Fréttablaðið - 21.12.2019, Side 44
Verkefnastjóri í upplýsingatækni - Nýsköpunarmiðja menntamála
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir laust til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra í upplýsingatækni til þriggja
ára. Starfið felst í að styðja við innleiðingu nýrrar menntastefnu Reykjavíkurborgar „Látum draumana rætast“ og fylgja eftir
áherslum stefnu um notkun upplýsingatækni í skóla- og frístundastarfi. Verkefnastjóri veitir tækni- og kennslufræðilega ráðgjöf
og fræðslu til stjórnenda og starfsfólks um notkun upplýsingatækni, stuðlar að samstarfi milli aðila og styður við þróun og
nýsköpun. Næsti yfirmaður er deildarstýra Nýsköpunarmiðju menntamála á skóla- og frístundasviði.
Skóla- og frístundasvið veitir börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða þjónustu og annast m.a. rekstur 36 grunnskóla, 62
leikskóla, 5 frístundamiðstöðva, starfsemi Námsflokka Reykjavíkur og skólahljómsveita.
Leitað er að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í skapandi og síbreytilegu umhverfi.
Helstu verkefni:
• Veita þjónustu, ráðgjöf og fræðslu til stjórnenda og starfs-
fólks um stafræna hæfni og notkun upplýsingatækni í skóla-
og frístundastarfi 21. aldarinnar.
• Taka þátt í uppbyggingu Mixtúru og Búnaðarbanka SFS.
• Styðja við frumkvöðlastarf og nýsköpun með áherslu á
„STEAM“-greinar (vísindi, tækni, verkfræði, skapandi
greinar og stærðfræði).
• Miðla upplýsingum og þróa aðferðir um notkun stafrænnar
tækni sem styðja við fjölbreyttar námsþarfir nemenda, s.s.
fjöltyngda nemendur og nemendur með sértækar þarfir
í námi.
• Taka þátt í samstarfi og þróun lærdómssamfélags innan
sem utan borgarinnar um notkun upplýsingatækni og miðlun
góðra fyrirmynda.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun á sviði kennslu-, uppeldis- og/eða
tómstundafræða.
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, s.s.
í upplýsingatækni.
• Reynsla af þróun, innleiðingu og fjölbreyttri notkun UT í
skólastarfi (t.d..„STEAM“ og sértækar þarfir).
• Reynsla af kennsluráðgjöf er kostur.
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
• Frumkvæði í starfi og vilji til að leita nýrra leiða í skóla-
og frístundastarfi.
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð enskukunnátta.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ þar sem
leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.
Nánari upplýsingar: https://reykjavik.is/menntastefna-til-2030-latum-draumana-raetast
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. febrúar 2020, eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2020.
Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru beðnir
að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veitir Fríða Bjarney Jónsdóttir, deildarstýra, sími 411-1111. Netfang: frida.b.jonsdottir@reykjavik.is
Tilkynningar um nýtt fólk Atvinnublað Fréttablaðsins
kemur út á laugardögum í viku hverri. Umsjónarmaður
blaðsins er Hrannar Helgason. Blaðið birtir valdar
greinar um ráðningu nýrra starfsmanna. Sendið til-
kynningar ásamt mynd af viðkomandi á netfangið:
nyttfolk@frettabladid.is
Nýtt fólk
Menntunar- og hæfniskröfur
• Verkfræðingur, M.Sc. eða nám sem nýtist í starfi.
• Marktæk reynsla af sambærilegum verkefnum.
• Reynsla af stýringu verkefna.
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu.
• Frumkvæði, faglegur metnaður og árangursdrifni.
• Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi.
• Góð íslenskukunnátta.
• Kunnátta í ensku og einhverju norðurlandamáli.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2020.
Umsóknir berist á netfangið: starf@vegagerdin.is.
Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun
og hæfni sem sem óskað er eftir, þar með talið menntunar- og starfsferilsskrá.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Friðriksdóttir svæðisstjóri
Höfuðborgarsvæðis, netfang: bryndis.fridriksdottir@vegagerdin.is,
og Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri Vegagerðarinnar netfang:
sigurbjorg.helgadottir@vegagerdin.is, sími 522 1000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Höfuðborgarsvæði er nýtt svæði innan Vegagerðarinnar sem vinnur
að þróun, skipulagi og hönnun samgöngumannvirkja fyrir fjölbreytta
ferðamáta á höfuðborgarsvæðinu. Framundan eru um fangsmikil
verkefni og auglýsir Vegagerðin því eftir öflugum sér fræðingi
í samgöngumálum til að vinna þau verkefni með okkur.
Um er að ræða fullt starf á starfsstöð Vegagerðarinnar í Reykjavík.
Í boði er spennandi og fjölbreytt starf þar sem áherslan verður á
skipulag og uppbyggingu fyrir fjölbreytta ferðamáta á höfuðborgar-
svæð inu. Við erum að leita eftir aðila sem hefur áhuga á að takast
á við krefjandi verkefni á sínu fagsviði, allt frá skipulagningu til
hönnunar á samgöngumannvirkjum.
Sérfræðingur
í samgöngum
á höfuðborgarsvæðinu
ÖRYGGI
FRAMSÝNI
ÞJÓNUSTA
FAGMENNSKA
Nýr fjármálastjóri
Samherja í Hollandi
Steingrímur H. Pétursson hefur verið ráðinn fjármálastjóri á skrifstofu Samherja í Hollandi.
Steingrímur kemur til Samherja frá
Högum þar sem hann gegndi stöðu
framkvæmdastjóra fjármála- og
viðskiptaþróunar en þar á undan
var hann framkvæmdastjóri fjár-
málasviðs Olís um þriggja ára skeið.
Þá hefur Steingrímur einnig gegnt stöðu
framkvæmdastjóra hjá Eimskip, Sandblæstri
og Málmhúðun og Fjárfestingarfélaginu Sjöfn en hóf starfs-
feril sinn að loknu háskólanámi hjá KPMG Endurskoðun á
Akureyri þar sem hann vann í fjögur ár. Steingrímur er með
meistaragráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri
og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Erla samskiptastjóri VÍS
Erla Tryggvadóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Vátryggingafélags Íslands (VÍS). Hjá VÍS mun hún
miðla upplýsingum um félagið til
fjölmiðla og markaðsaðila og bera
ábyrgð á framfylgd samfélagsstefnu
félagsins. Erla hefur meðal annars
verið starfandi framkvæmdastjóri hjá
Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð,
viðskiptastjóri hjá Brandenburg auglýs-
ingastofu og verkefnastjóri á samskipta- og markaðssviði
hjá Straumi fjárfestingarbanka. Þá starfaði hún lengi hjá
RÚV, bæði í sjónvarpi og útvarpi. Nú síðast starfaði hún hjá
Stekk, fjárfestingarfélagi. Erla stundar nú MBA-nám við
Háskólann í Reykjavík og lýkur prófi næsta vor. Hún er jafn-
framt með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðs-
fræði frá HR og Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn
(CBS). Erla er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla
Íslands og lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands.
Tómas Haukur ráðinn til
Rangárþings ytra
Tómas Haukur Tómasson hefur verið ráðinn forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs
Rangárþings ytra en starfið var aug-
lýst á dögunum. Tómas mun hefja
störf um áramótin. Hann er húsa-
smíðameistari og rak eigið verktaka-
fyrirtæki til ársins 2005 en hefur eftir
það meðal annars starfað hjá Mann-
viti ehf. og Munch við byggingarstjórn og
verkefnastjórnun bæði hérlendis og erlendis. Þess má einnig
geta að Tómas Haukur hefur starfað í Hjálparsveit skáta í
Kópavogi frá 1984 og verið starfandi í Íslensku alþjóðabjörg-
unarsveitinni frá upphafi og komið að flestum útköllum
sem alþjóðasveitin hefur farið í.
Þorleifur Gunnar til Genki
Genki Instruments hefur ráðið Þorleif Gunnar Gíslason sem nýjan hönnunarstjóra. Þor-
leifur útskrifaðist sem grafískur
hönnuður frá Listaháskóla Íslands
árið 2012, en meðfram námi hóf
hann störf hjá Jónsson & Le’macks,
sem nú heitir Aton.JL. Meðal fyrir-
tækja sem Þorleifur hefur unnið fyrir
eru Adobe, 66°Norður, Landsvirkjun,
Þjóðminjasafnið, Norðursalt, RIFF og Gamma. Þorleifur er
margverðlaunaður fyrir verk sín og hafa þau birst í fjölda
fagtímarita og hönnunarbóka um allan heim og einnig á
samsýningum bæði hér heima og erlendis. Jafnframt hefur
Þorleifur gegnt stjórnarsetu í Félagi íslenskra teiknara um
árabil og situr einnig í ritstjórn HA tímaritsins, sem er fag-
tímarit um hönnun og arkitektúr sem gefið er út af Hönn-
unarmiðstöð Íslands.
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R