífur- legar öryggisráðstafanir eru í Barce- lona-borg fyrir leikinn og munu leikmenn liðanna vera á sama hót- eli áður en haldið verður á völlinn í ómerktum rútum. Fyrir leikinn eru liðin jöfn með 35 stig á toppi deildarinnar. Real Madrid flýgur í dag til Barce- lona en þeir hafa gefið það út að liðið muni ekki yfirgefa flugvélina nema öryggi allra um borð verði tryggt. Leikurinn átti að vera 26. október en var frestað vegna óeirða á götum Barcelona eftir að níu pólitíkusar frá Katalóníu voru settir í járn. Liðin munu verða hvort á sinni hæðinni á Princesa Sofia hótelinu og ferðast í ómerktum rútum á völlinn. Venjulega koma leikmenn Barcelona á sínum eigin bílum á heimaleiki en nú var ákveðið að liðið yrði sam- ferða. Tsunami Democratic hefur aftur boðað mótmæli fyrir utan völl- inn og í nágrenni hans og er búist við 18 þúsund manns. Barcelona hefur unnið sex El Clas ico í röð gegn Real Madrid í deildinni og reyndar eru tapleikirn- ir aðeins fjórir í síðustu 22 deildar- leikjum liðanna. – bb Leikið í skugga mótmæla Það er aldrei skortur á látum þegar þessi lið mætast. NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI „Auðvitað finnst ein- hverjum þetta skrýtið að vera að þjálfa Hauka en vera búinn að ákveða að þjálfa annað lið á næsta tímabili en svona er þessi bransi. Þetta er starfið mitt og undirbún- ingstímabilið er stutt og tíðindin gerast oft yfir tímabilið,“ segir Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, en í gær var tilkynnt að hann tæki við Aftureldingu eftir tímabilið. Einar Andri Einarsson hættir eftir yfirstandandi keppnistímabil, þegar samningur hans rennur út, eftir sex ár í Mosfellsbænum og tekur Gunnar við hans búi. „Það hjálpar að taka við góðu búi og það einfaldar ákvörðun- ina mikið. Einar Andri er búinn að gera frábæra hluti síðustu ár og liðið er að berjast um alla titla. Við erum góðir félagar og hann hvatti mig til að taka við af sér. Það hjálpaði mikið. Ég tók við góðu búi hjá Haukum á sínum tíma og geri það aftur núna. Ég þekki líka til í baklandi UMFA og það er mikill metnaður í Mosfellsbæ og þess vegna er ég kominn þangað.“ Gunnar tók við Haukum af Pat- reki Jóhannessyni árið 2015 eftir að hafa gert ÍBV að Íslands- og bikar- meisturum. Liðið varð deildar- og Íslandsmeistari árið 2016 og deildarmeistari á síðasta tímabili. Haukar eru efstir eftir 14 umferðir og var Gunnar valinn besti þjálfari fyrri hluta mótsins í uppgjörsþætti Seinni bylgjunnar sem tekinn var upp á Ölveri. Enginn leikmaður Hauka komst þó í úrvalslið fyrri hlutans sem mörgum þótti skrýtið. „Miðað við að við erum á toppnum og slógum Val út úr bikarnum þá fannst mér einhver af mínum leikmönnum eiga skilið sæti í því liði.  Ekki að þeir sem voru valdir áttu það alveg skilið en ég var smá hissa að toppliðið fengi ekki einn fulltrúa.  Kannski endurspeglar þetta það sem ég hef verið að segja í vetur – okkar styrkleiki er liðs- heildin. Það er kannski ekki ein- staklingsgæði sem hafa verið að skila okkur á toppinn heldur liðið. Það hafa margir lagt í púkkið.“ Ákveðið í sumar Gunnar segir að hann hafi tekið ákvörðun um að róa á önnur mið í sumar. „Þegar maður er þjálfari, sama í hvaða íþróttagrein það er, þá er alltaf ákveðinn kúnst að þekkja sinn vitjunartíma. Ég vildi finna rétta tímapunktinn og hætta með sæmd. Ég er enn þá ungur og á nóg eftir og get þá komið aftur í Hauka. Það eru forréttindi að starfa fyrir þetta félag sem er að mínu mati stærsta handboltafélag á Íslandi. Það er ótrúlega gott að vera hérna.“ Hann segir að það sé engin til- viljun að Haukar séu búnir að vera á toppnum í mörg ár, metnaðurinn sé mikill og umgjörð og starfsfólk fyrsta f lokks. „Það er ekkert verið að fara á bak við einn né neinn og allir hafa vitað hver mín staða væri. Mér finnst betra að vera heiðar- legur, bæði gagnvart stjórn og leik- mönnum. Mér fannst mikilvægt að skilja vel við Hauka enda hefur okkar samstarf verið gott. Í þessu starfi er það ekki sjálfsagður hlutur að geta skilið vel við liðin.“ Spennandi landslið Gunnar er einnig aðstoðarþjálfari Guðmundar Guðmundssonar hjá íslenska landsliðinu sem mætir til undirbúnings fyrir EM í handbolta á Þorláksmessu. Liðið heldur til Þýskalands 3. janúar þar sem það mun spila gegn Þjóðverjum í Mann- heim þann 4. janúar. Eftir vináttuleikinn gegn Þjóð- verjum kemur liðið aftur heim og æfir þar allt þar til það fer á EM þann 9. janúar. Fyrsti leikur liðsins á EM verður laugardaginn 11. janúar gegn Dönum í Malmö. „Við erum að koma með spenn- andi lið og við erum komnir með góða blöndu af yngri og eldri leik- mönnum. Það er ljóst að það eru spennandi ár fram undan. Þessi kynslóð er feikilega öflug. Riðillinn er erfiður og getur farið á ýmsa vegu en við erum spenntir. Jólin verða hefðbundin með fjöl- skyldunni. Ég fæ frí um hátíðarnar en þær eru þó að miklu leyti helg- aðar æfingum og undirbúningi fyrir EM.“ benediktboas@frettabladid.is Verður kjúklingabóndi í Mosfellsbæ Gunnar Magnússon ákvað í sumar að þetta yrði síðasta tímabil hans með Haukum. Í gær var svo tilkynnt að hann taki við liði Aftureldingar. Gunnar segist hlakka til komandi tíma í Mosfellsbæ og kveðja Hauka með reisn og vonist til að starfa aftur þar á bæ. Gunnar tók við Haukum af Patreki Jóhannessyni árið 2015 eftir að hafa gert ÍBV að Íslands- og bikarmeisturum árið áður. Liðið varð deildar- og Íslandsmeistari árið 2016 og deildarmeistari á síðasta tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.