Fréttablaðið - 21.12.2019, Side 24

Fréttablaðið - 21.12.2019, Side 24
VISSULEGA ER DAUÐINN EÐLILEGUR HLUTI AF LÍFINU OG ÞAÐ ÆTTI AÐ VERA AUÐVELT OG EÐLI- LEGT AÐ TALA UM HANN. Ef við ætlum að virkilega að undirbúa börnin okkar undir líf ið þá verðum við að fjalla um allar hliðar þess, segir Bergrún Íris Sævars­ dóttir, rithöfundur og teiknari. Jólin eru sá tími árs sem reynist mörgum sem hafa misst ástvin erf­ iður. Foreldrum hættir til þess að reyna að hlífa börnum sínum við f lóknum og erfiðum tilfinningum sem tengjast missi og sorg. Bergrún Íris segir foreldra vilja hlífa börnum sínum við sársauka. En það geri þeir ekki með þögninni. Dauðinn sé jafn eðlilegur hluti af lífinu og það að fæðast. „Vissulega er dauðinn eðlilegur hluti af lífinu og það ætti að vera auðvelt og eðlilegt að tala um hann en á sama tíma er umræðuefnið við­ kvæmt. Maður vill auðvitað hlífa börnunum sínum við sársauka og þess vegna þurfum við að kenna þeim að hlífa sér,“ segir Bergrún. „Við hlífum þeim ekki við sársauka með því að senda þau hjálmlaus út að hjóla og þetta er hjálmurinn sem við getum gefið þeim í lífinu. Sagt þeim það sem við vitum. Að líkaminn verði eftir og að allir deyi einhvern tímann en dauð­ anum fylgir auðvitað mikil óvissa.“ Vandmeðfarið umræðuefni Dauðinn kemur við sögu í nýrri bók Bergrúnar. „Ég vissi alltaf að þetta myndi fara þannig að hann myndi deyja í þriðju bókinni,“ segir Berg­ rún. Hún hefur skrifað fjölda barna­ bóka og myndskreytt enn f leiri. Nýjasta bókin hennar, Langelstur að eilífu, er sú þriðja í röð bókanna um vinina Rögnvald og Eyju. Bókaröðin fjallar um hina sex ára Eyju sem kynnist Rögnvaldi þegar hún byrjar í fyrsta bekk. Hann er níutíu árum eldri en Eyja en þrátt fyrir mikinn aldursmun tekst með þeim mikil og sterk vinátta. Í síð­ ustu bókinni deyr Rögnvaldur sem þá er orðinn 97 ára gamall. „Ég vissi alltaf að ég myndi vilja skrifa bók þar sem ég fylgi barni í gegnum það að missa besta vin sinn og þarna hafði ég svo ótrúlega gott tækifæri til þess án þess að fjalla um barn deyja,“ segir Bergrún. „Dauðinn er vandmeðfar ið umræðuefni,“ segir Bergrún. „Ég vildi vanda mig mikið og ég spurði marga álits, svo sem presta, sálfræð­ inga, börn og foreldra.“ Hún fékk jákvæð viðbrögð úr öllum áttum og fólk tók því fagn­ andi að Bergrún skyldi fjalla um dauðann í barnabók. „Þegar ég fékk svona jákvæð viðbrögð varð ég enn meira viss um að ég væri að gera rétt með því að fjalla um dauðann og tilfinningarnar sem honum fylgja og mér fannst það ekki viðkvæmt. Svo þegar bókin kom út fékk ég smá hnút í magann og hugsaði með mér hvað ég væri að gera öllum börn­ unum sem myndu lesa,“ segir hún. Lífið ekki dans á rósum Ertu þá að meina að þú hafir sett börnin í þær aðstæður að upplifa sorg sem þau hefðu annars ekki þurft að upplifa? „Já, af því að mörg börn þekkja Eyju og Rögnvald. Svo tek ég ákvörðun um það að Rögnvaldur þurfi að deyja og að þau þurfi að þola það, en ég komst yfir þessa til­ finningu enda trúi ég því að bókin sé mikilvæg,“ segir Bergrún. Í bókaröðinni og í mörgum af bókunum þínum eru ýmsir þættir Þögnin er ekki til góðs Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og teiknari, settist niður með blaðamanni og ræddi um dauðann og það hvernig bókmenntir geta reynst öflugt tæki fyrir börn til að koma hugsunum sínum og tilfinningum í orð. Bergrún hefur skrifað og myndskreytt fjölda barna- bóka. Hún seg- ist leggja mikið upp úr því að tala hreinskilið og opinskátt við börn í bókum sínum. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR sem gætu talist sorglegir og jafnvel hræðilegir. Eyja á ekki vini í upphafi og stríðni kemur fyrir svo dæmi séu tekin. Finnst þér það vera allt öðru- vísi harmleikur en dauðinn? „Nei, í rauninni ekki og ég held að það sé rauður þráður í öllum bókun­ um mínum að tala hreinskilnislega og opið um alla hluti því að lífið er auðvitað ekki alltaf dans á rósum,“ segir Bergrún. „Bækurnar eru samt gamanbæk­ ur og þrátt fyrir dauðann er mikið grín inni á milli. Rögnvaldur og Eyja gera lista yfir hluti sem hann á eftir að gera áður en hann deyr. Eins og að hoppa á trampólíni, fara í vatns­ rennibraut og í fallhlífarstökk. Við fáum að fylgjast með þeim fikra sig niður listann á sama tíma og það styttist í dauðann hjá honum,“ segir hún. Í bókinni skína tilf inningar Eyju í gegnum skrif Bergrúnar og lesandinn upplifir mikla samúð með henni. „Eyja stendur á miklum tímamótum því að á sama tíma og hún fær að vita að það styttist í annan endann hjá Rögnvaldi fær hún að vita að hún sé að verða stóra systir,“ segir Bergrún. „Hún er ekki ánægð með þessar fréttir. Hvorki um dauðann né nýja lífið sem er að kvikna. Hún er einka­ barn og finnst gott að eiga foreldra sína út af fyrir sig en líður eins og það sé ætlast til þess að hún eigi að vera ánægð með það að eignast systkini,“ segir hún. Ætlum börnum tilfinningar „Það truf lar mig hvernig við sem samfélag tölum alltaf við börn eins og þau séu spegilmynd af okkur. Í staðinn fyrir að spyrja þau hvað þeim finnst eða hvernig þeim líður þá ætlum við þeim einhverjar til­ finningar. Við spyrjum þau hvort Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn@frettabladid.is 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.