Fréttablaðið - 18.12.2019, Qupperneq 48
Fyrir okkur krakkana var þetta
tími ævintýra en fullorðna
fólkið sem bar ábyrgðina var
líklega ekki eins sátt.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Steindórsdóttir
andaðist á hjúkrunarheimilinu
Hömrum laugardaginn 14. desember.
Útför hennar fer fram frá Lágafellskirkju
fimmtudaginn 19. desember kl. 15.00.
Steindór Hálfdánarson Sólrún Björnsdóttir
Stella Petra Hálfdánardóttir Lárus Halldórsson
Kristín Hálfdánardóttir Gunnar H. Sigurðsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og
samúð vegna andláts og útfarar okkar
ástkæru móður, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Svövu Þórdísar
Baldvinsdóttur
Siglufirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Siglufjarðar
fyrir góða umönnun.
Baldvin Júlíusson Margrét Sveinbergsdóttir
Theodór Júlíusson Guðrún Stefánsdóttir
Hörður Júlíusson Sigurlaug J. Hauksdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elsku pabbi minn, fóstri og afi,
Halldór Sigurður
Guðmundsson
Kópavogsbraut 1b, Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
föstudaginn 13. desember.
Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 23. desember kl. 13.00.
Halla Ósk Halldórsdóttir og synir
Jónas H. Bragason og fjölskylda
Elín Hulda Halldórsdóttir og fjölskylda
Stefán Halldórsson
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Með okkar bestu þökkum fyrir vináttu, stuðning og allan
ykkar hlýhug við fráfall föður okkar, sonar, bróður, mágs,
frænda og vinar,
Margeirs Dire Sigurðarsonar
Mía og Nói Margeirs Ásrúnarbörn
Halla Stefánsdóttir
Sigurður Gestsson og Kristín Kristjánsdóttir
Stefán Sigurðsson, Harpa Hlín Þórðardóttir og börn
Friðfinnur Sigurðsson, Saadia Auður Dhour og dætur
Antonía Hölludóttir og Elmar Freyr Aðalheiðarson
Ana Karen Jiménez Barba
Hornfirðingurinn Sigur-páll Ingibergsson var átta ára gamall þegar rafmagnsleysi hrelldi f lesta íbúa Hafnar og nærsveita um jólaleytið
árið 1973. Ekki vegna illviðris heldur
vatnsskorts. En rannsóknarskipið
Bjarni Sæmundsson kom samfélaginu
til bjargar og framleiddi rafmagn líkt og
varðskipið Þór gerði á Dalvík í liðinni
viku. „Það skapaðist geysileg stemning á
Hornafirði þegar von var á skipinu. Fólk
streymdi út í Ósland til að sjá það sigla
inn Ósinn og að bryggju. Bílaröðin var
óslitin þangað frá Hvamminum, sem á
þeim tíma var kallaður Skakkinn.“
Rafmagnið fór alveg af á aðfangadags-
kvöld, að sögn Sigurpáls. „Vatnslónin
gáfu ekkert af sér vegna þurrks og frosta
þannig að Smyrlabjargarárvirkjun náði
lítið að framleiða, dísilvélar staðarins
voru ekki nógu öflugar og byggðalínan
ekki komin. Það hafði verið skömmtun í
gangi um tíma. Ég man að eitt sinn þegar
ég kom í skólann klukkan átta var ég sá
eini sem mætti. Þá hafði ég misst af til-
kynningu um að skólahald félli niður.
Það var náttúrlega myrkur yfir öllum
bænum og enginn á ferli. Þá upplifði ég
mig virkilega eins og Palli sem var einn
í heiminum.“
Fyrir krakkana í bænum segir Sigur-
páll skömmtunartímann samt hafa
verið spennandi. „Þegar rafmagnið var
tekið af mínu hverfi þá fór ég til félaga í
næsta hverfi sem hafði rafmagn.“ Hann
minnist sunnudags í desember, eina
dags vikunnar sem barnaefni var í sjón-
varpinu. „Þá voru þarna bifvélavirkjar
sem tóku geymi úr bíl og tengdu hann
inn þannig að ég gat horft á Stundina
okkar. Það var geggjað. Öllum krökkum
á Fiskhólnum var boðið að horfa á Glám
og Skrám. Fyrir okkur krakkana var
þetta tími ævintýra en fullorðna fólkið
sem bar ábyrgðina var líklega ekki eins
sátt. Atvinnulíf fór úr skorðum en virð-
ing var borin fyrir aðstæðum og hugsað
um allt samfélagið. Ekki mátti elda stór-
steikur vegna rafmagnssparnaðar. Hús
voru kynt með rafmagni og urðu fljótt
köld, á þessum tíma áttu samt einhverjir
steinolíulampa- og ofna og fólk var flutt
á Hótel Höfn úr húsum sem ekki var
búandi í.
Í frétt í Þjóðviljanum 8. janúar 1974
stendur að lífið sé aftur komið í eðli-
legar skorður á Höfn. Bjarni Sæm farinn
og Smyrla byrjuð að rokka,“ segir Sigur-
páll. gun@frettabladid.is
Bjarni Sæmunds kom til
Hafnar með birtu og yl
Það rifjaðist upp þegar Þór var fenginn til að framleiða rafmagn á Dalvík á dögunum
að um jólaleytið árið 1973 gerði rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson slíkt hið sama
austur á Hornafirði. Sigurpáll Ingibergsson minnist þess tíma með mikilli ánægju.
Sigurpáll bauð öllum krökkum sem bjuggu á Fiskhólnum að horfa á Glám og Skrám í sjónvarpinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Merkisatburðir
1897 Leikfélag Reykjavíkur sýnir sína fyrstu uppsetningu
en það var stofnað í byrjun þessa árs.
1939 Í bifreiðaskála Steindórs í Reykjavík fer fram fyrsti
flutningur óratoríu á Íslandi. Það er Sköpunin eftir Haydn.
1949 Laugarneskirkja í Reykjavík er vígð.
1970 Evrópska flugvélasmiðjan Airbus er stofnuð.
1970 Skilnaður verður löglegur á Ítalíu eftir að ný lög
ganga í gildi.
1973 Stjörnubíó brennur til kaldra kola er eldur kemur
upp skömmu eftir að sýningu lýkur.
1974 Hitaveita Suðurnesja er stofnuð af sveitarfélögum
á Suðurnesjum og íslenska ríkinu.
1982 Í Ríkisútvarpinu eru lesnar auglýsingar samfellt í sjö
klukkustundir og er það met.
1982 Kvikmyndin Með allt á hreinu eftir Stuðmenn, í leik-
stjórn Ágústs Guðmundssonar, er frumsýnd.
1998 Vísindamenn geta í fyrsta sinn fylgst með eldgosi
undir stórum jökli er gos hefst í Grímsvötnum.
1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT