Fréttablaðið - 18.12.2019, Síða 60
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
QOD AFM ÆLIS -DÚNSÆNG
Hlý og létt dúnsæng (650 gr).
90% dúnn, 10% smáfiður. 140x200 cm
100% bómullaráklæði.
25.000 kr. AFM ÆLISVERÐ
HÁGÆÐA DÚNVÖRUR
Á 25 ÁRA AFMÆLISVERÐI
QOD AFMÆLIS-DÚNKODDI
Þéttur og góður dúnkoddi. 80% hvítur
andadúnn og 20% smáfiður. 50x75 cm.
920 gr. og 100% bómullaráklæði.
8.900 kr. AFM ÆLISVERÐ
SATIN STRIPE
DÚNKODDI
Þriggja laga dúnkoddi. Efra og neðra dúnlag með þéttum,
hvítum andadún og smáfiðurkjarna. Bómullarsatínáklæði.
9.900 kr. AFM ÆLISVERÐ
HÖFUM LAGT GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI Í
JÓL AOPNUN
Í BE TR A BAKI
FA X AFENI
18 . DES .
10 –18
19.–20. DES .
10 –20
21 .–22 . DES .
11–20
23 . DES .
10 –22
24 . DES .
10 –13
A
LLTA F OP
IN
www.betrabak.is
V
E F
V E R S L U N
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér nýjustu
fréttir dagsins og ítarlega umöllun
um málefni líðandi stundar.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Guðmundur Brynj-ólfsson, djákni með meiru, unir sér vel í fortíðinni þar sem hann sk rifar um lesti, veikleika og
skuggahliðar mannssálarinnar
sem hann hefur skoðað í persónum
tveggja bóka sem hann kennir við
börn, fyrst eitrað og nú þögult.
„Þessi bók gerist er rétt um alda-
mótin 1900. Þetta er tímabil sem
heillar mig enda er svo
margt í gangi. Sjálfstæð-
isbaráttan til dæmis og
menn aðeins að draga sig
upp úr eymdinni. Hann-
es Hafstein að verða ráð-
herra og mótorbátar að
koma til sögunnar.“
Í þessu umhverfi hefur
Guðmu ndu r f u nd ið
rey nslu lau s a sýslu-
manninum Eyjólfi stað
og mesta furða hversu
ágengt honum verður
þar sem skúrkurinn Kár
Ketilsson er með hann á
heilanum en góðu heilli hefur Anna
konan hans oftast vit fyrir honum.
„Eyjólfur gerir ekki mikið sjálfur
því hann er fyllibytta og á margan
hátt vanhæfur vegna getuleysis en
góður maður inn við beinið eins
og ég,“ segir Guðmundur og glottir.
„Og hann er náttúrlega dreginn
áfram af kostakonu og þótt þetta
þyki kannski klisjukennt þá er lífið
voða mikið svoleiðis hjá okkur. Við
erum helvíti klárir á sumum sviðum
en á öðrum komum við í raun engu í
verk. Svona eins og Eyjólfur.“
Enginn er alvondur
Tenging Guðmundar við Eyjólf er
ekki úr lausu lofti gripin þar sem
hann hefur sjálfur tekið nokkrar
snerrur við Bakkus og leitaði sér
hjálpar á Vogi um það leyti sem
Þögla barnið fór í prentun.
Sú rimma tók það harkalega á
rithöfundinn að hann segist frekar
kjósa ásóknir illmennisins sem
leggur Eyjólf sýslumann í einelti,
jafnvel þótt hann finni í persónunni
samsvörun við sjálfan
prófessor Moriarty,
Napóleon glæpanna,
erkifjanda Sherlocks
Holmes.
„Þegar Kár Ketilsson
ekki heldur fyrir mér
vöku með grimmdar-
legri ásókn um nætur
þá veit sú þögn aðeins
á það eitt að hann er
að upphugsa einhver
djöfulleg vélráð gegn
hjónunum Eyjólfi sýslu-
manni og Önnu eða þá
að hann er að búa sig
undir næsta áhlaup á mig,“ segir
djákninn skrifandi og heldur
áfram.
„Kár Ketilsson er
Mor iar t y íslensk ra
bókmennta, útsmog-
inn og stórhættulegur,
rekinn áfram af hefnd-
arþorsta, biturleika og
bölvanlegu innræti. Þó
er honum ekki alls varn-
að og er til dæmis mikill
dýravinur eins og fram
kemur í Þögla barninu.
Enginn er alvondur, ekki
einu sinni Kár Ketilsson.“
„Þrátt fyrir gegndar-
lausar árásir Kárs á geð
mitt og sálarheill óttast ég hann
ekki. Það yrði aftur á móti yfirgengi-
legur harmleikur ef Eyjólfur sýslu-
maður færi að drekka í gegnum mig.
Guðmundur segir þær rannsóknir
sem hann stundar á illsk-
unni í ritstörfum ekki
truf la þá sem treysti á
hann sem kirkjunnar
þjón. Síður en svo.
„Ég er bara ekki svo
einfaldur að gera mér
ekki grein fyrir því að
það eru allir með ein-
hverja viðurstyggð í
hausnum. Það er að
segja það skýtur upp
einhverri viðurstyggð
í hausinn á hverjum
einasta manni nánast
á hverjum einasta
degi og mér svona finnst bara
gaman að fanga eitthvað af því og
koma því frá mér,“ segir Guðmundur
sem finnst hið illa í eðli mannsins oft
illa skilgreint og afgreitt í skáldskap.
toti@frettabladid.is
Allir með einhverja
viðurstyggð í hausnum
Guðmundur Brynjólfsson, rithöfundur og djákni, þekkir skugga-
hliðar mannlífsins ágætlega og hefur smakkað á bruggi breysk-
leikans en gegnheilt illmenni hefur hann þó hvergi fundið.
„Þegar maður les gamlar heimildir kemst maður að frámunalega ljótum hlutum. Fólk gerir ekki bara ótrúlega ljóta
hluti í skáldskap,“ segir Guðmundur djákni Brynjólfsson um leitina að hinu algera illmenni. MYND/DAGUR GUNNARS
ÞAÐ YRÐI AFTUR Á
MÓTI YFIRGENGI-
LEGUR HARMLEIKUR EF EYJ-
ÓLFUR SÝSLUMAÐUR FÆRI AÐ
DREKKA Í GEGNUM MIG.
EITRAÐA BARNIÐ
Sögusviðið er Eyrarbakki um
aldamótin 1900 þar sem til
leiks mætir ungur og óreyndur
sýslumaður, Eyjólfur Jónsson.
Óöruggur reynir hann að ná fót-
festu í spilltri brennivínsveröld
fátækra Árnesinga hvar einnig
eru frek til fjörsins, með ólíku
móti þó, hinn misheppnaði
sýsluskrifari Kár Ketilsson og
bjargvætturinn Anna sýslu-
mannsfrú.
ÞÖGLA BARNIÐ
Saga Eyjólfs sýslumanns heldur
áfram þegar hann rannsakar
morð á Vatnsleysuströnd og
þótt þar láti menn sem þeir viti
allt um morðið er enginn hand-
tekinn. Rannsókn Eyjólfs fléttast
saman við atburði í Lundúnum
hvar sýsluskrifarinn Kár leynist
og lætur ekkert gott af sér leiða.
1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð