Fréttablaðið - 21.12.2019, Side 2
Ég er sennilega
meiri Íslendingur
núna en þegar ég flutti út.
Jón Páll Halldórsson teiknari
Veður
Norðaustan 10-18 m/s, en 15-20
NV-til og einnig á SA-landi í kvöld.
Snjókoma N- og A-lands. Léttir til
sunnan heiða. SJÁ SÍÐU 42
Skreytum hús með greinum grænum
Fjöldi landsmanna leggur nú um helgina lokahönd á undirbúning jólanna, kaupir síðustu gjafirnar og matföng enda stutt til jóla. Lifandi jólatré
hafa lengi prýtt híbýli hér á landi og ef að líkum lætur verður svo enn um hríð. Sumir fara og höggva sitt tré, á meðan aðrir kjósa að kaupa tré. Ljós-
myndari Fréttablaðsins kom við hjá Flugbjörgunarsveinni í gær þar sem verið var að pakka tré fyrir viðskiptavin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
MENNING Jón Páll Halldórsson, sem
er 45 ára gamall, hefur búið í Barce-
lona í rúm 7 ár ásamt fjölskyldu
sinni. Lengst af hefur hann starfað
á húðflúrstofu, en einnig starfað við
húsaendurbætur með eiginkonu
sinni og unnið að gerð Vargaldar.
Upphaflega átti dvölin að vera eitt
ár en Jón segir að ekkert fararsnið
sé á þeim og að þau hafi keypt sér
hús í borginni.
Vargöld er samstarfsverkefni
Jóns Páls og æskufélaga hans, Þór-
halls Arnórssonar og Andra Sveins-
sonar. Þórhallur semur söguna, Jón
Páll teiknar myndirnar og Andri
framleiðir. Fyrsta bókin af þremur
kom út árið 2016, sem var tilnefnd
til íslensku bókmenntaverðlaun-
anna, og nú bók númer tvö. Jón Páll
og Þórhallur hafa unnið að ýmsum
verkefnum í gegnum tíðina, til
dæmis við gerð Latabæjar, en Þór-
hallur hafði verið með Vargöld í
maganum um margra ára skeið.
Árið 2013 tóku þeir loks af skarið.
„Upphaflega hugmyndin var að
taka Edduna og aðrar heimildir og
segja sögu goðafræðinnar frá sköp-
un heimsins til ragnaraka,“ segir
Jón Páll. „En á teikni- og skrif borð-
inu þróaðist þetta út í að tvinna
goðafræðina við skáldaða sögu af
víkingnum Vikari, sem sestur er í
helgan stein en dregst út í hefndir
og dæmigert víkingavesen.“
Þó að saga Vikars sé skálduð
ákváðu Jón Páll og Þórhallur að
hafa goðafræðina sjálfa sem rétt-
asta. Þekkja þeir heimildirnar báðir
mjög vel, Þórhallur nam fræðin við
Háskóla Íslands og Jón Páll er með-
limur í Ásatrúarfélaginu.
Jón Páll segir goðafræðina ákaf-
lega heillandi og að tengingin við
nútímann sé sterk. „Þarna eru svo
margar skemmtilegar og breyskar
persónur. Þór sem er mjög öflugur
og skapmikill en ekki beittasti hníf-
urinn í skúffunni og Óðinn hinn
alvitri og klóki sem reynir að halda
heiminum í jafnvægi á meðan allt er
að hrynja úr höndunum á honum,“
segir hann. Uppáhaldspersónan er
hins vegar hinn slægi Loki. „Loki er
svo frábær týpa. Hann er alltaf að
reyna að redda rassinum á sjálfum
sér og í hvert sinn sem hann gerir
góðverk gerir hann hlutina verri.
Það er samt skemmtilegast að
teikna Þór.“
Aðspurður hvort auðvelt sé að
viðhalda tengingunni við hina
fornu arfleið í steikjandi Spánarhit-
anum segir Jón Páll það auðveldara
en á Íslandi. „Fjarlægðin gerir fjöllin
blá. Ég er sennilega meiri Íslending-
ur núna en þegar ég f lutti út,“ segir
hann.
Í kjölfar útgáfunnar ætla Jón Páll
og Þórhallur að kanna grundvöll
fyrir erlenda útgáfu, en bækurnar
hafa nú þegar komið út á enskri
tungu hér á Íslandi. Þeir eru einn-
ig þegar farnir að huga að því sem
tekur við eftir þriðju bókina. „Þá
ætlum við að taka ragnarökin sjálf
fyrir og jafnvel Íslendingasögurnar
líka,“ segir hann.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Tengsl goðafræðinnar
við nútímann sterk
Húðflúrlistamaðurinn Jón Páll Halldórsson og Þórhallur Arnórsson gáfu út
aðra bók í teiknimyndaseríunni um Vargöld fyrir skemmstu. Jón Páll býr í
Barcelona og segir tenginguna við arfleifðina sterkari þar en heima á Fróni.
Jón Páll er búsettur í borginni Barcelona ásamt fjölskyldu sinni.
HAFNARFJÖRÐUR Sigríður Krist-
insdóttir, bæjarlögmaður í Hafnar-
firði, segir ekki rétt sem fram kom
í Fréttablaðinu í gær að svarbréf
Hafnarfjarðarbæjar vegna eftirlits-
myndavéla í skólum til Persónu-
verndar hafi ekki verið lagt fram
í bæjarráði í fyrradag. Bréfsins er
ekki getið í fundargerð og það fylgdi
ekki með sem fylgiskjal á vef bæjar-
ins á fimmtudag.
„Þetta var lagt fram þó það hafi
ekki komið undir fundargerðina
strax. Skanni var í ólagi hjá okkur
þannig að ekki var unnt að setja
skjalið á vefinn strax,“ segir Sigríður
við Fréttablaðið. – gar
Svar var lagt
fram í bæjarráði
OPIÐ ALLAR HELGAR
FRÁ KL. 11.00-17.00
KOMDU Í
KOLAPORTIÐ
D Á S A M L E G D E I L D S A M F É L A G S I N S
30
ÁRA
1989 2019
OPIÐ ÁÞORLÁKSMESSUFRÁ 11-21
Bréfsins var ekki getið í
fundargerðinni og það
fylgdi ekki með sem fylgi-
skjal á vef bæjarins.
VIÐSKIPTI Ferðaáætlanir á annað
hundrað Íslendinga eru í uppnámi
eftir að ferðaskrifstofuleyfi Farvel
var afturkallað af Ferðamálastofu.
Ástæðan var sú að fyrirtækið upp-
fyllti ekki lengur skilyrði laga um
pakkaferðir og samtengda ferðatil-
högun auk þess að hunsa ákvörðun
Ferðamálastofu um hækkun trygg-
ingafjárhæðar.
Farvel, sem áður hét Oriental,
sérhæfði sig í lúxusferðum til fram-
andi landa. Fjölmargir Íslendingar
eru staddir í Austurlöndum fjær
á vegum ferðaskrifstofunnar yfir
jól og áramót. Í tölvu pósti, sem
Ferðamála stofa sendi í gær á ferða-
langa, kem ur fram að Far vel hef ur
ekki greitt f lug fé lög um fyr ir heim-
ferðir viðskiptavina. Þeir þurfa því
að borga heimferð sína sjálfir og í
mörgum tilvikum einnig hótelgist-
inguna þrátt fyrir að hafa greitt fullt
fargjald fyrir brottför.
Sigríður Ingvadóttir er ein þeirra
sem sitja eftir með sárt ennið en hún
hafði greitt inn á ferð með fyrirtæk-
inu til Taílands í byrjun febrúar. „Ég
fór með þeim til Balí á þessu ári og
sú ferð gekk vel. Við bókuðum því
með þeim aftur núna í febrúar og þá
til Taílands. Við þurftum að borga
150 þúsund krónur inn á ferðina og
ég millifærði þá upphæð á ferða-
skrifstofuna. Ég veit ekki enn hvort
það setji mig í verri stöðu varðandi
mögulega endurgreiðslu,“ segir
Sigríður. Hún hyggst leita til Sam-
göngustofu vegna málsins eins og
fjölmargir aðrir sem eru í sömu
stöðu. – bþ
Fall Farvel dýrt
fyrir ferðalanga
Farvel seldi ferðir á framandi slóðir.
2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð