Fréttablaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 28
Fíkniefnið spice hefur gert vart við sig meðal hópa ungmenna í öllum hverfum. Ráðgjafar hjá Foreldrahúsi vilja að for-eldrar þekki viðvörunar-
merkin og einkenni neyslu unglinga
sem hægt er að bera kennsl á í sam-
verunni sem fylgir jólunum.
Fyrir marga unglinga eru jólin
tími þar sem sólarhringnum er
fullkomlega snúið á haus. Um leið
er aðfanga- og jóladagur sá tími árs-
ins sem margir foreldrar verja helst
í náin samskipti við unglinginn og
taka þá margir eftir merkjum sem
ekki hafa verið augljós fram að því.
Jólin eru erilsamur tími hjá ráðgjöf-
um Foreldrahúss, samtökum sem
hafa aðstoðað foreldra ungmenna í
neyslu síðustu þrjá áratugina. Fyrir
utan hefðbundna áfengisneyslu er
komin inn í myndina mikil kókaín-
neysla ungmenna og nýtt fíkniefni,
spice, er farið að gera vart við sig
meðal grunnskólanemenda.
Spice í öllum hverfum
„Fyrir tveimur árum kom fyrsta
tilfelli spice inn til okkar. Þau voru
einhver í fyrra, en það var ekki fyrr
en í haust að þetta byrjaði að vera
algengt. Nú getum við fullyrt að
spice er komið í almenna dreifingu
meðal ungmenna. Við erum að
heyra af spice í öllum hverfum,“
segir Berglind Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Foreldrahúss. Símtöl-
in sem berast eru iðulega á þá leið að
foreldri veit ekki hvað barnið þess
hefur tekið inn. Helstu einkenni
ofneyslu eru krampaköst, and-
nauð og jafnvel geðrof. „Svarið mitt
er alltaf: Farðu á bráðamóttökuna
strax eða hringdu á sjúkrabíl.“
Spice er eitt erf iðasta efnið
sem lögreglan fæst við um þessar
mundir. Síðustu ár hefur neyslan
verið mest áberandi á Litla-Hrauni
en nýverið hefur efnið verið að finn-
ast í rafrettum hjá unglingum.
Spice telst til „nýmyndaðra
kannabínóíða“, þá er efnafræði
beitt til að búa til vímugjafa. Fram-
leiðendurnir eru sífellt að breyta
efnunum sem þýðir að notendurnir
geta ekki vitað hvað þeir setja ofan
í sig. Hafa komið upp mörg tilfelli
ofneyslu á Litla-Hrauni. Við krufn-
ingu á fanga sem lést síðla sumars
fannst mikið af fíkniefninu.
„Fangar á Litla-Hrauni kunna
ekki að umgangast efnið, hvað þá
unglingar. Þótt þeir haldi að þeir
viti ýmislegt um efnið, þá geta geta
þeir sannarlega farið sér að voða,“
segir Berglind.
HELSTU EINKENNI
OFNEYSLU ERU KRAMPA-
KÖST, ANDNAUÐ OG
JAFNVEL GEÐROF.
Viðvörunarbjöllur
hringja á jólum
Fíkniefnið spice hefur gert vart við sig meðal hópa ungmenna í
öllum hverfum. Ráðgjafar hjá Foreldrahúsi vilja að foreldrar þekki
viðvörunarmerkin og einkenni neyslu unglinga sem hægt er að
bera kennsl á í samverunni sem fylgir jólunum.
Ráðgjafar Foreldrahúss hafa margsinnis heyrt frásagnir foreldra af tíðum göngutúrum ungmenna sem þau föttuðu ekki fyrr en síðar að voru notaðir til neyslu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Berglind Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Foreldrahúss.
„Það sem gerir þetta verra er
að þetta er svo lítið, þetta er ekki
eins og poki af grasi, þetta er glær,
lyktarlaus vökvi,“ segir Guðrún B.
Ágústsdóttir ráðgjafi. „Það er erfitt
að greina þetta í þvagi, krakkarnir
vita það.“
Einkenni neyslu
Ráðgjafar Foreldrahúss hafa sótt sér
þekkingu víða að um spice sem bæt-
ist ofan á það sem þau heyra í við-
tölum við skjólstæðinga sína. „Við
erum helst að heyra af þessu í veipi,“
segir Berglind. Guðrún bætir við að
Ari
Brynjólfsson
arib@frettabladid.is
2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð