Fréttablaðið - 21.12.2019, Side 38
Bylgja Dís Gunnarsdóttir er fræðslu- og æskulýðsfulltrúi í Hafnarfjarðarkirkju og segir
starfið gefandi og skemmtilegt.
Hún sér um sunnudagaskólann,
starf fyrir tíu til tólf ára krakka,
fermingarfræðslu, Facebook-síðu
kirkjunnar og ýmis tilfallandi
verkefni. „Kirkjan gengur út á
tengsl og fólk og í vinnunni fæ ég
að syngja, segja sögur og íhuga. Í
starfi mínu með börnum legg ég
mikið upp úr því að þau upplifi
kyrrð og ró, frið og helgi, í bland
við leiki og fjör, en á þeirra for-
sendum. Mér finnst mikilvægt að
börnin hugsi sjálfstætt og byggi
upp sína eigin trú,“ segir Bylgja
Dís, sem einnig hefur kennt söng
og stjórnað barnakórum. „Þegar ég
hóf störf hjá Hafnarfjarðarkirkju
hélt ég að það yrði erfiðast að
sinna fermingarfræðslunni en það
kom mér ánægjulega á óvart hvað
það er rosalega skemmtilegt. Það
er svo gaman að vera með ungling-
unum og kenna þeim ýmislegt um
gildi, styrkleika og tilfinningar
og heyra um leið hvað þau eru að
hugsa og hvað þetta kallar fram
hjá þeim,“ segir Bylgja Dís, sem á
tvö börn, sem bæði eru uppkomin.
Bylgja Dís segir aðventuna
vissulega hafa verið annasama
en um leið afar ánægjulega. „Ég er
mikil rólegheitakona. Auðvitað
finn ég stundum fyrir stressi og
kvíða fyrir jólin líkt og margir
aðrir en ég fæ líka rosalega mikið
út úr því að vera með fólki og þess
vegna er ég svo ánægð í minni
vinnu. Börn eru svo skemmtilegur
félagsskapur. Ég held að börn
þurfi á því að halda að fullorðnir
gefi sér tíma fyrir þau, hlusti á þau
og heyri hvað þau vilja gera. Þau
þurfa að finna að fólk taki þeim
eins og þau eru. Mér finnst mikil-
vægt að börn upplifi kirkjuna
sem stað þar sem þau mega vera
þau sjálf, þar sem þau þurfa ekki
að ganga í augun á einhverjum,
eða einhver sé að dæma eða meta
þau,“ segir Bylgja Dís og bætir við
að það sama gildi um hina full-
orðnu og kirkjuna.
Þegar Bylgja Dís er innt eftir
því hvort hún hafi alltaf verið
trúuð segist hún sennilega hafa
fæðst trúuð. „Ég held ég hafi það í
genunum. Ég man bara eftir mér
sem lítilli stelpu að syngja sálma
og biðja bænir. Ég tók mikinn þátt
í starfi KFUK þegar ég var að alast
upp í Keflavík og ólst upp í því að
heyra sögur, syngja, búa til leikrit
og fleira í þeim anda sem barna-
starf kirkjunnar byggir á.“
Syngur í messu
hjá eiginmanninum
Bylgja Dís er gift sr. Henning Emil
Magnússyni, presti í Garðabæ.
Þau hjónin fara alltaf til foreldra
hennar í Njarðvíkum og verja
aðfangadagskvöldi með þeim og
systkinum Bylgju Dísar. „Messu-
haldið stjórnar borðhaldinu.
Oft þarf fjölskyldan að bíða eftir
okkur því ýmist er Henning að
messa á aðfangadag eða ég að
syngja við messu, nema hvort
tveggja sé. Í fyrra var Henning
t.d. með miðnæturmessu og þá
borðuðum við jólamatinn fyrr en
vanalega. Í ár fer ég í jólamessu
í Vídalínskirkju hjá Henning á
aðfangadag. Svo skemmtilega vill
til að á jóladag syng ég í messu
hjá honum og síðan messar hann
á hjúkrunarheimilinu Ísafold í
Garðabæ og ég syng. Á jóladag
förum við til móðurfjölskyldu
Hennings en um áramótin ætlum
við hjónin að breyta til og verja
áramótunum í Amsterdam,“
segir Bylgja Dís þegar hún er
spurð hvort hún hafi fastar jóla-
hefðir. „Síðan hefur myndast sú
hefð að við Henning og nokkrir
vinir okkar, sem eru með okkur
í íhugunarstarfi og kyrrðarbæn,
hittumst á milli jóla og nýárs til
að sitja saman í þögninni og íhuga
saman. Það er sérlega gefandi
og dásamlegt. Við höfum verið
með íhugunarguðsþjónustur
síðustu vetur, ásamt sr. Hjalta Jóni
Sverrissyni, presti í Laugarnes-
kirkju, þar sem íhugun og kyrrð
er megininntakið. Þessi guðsþjón-
usta er á sunnudagskvöldum í
hinum ýmsu kirkjum, þó aðallega
í Laugarneskirkju og Vídalíns-
kirkju,“ segir Bylgja Dís að lokum.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Bylgja Dís segist leggja mikið upp úr því með börnunum að þau upplifi
kyrrð og ró, í bland við leiki, en á þeirra forsendum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Messuhaldið stjórnar borðhaldinu
Bylgja Dís Gunnarsdóttir, söngkona og fræðslu- og æskulýðsfulltrúi, leggur mikið upp úr íhugun og
kyrrð á aðventunni. Hún syngur við messu á jóladag en ætlar að verja áramótunum í útlöndum.
Hallgrímskirkja
jól og áramót
24. desember, aðfangadagur
Kl. 18.00 aftansöngur
Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar
og þjónar fyrir altari.
Mótettukór Hallgrímskirkju, stjórnandi
Hörður Áskelsson.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson sem
einnig leikur jólatónlist á undan athöfn.
Jólabarnakór Hallgrímskirkju syngur undir
stjórn Ragnheiðar Bjarnadóttur.
24. desember, aðfangadagur
Kl. 23.30 hátíðarguðsþjónusta á
jólanótt
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar
og þjónar fyrir altari.
Schola cantorum syngur, stjórnandi Hörður
Áskelsson.
Forsöngvari Helgi Steinar Helgason.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson sem
einnig leikur jólatónlist á undan athöfn.
25. desember, jóladagur
Kl. 14.00 hátíðarguðsþjónusta
Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar
og þjónar fyrir altari.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Einsöngur, Snæfríður Björnsdóttir.
26. desember, annar í jólum
Kl. 14.00 jólasöngvar og lestrar
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar
fyrir altari.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur.
Organisti er Sólveig Anna Aradóttir.
Stjórnandi Hörður Áskelsson.
Lesarar úr hópi kórfélaga og messuþjóna.
29. desember
Kl. 11.00 messa
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða.
Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja.
Organisti er Sólveig Anna Aradóttir..
29. desember
Kl. 14.00 guðsþjónusta á ensku
Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar
fyrir altari.
Organisti er Sólveig Anna Aradóttir.
31. desember, gamlársdagur
Kl. 18.00 aftansöngur
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og dr. Sigurður
Árni Þórðarson þjóna. Messuþjónar
aðstoða.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir
stjórn Harðar Áskelssonar.
Einsöngur Ásta Marý Stefánsdóttir.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
1. janúar, nýársdagur
Kl. 14.00 hátíðarguðsþjónusta
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti
er Björn Steinar Sólbergsson.
www.hallgrimskirkja.is
Allir velkomnir
2 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RGUÐSÞJÓNUSTUR UM JÓL OG ÁRAMÓT