Fréttablaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 64
Brandarar
Lísaloppa og Róbert voru
að skreyta jólatréð og
skemmtu sér konunglega
við það. Hlóðu á það öllu
því fallega sem þau
langaði til. „Þetta nnst
mér nú allt of skreytt
jólatré,“ sagði Kata. „Ég
meina, hvað eru eiginlega
margar rauðar kúlur á
þessu tré? Eða kerti?“
Konráð byrjaði að telja
og varð að viðurkenna
að þær væru ansi margar
kúlurnar og kertin.
„Að ekki sé minnst á
brosandi stjörnurnar,“
bætti Kata við.
„Svona, svona,“ sagði
Lísaloppa. „Hvar er
jólaandinn Kata mín.
Þú þar ekki alltaf að
hafa allt á hornum þér.
Reyndu frekar að njóta
jólanna.“ Kata horfði
smástund þögul á tréð.
„Já, kannski, en þið verðið
að viðurkenna að þið
vitið ekkert hvað þið
eruð búin að setja
margar rauðar kúlur
á tréð.“ Það urðu
þau að viðurkenna.
Þær voru jú
orðnar ansi
margar.
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
383
Getur þú
talið allar ra
uðu
jólakúlurna
r,
kertin og br
osandi
stjörnurnar
?
?
?
? ?
?
Lausn á gátunni
Á trénu eru 28 rauðar kúlur, 5 brosandi stjörnur og 17 kerti.
?
Hinn sjö ára Andri Marinó Kjart-
ansson á auðvelt með að læra texta
og syngur hátt og snjallt með öllum
vinsælustu röppurum landsins.
Hvaða rapparar eru í mestu
uppá haldi? Herra Hnetusmjör og
Emmsjé Gauti og líka bræðurnir
Frikki Dór og Jón Jónssynir.
Hvað langar þig að verða? Ég ætla
að verða rappari og langar að verða
matreiðslumaður eins og foreldrar
mínir, ég fæ oft að hjálpa þeim í
vinnunni. Svo hjálpa ég ömmu
minni að baka pitsu. Hún býr til
bestu pitsu í heimi og kannski
opnum við einhvern tíma pitsu-
stað saman.
Hvað langar þig í í jólagjöf ? Mig
langar í körfuboltaspjald til að hafa
inni.
Æfir þú körfubolta? Nei, en ég hef
áhuga á honum. Ég æfði fótbolta síð-
asta sumar. Nú er ég bara í sundinu,
hef æft það síðan ég var fjögurra
ára og syndi bringusund, baksund
og skriðsund í djúpu lauginni á
Ásvöllum í Hafnarfirði. Mig langar
til að taka þátt í heimsmeistaramóti
í sundi þegar ég verð eldri.
Áttu einhver uppáhaldsfótbolta-
lið? Liverpool er liðið mitt í ensku
knattspyrnunni og FH hér heima.
Er g a ma n í skóla nu m? Já ,
við vorum að vinna í jólabók
og læra um íslensku jólasveinana.
Svo lærum við líka að vera kurteis
við fólk. Mér finnst gaman að lesa
og Sproti er frábær vinnubók.
Hvað er skemmtilegasta ferða-
lag sem þú hefur farið í? Í sumar
fór ég til Almería á Spáni með fjöl-
skyldunni. Við bjuggum á hóteli
og skemmtum okkur í sundlaugar-
garðinum og á ströndinni. Ég fékk
að kaupa mér knattspyrnubúninga
og við fórum í rosalega f lottan
fiðrildagarð. Svo sáum við kúreka-
sýningu úti í eyðimörkinni, þar
voru teknar upp frægar amerískar
kúrekabíómyndir. Ég spilaði fót-
bolta með spænskum strákum á
ströndinni og það var fullt af fólki
að horfa, það varð jafntef li, 6-6.
Ég kynntist líka spænskum strák
á hótelinu, við spiluðum oft borð-
tennis saman.
Er gæludýr á heimilinu? Við
eigum labradorhund sem heit-
ir Loki, hann er góður vinur minn.
Hvert er uppáhaldssjónvarps-
efnið þitt? Jóladagatalið á RÚV en
uppáhaldsmyndirnar mínar eru
Star Wars, Þegar Trölli stal jólunum
og Home Alone.
Ætlar að verða
rappari
Andri Marinó var að vinna í jólabók í skólanum og læra um íslensku jóla-
sveinana. Hann lærir líka að vera kurteis.“MYND/PÁLMI ÁSBJARNARSON
SVO HJÁLPA ÉG ÖMMU
MINNI AÐ BAKA
PITSU. HÚN BÝR TIL BESTU
PITSU Í HEIMI OG KANNSKI
OPNUM VIÐ EINHVERN TÍMA
PITSUSTAÐ SAMAN.
Gluggagægir er sá íslenski jóla-sveinn sem kemur til byggða í dag.
Hann er sá tíundi í röðinni og er
dálítið hrekkjóttur, eins og bræður
hans, samkvæmt Þjóðsögum Jóns
Árnasonar frá 1862.
Jóhannes úr Kötlum orti vísur
um alla íslensku jólasveinana, tvær
vísur um hvern.
Vísurnar um Gluggagægi
Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.
Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.
Jólasveinninn
Ef Gluggagægir sér eitthvað sem hann langar í þá getur verið að hann hnupli
því seinna. En setur örugglega eitthvað í skóna í leiðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Svavar: Veistu hvað. Fólkið við
hliðina barði á veggina hjá mér
fram eftir öllu kvöldi.
Inga: Hélt það þá ekki vöku fyrir
þér?
Svavar: Nei, en það truflaði mig
dálítið því ég var að æfa mig á
trompetinn.
Pabbi: Hver braut gluggann?
Sigga: Hann sjálfur. Hann beygði
sig þegar ég ætlaði að kasta bolt-
anum í vegginn fyrir neðan hann.
Gulli: Veistu hverju pabbi svaraði
þegar ég spurði hann hvort hann
vildi gefa mér fullkomna tölvu í
jólagjöf?
Fía: Nei.
Gulli: Hvernig vissirðu?
2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR