Fréttablaðið - 18.12.2019, Page 30
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Málmaendurvinnslan hóf starfsemi fyrir aðeins fjórum mánuðum, en
fyrirtækið kaupir brotajárn og
brotamálma, f lokkar málminn og
kemur honum svo í endurvinnslu
í Hollandi.
Að sögn Högna Auðunssonar
framkvæmdastjóra er fyrirtækið
að bjóða fólki nýjan valkost þegar
kemur að því að flokka og skila af
sér úrgangi.
„Í dag hefur átt sér stað mikil vit-
undarvakning varðandi mikilvægi
þess að flokka og skila rétt af sér
úrgangi, en um leið hafa fyrirtæki
og einstaklingar gert sér sífellt
betur grein fyrir því að í málmum
og öðrum úrgangi liggja heilmikil
verðmæti,“ segir Högni.
„Fólk hefur vanist því að fara
með dósir og flöskur í sérstaka
móttöku til að fá greitt fyrir þær
og nú býðst fólki að gera það sama
með málma hjá okkur,“ segir
Högni. „Það þarf því ekki lengur
að fara með þetta í Sorpu, þar sem
maður þarf jafnvel að borga fyrir
að henda, heldur er hægt að koma
til okkar með málmúrgang og fá
greitt fyrir hann. Þannig er hægt
að spara sér kostnað, skila rétt af
sér og jafnvel græða fjárhagslega
á umhverfisvernd, fyrir nú utan
ávinninginn fyrir umhverfið.“
Engar lágmarkskröfur
og gott verð
„Við sækjumst aðallega eftir góð-
málmum eins og áli, ryðfríu stáli,
kopar, brassi, járni og rafmagns-
köplum,“ segir Högni. „Við tökum
líka á móti hvarfakútum úr bílum,
sem geta verið mjög verðmætir. Á
hverjum kút er númer sem segir til
um verðmæti hans og við greiðum
eftir því, en hver kútur getur verið
allt að 12 þúsund króna virði.
Þar sem við erum lítið fyrirtæki
með mjög litla yfirbyggingu og
engar stórar vinnuvélar f lytjum
við út jafnóðum og við fyllum
gáma. Fyrir vikið getum við greitt
betur fyrir málmana en gengur og
gerist,“ segir Högni. „Verðlistinn
okkar hefur vakið mikla athygli og
ótrúlega margir hafa sagt okkur að
þeir hafi ekki haft hugmynd um
að það væri hægt að fá greitt fyrir
þennan úrgang. Við erum líka
ekki með neinar lágmarkskröfur
á magn, það er þess vegna hægt að
mæta til okkar með eitt blönd-
unartæki.
Aftur á móti höfum við ekki
aðstöðu til að taka á móti bílhræj-
um, stórum raftækjum eða spilli-
efnum,“ segir Högni. „Ísskápar eru
til dæmis í f lokki spilliefna.“
Flokkun er framtíðin
„Í framtíðinni verður einfaldlega
gerð krafa um að skila öllu rétt af
sér, annars fellur til aukakostn-
aður,“ segir Högni. „Sem betur fer
er vitundarvakning um mikil-
vægi umhverfisverndar, því við
þurfum öll að vera sameinuð í
henni. Við viljum því hvetja sem
f lesta til að koma til okkar svo
við getum keypt eins mikið af
brotamálmi og mögulegt er. Við
vonumst svo til að geta stækkað
starfsemi okkar þegar fram líða
stundir.“
Nánari upplýsingar á www.
malma.is. Sími: 519 9819 netfang:
info@malma.is.
Málmendurvinnslan er lítið fyrirtæki með mjög litla yfirbyggingu og engar stórar vinnuvélar. Fyrir vikið getur það greitt betur fyrir málma en gengur og gerist og verðlistinn hefur vakið athygli.
Hjá Málmendurvinnslunni er hægt að skila rétt af sér og stuðla þannig að
sjálfbærni og jafnvel græða um leið fjárhagslega á umhverfisverndinni.
Málmendurvinnslan gerir engar lágmarkskröfur um magn en hefur ekki
aðstöðu til að taka á móti bílhræjum, stórum raftækjum eða spilliefnum.
Fólk hefur vanist
því að fara með
dósir og flöskur í sér-
staka móttöku til að fá
greitt fyrir þær og nú
býðst fólki að gera það
sama með málma hjá
okkur.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RMÁLMIÐNAÐUR