Fréttablaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 29
EF ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ LEYFA ÞEIM AÐ VERA Í LAUSA- GANGI OG GISTA HVAR SEM ER Í EINHVERN TÍMA ÞÁ VERÐA KRAKKARNIR AUÐVITAÐ DRULLUFÚLIR ÞEGAR ÞETTA ER TEKIÐ AF ÞEIM. dæmi séu um að dropi af spice sé settur í drykk eða jafnvel í nammi. „Stundum er þetta ekki einu sinni viljandi, krakkar geta verið algjörir bjánar. Kannski eru foreldrarnir búnir að taka af þeim veipið, þá biðja þau um smók hjá öðrum. Þau vita ekki alltaf hvort það er kanna- bisvökvi eða spice í þessu sem þau eru að fá að smakka,“ segir Guðrún. „Þar sem erfitt reynist að mæla þetta í þvagi, þá þurfa foreldrar að vera á varðbergi fyrir öðrum hlutum sem gefa til kynna að ekki sé allt með felldu. Sérstaklega ef það hafa verið tengslarof á einhverjum tíma á undan, skipt um skóla, hætt í íþróttum eða skilnaður.“ Einkenni neyslu eru þó ávallt svipuð sama hvaða efni er notað. Sama á við um hver viðbrögð for- eldra eiga að vera þegar þau grunar að unglingurinn á heimilinu sé kominn í ógöngur. Guðrún segir að nýir vinir í öðru hverfi séu fyrstu viðvörunarbjöllurnar. „Hvað eru þau að gera í allt öðru hverfi? Hvern eru þau að hitta? Hvað er unglingur- inn að gera?“ Foreldrasamtal Það er aldrei of seint að koma ung- menni til hjálpar ef það fer út af sporinu. Guðrún segir að það fyrsta sem þurfi að gera sé að stöðva lausa- ganginn. „Þau eiga að vera í hverfinu sínu, ekki fara í annan bæjarhluta nema þú vitir nákvæmlega hvað þau eru að gera. Þau eiga að koma heim í mat,“ segir Guðrún. „Svo að taka fyrir allar þessar gistingar. Sér- staklega ef það er einhver sem þau myndu aldrei bjóða heim í mat.“ Slíkar aðgerðir geta þó skapað samskiptavanda til skamms tíma. „Ef það er búið að leyfa þeim að vera í lausagangi og gista hvar sem er í einhvern tíma þá verða krakkarnir auðvitað drullufúlir þegar þetta er tekið af þeim. Sum geta orðið alveg brjáluð. Það þarf einfaldlega að grípa inn í strax og eitthvað kemur upp,“ segir Guðrún. Berglind segir farsælast að leyfa hlutunum ekki að fara á þann stað. „Við erum að tala um áttundu og níundu bekkinga. Það er full- snemmt að leyfa þeim að gera hvað sem er. Og ekki leyfa þeim að veipa.“ Inn í þetta spilar líka að hvert heimili er með sérstakar reglur. „Á hinum Norðurlöndunum er þetta oft tæklað með þar til gerðum for- eldrasáttmála. Þá hittast foreldrar í skólanum á haustin og leggja lín- urnar fyrir veturinn,“ segir Bergl- ind. „Þá ákveða foreldrar í samein- ingu hvernig gistingar eiga að ganga fyrir sig, hvernig útivistartími eigi að vera og jafnvel tölvuleikir.“ Guðrún segir slíkt fyrirkomulag geta skipt sköpum. „Það er kominn vísir að þessu í nokkrum skólum hér á landi. Það mætti alveg gera meira af þessu.“ Þær mæla með og þekkja til sam- vinnu milli foreldra þegar börnin hafa lent út af sporinu. Í síðustu viku heimsótti Guðrún skóla á höfuðborgarsvæðinu til að ræða við foreldra. „Ég er iðulega beðin um að koma þegar upp eru komin vand- ræði, sjaldan áður en vandamálin byrja. Það mættu nítján foreldrar af tvö hundruð og fimmtíu,“ segir Guðrún. „Þau sem mættu höfðu ekki neinar áhyggjur af sínum börnum. Það er algeng mýta að börn OPNUNARTÍMAR UM HÁTÍÐIRNAR Vínbúðirnar höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Reykjanesbæ og Selfossi Laugardagur 28. desember 11.00 - 18.00 Sunnudagur 29. desember Lokað Mánudagur 30. desember 10.00 - 19.00 Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur 10.00 - 20.00 Þriðjudagur 31. des. – gamlársdagur 9.00 - 14.00 Miðvikudagur 1. janúar – nýársdagur Lokað Fimmtudagur 2. janúar 11.00 - 18.00 Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur 10.00 - 20.00 Laugardagur 21. desember 11.00 - 18.00 Sunnudagur 22. desember Lokað Mánudagur 23. des. – Þorláksmessa 10.00 - 22.00 Þriðjudagur 24. des. – aðfangadagur 9.00 - 13.00 Miðvikudagur 25. des. – jóladagur Lokað Fimmtudagur 26. des. – annar í jólum Lokað Föstudagur 27. desember 11.00 - 19.00 Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur 10.00 - 20.00 Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is Við minnum á að áfengiskaupaaldurinn á Íslandi er 20 ár og biðjum fólk að hafa skilríki meðferðis. E N N E M M / S ÍA / N M 9 6 58 6 í vanda komi eitthvað frekar frá einhverjum vandræðaheimilum. Ég segi við þá foreldra: Það er hætt við smiti og þetta getur haft áhrif á ykkar börn. Það skiptir engu þó að barnið þitt hafi aldrei lent í veseni. Þið munið alltaf græða á því að vera í góðum samskiptum við aðra for- eldra.“ Göngu-Hrólfar Annað merki um að unglingar séu komin í vafasaman félagsskap er tilhneiging þeirra til að vera lítið heima og vilja helst ekki taka þátt í neinu sem tengist fjölskyldunni. Ungmenni sem eru á byrjunar- reit í neyslu skila sér oftast heim á aðfangadag, þó eru mörg tilfelli um að foreldrar þurfi að sækja börnin á ókunna staði eða viti jafnvel ekki hvar þau eru yfir hátíðarnar. Á tímum þar sem foreldrar hafa takmarkaðan tíma til að sinna börnunum, verja kannski tveimur tímum á dag í nánum samvistum við þau, þá geta það verið viðbrigði að hafa unglinginn heima allan daginn og með fjölskyldunni allt kvöldið. Það eru ýmis merki sem foreldrar sem gruna ungmennið um neyslu geta tekið eftir. „Ef þau eru alltaf að fara eitthvað, hverfa kannski í fimm eða tíu mín- útur,“ segir Guðrún. Berglind skýtur inn: „Sum vilja fara ein í göngutúr eftir matinn og svo aftur eftir að búið er að opna pakkanna.“ Guðrún skellir upp úr: „Það er mikið um svona Göngu-Hrólfa.“ „Þetta eru hlutir sem foreldrar áttuðu sig ekki á fyrr en síðar, hvað þau voru að gera í þessum göngu- ferðum,“ segir Berglind. Önnur einkennandi hegðun er þegar unglingurinn er í símanum nánast allt kvöldið. Það þarf þó ekki að vera að mikil símanotkun þurfi endilega að þýða að eitthvað vafa- samt sé í gangi, það kann að vera að unglingnum einfaldlega leiðist. Edrú á gamlárskvöld Unglingar geta verið duglegir að nota skólafríið milli jóla og nýárs til að lyfta sér upp. „Margir eru snemma að snúa sólarhringnum við, stundum strax fyrsta daginn í fríi. „Eftirlitslaus partý eru mjög algeng milli jóla og nýárs,“ segir Guðrún. Gamlárskvöld eru mjög vinsæl til að skemmta sér. Á það bæði við um foreldra og ungmenni. „Þetta er kvöldið þar sem annað eða báðir foreldrar verða að vera edrú,“ segir Berglind. „Svo er alltaf gullna ráðið, að vera búin að spyrja hvort vinirnir séu að fara að hittast og ef svo er að bjóða þeim heim og hafa gamlárskvöld skemmtilegt kvöld með fjölskyldu og vinum.“ H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 29L A U G A R D A G U R 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.