Fréttablaðið - 21.12.2019, Page 82
Tár í regni…
Leikarinn Rutger Hauer lést
eftir skammvinn veikindi heima
hjá sér í Hollandi 19. júlí og var
flestum harmdauði þótt stöku
hælbítar vilji innistæðulaust
kenna hann við B-myndir.
Hauer sem var 75 ára gamall
þegar hann lést var vissulega ekki
alltaf vandlátur í verkefnavali
en þegar hann reis sem hæst fór
hann með himinskautum eins og
alelda geimfar við öxl Óríons.
Samstarfsfólk hans og aðdá-
endur um víða veröld syrgðu
þennan magnaða og oft van-
metna leikara sem verður minnst
um ókomna tíð fyrir túlkun sína
á gervimenninu Roy Batty í tíma-
mótaverkinu Blade Runner eftir
Ridley Scott en hann setti mark
sitt á þá mynd með ýmsu móti.
Ekki síst þegar hann endur-
skrifaði nú ódauðleg hinstu
orð persónu sinnar, vélarinnar
sem fann mennskar tilfinningar
í rafrásum sínum rétt áður en
hún fellur á tíma og minnist allra
þeirra stórkostlegu augnablika
sem vistuð eru á harða disknum
í höfðinu og munu týnast í tím-
anum eins og tár í rigningu.
Þegar Blade Runner kom út
í upphafi níunda áratugarins
var sögusviðið Los Angeles í
fjarlægri, regnvotri og drunga-
legri framtíð. Nánar tiltekið árið
2019 þannig að leikarinn kvaddi
þennan heim í raun sama ár
og það slökknaði endanlega á
tilfinninganæma vélmenninu
sem holdgerðist í honum 37
árum áður þegar báðir festu sig
á spjöld kvikmynda- og afþrey-
ingarmenningarsögunnar.
Góða nótt fagri prins
Leikarinn Luke Perry lést á
sjúkrahúsi í Los Angeles í byrjun
mars nokkrum dögum eftir að
hann fékk alvarlegt heilablóð-
fall.
Hans verður lengst minnst
sem Dylan McKay í unglingasáp-
unni vinsælu Beverly Hills 90210
og var öllum harmdauði enda
hvers manns hugljúfi. Hann var
52 ára þegar hann lést.
Hinsta hlutverk Perrys var í
Tarantino-myndinni mögnuðu
Once Upon a Time in Hollywood
en hann hafði þá losnað undan
því að lifa á frægðinni fornu og
blómstraði í Netflix-þáttunum
vinsælu Riverdale.
Litlir kærleikar voru milli Perry
og Shannen Doherty þegar þau
léku kærustuparið Brendu og
Dylan í 90210 en þegar hann lá
banaleguna í dauðadái sagðist
hún vart mega mæla af harmi og
sagðist enn elska Dylan sinn.
Bradley og Irina og
Carino og Lady Gaga
Svo mjög neistaði á milli Brad-
leys Cooper og Lady Gaga í hlut-
verkum þeirra í A Star is Born að
fljótlega komst sá kvittur á kreik
að ástarbríminn á hvíta tjaldinu
hefði hvorki verið uppgerð né
leikur.
Þau reyndu að verja sambönd
sín við þáverandi maka gegn
illum tungum sem sleiktu út um
og fengu ljótar óskir sínar upp-
fylltar í sumar þegar þau gáfu
kjaftasögunum vængi þegar þau
sögðu skilið við annars vegar
Irinu Shayk og Christian Carino.
Shayk var þrátt fyrir slæma fyrir-
boða illa brugðið en þau Cooper
höfðu verið saman í fjögur
ár og ást þeirra borið ávöxt í
dótturinni Lea sem var tveggja
ára þegar foreldrar hennar fóru
hvort sína leið. Enn er óljóst
hvort það var vegna þess að
Bradley sé gaga.
Larry King og
Shawn Southwick
Sjónvarpskóngurinn Larry
King er alltaf með axlabönd en
hefði máske einnig átt að vera
með belti í einkalífinu þar sem
hann og eiginkona hans, Shawn
South wick King, létu gott heita
eftir 22 ár. Engar prentvélar voru
þó stöðvaðar af þessu tilefni
þar sem ástæða er fyrir því að
fréttir heita „news“ á ensku og
þetta var áttundi hjónaskilnaður
Kings.
Liam Hemsworth
og Miley Cyrus
Stjörnuhjónaband ástralska leik-
arans Liams Hemsworth og fjöl-
listakonunnar ævintýragjörnu
Miley Cirus hélt ekki út í eitt ár.
Hemsworth sótti um skilnað í
ágúst eftir að hann sá ljósmynd
af Miley í heitum atlotum við
Kaitlynn Carter við Como-vatn
þegar hann var víðs fjarri góðu
gamni. Hjónin höfðu að vísu þá
þegar slitið samvistum en ekki
gengið frá formsatriðum.
Katie Holmes og Jamie Foxx
Leikaraparið flotta Katie Holmes
og Jamie Foxx hætti saman eftir
sex ára samband en þau létu
eftir sér að njótast þegar Katie
varð endanlega frjáls undan oki
Toms Cruise og Vísindakirkju-
grillum hans. Hjónaband Toms
og Katie leystist einmitt upp í
frumeindir eftir að þau fóru út
að borða í Reykjavík og fengu sér
sushi. Tom hefur þó varla grátið
það þegar fréttist af mótleikara
hans í Collateral með söngkon-
una Selu Vave upp á arminn og
sambandsslit hans og Holmes
opinberuðust umheiminum.
Þessi hættu saman á árinu
Þeir kvöddu á árinu
Kim hefur í gegnum árin sýnt fádæma útsjónarsemi og eins mikið hold og
leyfilegt er til þess að viðhalda vinsældum Kardashian-klansins en gæti
þurft að snúa baki við múgnum sem hefur krýnt Meghan drottningu.
Hjónaband Irinu og Bradleys þoldi ekki ofleik hans og Lady Gaga í ástar-
senum A Star is Born og fjörkippina sem komu í rætnar tungur.
Skilnaður að borði og sæng varð að lögskilnaði á augabragði þegar Liam
skoðaði myndir af Miley á samfélagsmiðlum og hinu háskalega interneti.
Smelludólgar eru leiðindafyrirbæri, hrímþursar vorra tíma og farið hefur fé
betra en þessi sem hvarf með stórkostlegum hvelli sumarið 2019.
Úff, átti ég virkilega að rústa þessum sjónvarpsþáttum svona rosalega?
Flestum mönnum fegurri lék Luke Perry Dylan McKay með eftirminnilega
ómótstæðilegum sjarma sem lifir enn þótt leikarinn hafi kvatt allt of fljótt.
Scorsese fékk Thanos á heilann og
gleymdi að stytta The Irishman.
Frábær leikari og drengur góður
kvaddi 2019 eins og fyrir lá strax og
tárum rigndi í Blade Runner.
2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R58 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð