Fréttablaðið - 18.12.2019, Qupperneq 41
Ei
tu
rá
hr
ifa
pr
óf
an
ir
Fa
si
1
Fa
si
2
Fa
si
3
IPO/Yfirtaka
Fo
rk
lín
ís
ka
r r
an
ns
ók
ni
r
2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 2026 2027 2028
✿ Áætlanir EpiEndo
V I R Ð I F Y R I R T Æ K I S I N S
Finnur Friðrik Einarsson rekstrarstjóri og Friðrik Rúnar Garðarsson, stofnandi lyfjaþróunarfyrirtækisins EpiEndo. Þeir gera sér væntingar um að það taki skemmri tíma að koma lyfinu á markað en hefðbundið er. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
nýsköpunarumhverfinu á Íslandi
til að styðja við fyrirtæki eins og
EpiEndo. Framan af nutum við þess
að fá dreifðan hóp englafjárfesta
að málinu með minni upphæðir
en samfara nýjustu fjármögnun
félagsins hefur komið inn meiri
kjölfesta reyndra fjárfesta. Það var
kannski eðlilegt á fyrstu stigum að
stærri aðilar svo sem nýsköpunar-
sjóðir þyrftu góða atrennu að þessu
máli þar sem þekking á frumlyfja-
þróun er takmörkuð á Íslandi og
ekki nægjanlegur slagkraftur á
nýsköpunarsviði hér á landi,“ segir
Friðrik.
„Ég ætla ekki að draga fjöður yfir
það að það var erfitt ferli framan af
að ná til fjárfesta og ná sér á þann
stað sem við erum á núna. Það eru
hins vegar skýr merki, sem við
erum að sjá núna, um að líklega
verður f jármögnun okkar mun
auðveldari héðan í frá þrátt fyrir
að mun hærri upphæðir séu undir,
eins þversagnarkennt og það nú
er. Við erum komnir á þann stað í
þróun félagsins að sérhæfðir fjár-
festar á þessu sviði fara að stíga
þétt inn á sviðið,“ segir Friðrik.
Langt í land
Hvernig er útlitið og aðstæðurnar
á markaðnum fyrir lyfið ykkar og
hvenær teljið þið að lyfið komist á
markað og sjúklingar geti farið að
taka það inn að læknisráði?
„Við teljum aðstæðurnar fyrir
lyfið okkar vart geta verið betri í
ljósi þess að nú þegar er sterkt kall
til staðar eftir „ósýkladrepandi“
af leiðu af Azithromycin (Zitro-
max) hjá bæði sjúklingum með
þráláta öndunarvegasjúkdóma og
samtökum lungnalækna um víða
veröld,“ segir Friðrik.
„Aðstæðurnar á markaðnum
eru þær að horfur sjúklinga með
til dæmis langvinna lungnateppu
hafa lítið batnað frá því um miðja
síðustu öld og þau lyf sem helst
eru notuð til að milda gang sjúk-
dómsins hafa takmarkaða getu
til að vinna gegn framgangi sjúk-
dómanna og eru fyrst og fremst
einkennamildandi. Aftur á móti
hafa bæði berkjuvíkkandi lyf og
nýrnahettusterar, sem mest eru
notuð í dag til að meðhöndla þrá-
láta öndunarvegasjúkdóma, svo
víðtækar hliðarverkanir í líkam-
anum séu þau tekin inn um munn
að frá árinu 1980 hafa þessi lyf
meira og minna færst yfir í púst,
til að komast hjá hliðarverkunum.
Slíkur úðabúnaður er bæði dýr í
framleiðslu og mengandi því bæði
er hann búinn til úr plasti og svo
eru notaðar gróðurhúsaloftteg-
undir til að mynda úðann.
Örvænting yfir úrræðaleysinu
meðal þeirra sem þjást af þessum
sjúkdómum sem og þeirra sem
meðhöndla fólkið með þá hefur
gert það að verkum að sala á
skráðum meðferðum við vanda-
málunum hefur stigaukist undan-
farna þrjá áratugi og nálgast velta
pústamarkaðarins í tengslum við
þráláta öndunarvegasjúkdóma í
fullorðnum 25 milljarða Banda-
ríkjadollara á ári,“ segir Friðrik.
„Við sjáum fyrir okkur að lyfið
okkar komi ekki aðeins til með að
höfða til stórs hluta af núverandi
markhópi fyrir pústin heldur muni
okkar lausn umturna markaðnum
og endurskilgreina hann með viss-
um hætti. Okkar sýn er sú að með-
ferðin muni ekki aðeins skírskota
til þeirra sem eru lengst leiddir af
sínum sjúkdómi og eru orðnir tíðir
gestir á bráðamóttökum og lungna-
deildum sjúkrahúsanna heldur
fyrst og fremst til meðhöndlunar
þeirra sem hafa sjúkdómana á
frumstigum svoleiðis að hefta megi
framgang þeirra og koma í veg fyrir
að viðkomandi þrói þá með sér allt
á lokastig,“ segir hann.
„Fyrst er ætlunin að koma lyfinu
á markað fyrir þá sem eru lengst
leiddir af sínum sjúkdómi,“ segir
Finnur í framhaldinu, „og munu
upphafsáhrifin af því verða veruleg
vegna þess að ef okkar efni virkar
jafnvel og Zithromax til að draga úr
sjúkdómsbyrðinni þá erum við að
horfa fram á 30-50 prósenta sam-
drátt í innlagnatíðni vegna versn-
unar á langvinnri lungnateppu sem
myndi skila sér í verulegum sparn-
aði fyrir heilbrigðis- og hagkerfið.
Áhrifin til lengri tíma verða svo
vonandi þau að færri þrói með
sér lungnateppu en þar er þó á
brattann að sækja því reykingar
eru ekki lengur helsta orsök lang-
vinnrar lungnateppu á heimsvísu
heldur mengandi og ætandi efna-
sambönd í andrúmsloftinu sem eru
upprunnin úr iðnaði og brennslu
jarðefnaeldsneytis. Þannig sjáum
við fyrir okkur að undir lok einka-
leyfistímabilsins okkar verði lyfið
tekið inn af f leirum en sjúklingum
og ætti til að mynda að takast inn
af öllum sem búa við lök loftgæði
og sjá ástæðu til að ganga með and-
litsgrímur utandyra,“ segir Finnur.
„Þetta er möguleg framtíðar-
músík og fókusinn núna og enn
um sinn verður að vera sá að stað-
festa virknimáta lyfsins í gegnum
skammtíma meðhöndlun í litlum
hópum fólks með öndunarvega-
sjúkdóma áður en farið verður út í
stærri og viðameiri rannsóknir við
að kortleggja þjóðhagslega ávinn-
inginn af langtímanotkun lyfjanna
í öndunarvegasjúkdómaþýðinu.
Ef engar þróunarhraðbrautir fást
samþykktar hjá Lyfjastofnun Evr-
ópu mun lyfið okkar ekki komast í
uppáskriftir fyrr en árið 2027-2028.
Við munum auðvitað færa fram
ágæt rök sem hníga að því að koma
lyfinu okkar hraðar í umferð til
þeirra sem eru í verstri stöðu
og skapa mestan kostnað í heil-
brigðisþjónustunni og það er ekki
útilokað að okkur takist það en það
verður að koma í ljós,“ segir Finnur.
„Björtustu vonir okkar eru þær
að lyfið gæti fengist samþykkt fyrir
lengst leiddu öndunarvegasjúkl-
ingarna á árinu 2025 og við verð-
um bara að sjá til hvernig okkur
lukkast þau áform. Þó að leiðin á
markað liggi enn nokkur ár inn í
framtíðina og kostnaðurinn komi
til með að hlaupa á hundruðum
milljóna evra eða dala þá erum
við afar bjartsýn um að þróunar-
braut okkar skili okkur farsællega
á áfangastað.“
Ég ætla ekki að
draga fjöður yfir
það að það var erfitt ferli
framan af að ná til fjárfesta
og ná sér á þann stað sem
við erum á núna.
Friðrik Garðarsson
Við vitum ekki til
þess nei að frumlyf
hafi verið þróuð á Íslandi
áður. Einhverjir hafa haft
þann ásetning en ekki
tekist.
Friðrik Garðarsson
MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9