Fréttablaðið - 21.12.2019, Page 18
2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Gefur henni byr undir báða vængi
„Þetta var svakalega flott afrek
hjá henni en hún á þetta svo
sannarlega skilið eftir að hafa
verið að ná sér af meiðslunum.
Að fara til Ítalíu á mót af þessari
stærðargráðu og komast strax
á verðlaunapall og fylgja því
eftir með því að ná níunda sæti
á sterkara móti viku síðar,“ sagði
Grímur Rúnarsson, landsliðs-
þjálfari Íslands í alpagreinum,
aðspurður út í afrek Kötlu.
Aðspurður tók Grímur undir
það að það hefði komið honum
á óvart hversu fljótt hún væri
komin aftur í fremstu röð.
„Í hreinskilni átti maður ekki
von á því að hún næði strax
þessum árangri en þetta er
viðurkenning á allri þeirri vinnu
sem hún lagði á sig í endurhæf-
ingunni. Hún var þarna að upp-
skera eftir allt erfiðið sem hún
hefur lagt á sig undanfarið ár.“
Grímur segist fylgjast vand-
lega með uppgangi Kötlu.
„Hún er afar efnileg og slær
ekkert slöku við. Hún æfir á
fullu og er með gott bakland
úr skíðafjölskyldu. Það eru
engar ástæður til þess að halda
annað en að hún geti náð langt
í framtíðinni. Þetta gefur henni
byr undir báða vængi snemma
á tímabilinu,“ sagði landsliðs-
þjálfarinn enn fremur.
SKÍÐI Katla Björg Dagbjartsdóttir
var ekki lengi að láta að sér kveða
þegar hún lenti í öðru sæti á alþjóð-
legu FIS-móti í svigi á Ítalíu á dög-
unum stuttu eftir að hafa náð sér af
meiðslum. Hin tvítuga Katla, sem er
frá Akureyri, fylgdi því eftir með því
að ná níunda sæti á öðru FIS-móti
viku síðar. Hún var komin aftur
til Íslands þegar Fréttablaðið náði
í hana eftir að hafa verið í fjög-
urra vikna æfingabúðum á Ítalíu
þar sem hún tók þátt í mótunum
tveimur og var skiljanlega stolt af
árangrinum. „Þetta var ótrúlega
skemmtilegt, ég átti ekki von á því
að ná svona góðum árangri strax þó
að maður stefni auðvitað hátt,“ segir
Katla, aðspurð hvort árangurinn
hafi farið fram úr væntingum.
„Þessi ferð var góð til að sýna
manni hvar maður stendur en silfrið
stendur upp úr í þessari ferð þó að
níunda sætið viku síðar hafi skilað
f leiri FIS-stigum heldur en annað
sætið,“ segir Katla og heldur áfram:
„Ég var búin að eiga svolítið erfitt
með að ná tökum á sviginu dag-
ana fyrir mótið enda í raun enn þá
að stíga upp úr meiðslum. Ég meidd-
ist illa í janúar þegar ég datt á móti
í Svíþjóð. Við það fékk ég beinmar
í hnénu, tognaði á liðbandi og það
kom erting á liðþófann. Ég finn enn
þá til en þetta er mun betra. Fyrir
vikið náði ég í raun lítið sem ekkert
að æfa seinni hluta síðasta tíma-
bils. Það var erfitt að fara aftur
af stað í haust en það small allt
þarna í Monte Croce. Auðvitað er
maður alltaf með háleit markmið
og keppnisskap en ég fann ekki
fyrir pressu fyrir mótið. Þar voru
78 þátttakendur og ég átti ekki von
á að komast á verðlaunapall strax.“
Katla leggur áherslu á svig en
keppir líka í stórsvigi.
„Við kepptum bara í svigi á Ítalíu.
Ég einbeiti mér að sviginu frekar en
stórsvigi, það gengur ekki jafn vel í
stórsviginu og það er ekkert leynd-
armál að það er erfiðara að æfa stór-
svig á Íslandi. Við æfum mun meira
svig á Íslandi.“
Katla kemur úr mikilli skíða-
fjölskyldu. Systur hennar, Tinna
og Hrefna, eru báðar fyrrverandi
landsliðskonur í íþróttinni og
stefnir Katla á að komast í lands-
liðið á næstu árum.
„Skíðin eru mitt líf og yndi og ég
hef æft frá barnsaldri. Systur mínar,
Tinna og Hrefna, voru báðar í lands-
liðinu og eru mér miklar fyrirmynd-
ir og hvetja mig áfram líkt og bróðir
minn sem æfði skíði. Það má því
segja að þetta sé okkur í blóð borið.
Foreldrar okkar æfðu ekki skíði
en eru mjög áhugasöm og stunda
skíðamennsku. Þau eru dugleg að
Skíðaíþróttin
í blóð borin
Katla Björg Dagbjartsdóttir náði öðru sæti á al-
þjóðlegu FIS-móti á dögunum og er öll að ná fyrri
styrk eftir meiðsli. Katla kemur úr mikilli skíðafjöl-
skyldu og stefnir á að komast í landsliðið og síðar
að keppa á stærstu mótum heims einn daginn.
Georg Fannar Þórðarson og Katla Björg Dagbjartsdóttir voru fulltrúar Íslands í æfingabúðum FIS á Ítalíu á dögunum þar sem þau tóku þátt í tveimur mótum. MYND/SKÍÐASAMBAND ÍSLANDS
Katla Björg, hér til hægri, ferðast reglulega í æfinga- og keppnisferðir.. Katla er yngst fjögurra systkina.
koma og styðja við bakið á mér þótt
það þurfi stundum að halda aftur af
þeim,“ segir Katla hlæjandi.
Hún segir ekki á dagskrá að fara
til Bandaríkjanna í háskóla á skíða-
styrk eins og algengt er hjá íslensku
skíðafólki.
„Ég hef ekkert verið að skoða það.
Ég er svo heimakær að mig langar
eiginlega meira að vera áfram hér
heima og fara reglulega utan til að
keppa. Ég er með háleit markmið
um að ná langt en ég vil geta komið
heim þess á milli. Fólk hefur furðað
sig á því og það stendur til boða að
fara til Bandaríkjanna í nám og að
æfa skíði með náminu en ég vil geta
verið heima,“ segir Katla sem æfir
við hvert tækifæri á Akureyri.
„Það eru æfingar flesta daga vik-
unnar, f lestar þeirra uppi í brekku
en líka í ræktinni. Þegar það er
opið í brekkunni er maður að æfa
en þegar það er lokað er maður
í styrktaræfingum að byggja sig
upp en auðvitað kemur hvíld inn á
milli. Ef það eru góðar aðstæður fer
maður upp í fjall.“
Aðspurð segir Katla, sem fagn-
aði tvítugsafmæli fyrr á þessu ári,
fyrsta markmiðið vera að gera
atlögu að sæti í landsliðinu og
vinna titla á Íslandi áður en horft
er lengra.
„Fyrsta markmið er að reyna við
bikar- og Íslandsmeistaratitilinn
í svigi hér heima, bæta stöðuna
á heimslistanum og brjóta mér
leið inn í landsliðið. Svo er maður
alltaf með augun opin fyrir mótum
erlendis og einn daginn er mark-
miðið að komast á Ólympíuleikana
og heimsmeistaramótið.“
kristinnpall@frettabladid.is