Skessuhorn - 17.07.2019, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 20192
Gott er að minna á að drekka vatn
yfir daginn, oftar en ekki gleymist
það. Enn fremur er mikilvægt að
fá sér vatn ef koffíndrykkja er mik-
il yfir daginn, en þá þarfnast líkam-
inn enn meiri vökva en ella. Ekki
viljum við skrælna upp.
Á morgun er spáð súld eða rign-
ingu. Bjart verður suðvestan- og
vestanlands. Hiti 10 til 18 stig. Á
föstudag verður úrkomulítið vest-
anlands og hiti breytist lítið. Á
laugardag má búast við austan-
og norðaustanátt. Úrkomulítið á
norðan- og vestanverðu landinu. Á
sunnudag er spáð norðaustanátt
og rigningu en þó þurru veðri á
norðvestan- og vestanverðu land-
inu. Hlýjast á Vesturlandi. Á mánu-
dag má búast við einhverri vætu
en mildu veðri.
Á vef Skessuhorns var spurt í síð-
ustu viku; „hyggst þú sækja endur-
menntun eða fara í skóla á árinu?“
Alls voru 361 sem gáfu sér tíma og
greiddu atkvæði. Mikill meirihluti,
eða 66%, sögðust ekki búast við
því að sækja sér menntun á árinu.
16% sögðu það nokkuð öruggt og
11% töldu það líklegt. Fæstir eða
8% voru ekki vissir.
Í næstu viku er spurt: Klæðist þú
öðruvísi fötum á sumrin en vet-
urna?
Það er gott að hafa traust fólk í
flutningastarfsemi. Það hafa íbúar
í Borgarnesi og nágrannahéruðum
kynnst í honum Júlla Jóns, sem ný-
verið fagnaði 70 ára afmæli sínu,
en hefur aldrei haft meira að gera.
Júlli fékk í afmælisgjöf miða aðra
leiðina til útlanda, en ætlar ekki að
fara í ferðina fyrr en eftir áttatíu ára
afmælið, því þá vonast hann til að
fá heimferðarmiðann. Júlli er Vest-
lendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Blöðin
framundan
SKESSUHORN: Skessu-
horn verður gefið út næstu
tvo miðvikudaga, þ.e. 24. og
31. júlí. Starfsfólk fer eftir það
í viku sumarfrí og kemur því
EKKI út blað miðvikudaginn
7. ágúst, en hefðbundin útgáfa
verður eftir það. -mm
Þrettán prósent
með erlent
ríkisfang
LANDIÐ: Alls voru 46.717
erlendir ríkisborgarar búsett-
ir hér á landi 1. júlí síðastlið-
inn og hefur þeim fjölgað um
2.561 frá 1. desember 2018 eða
um 5,8%. Á sama tíma fjölgaði
íslenskum ríkisborgurum sem
búsettir eru hér á landi um
0,4%. Erlendir ríkisborgarar
eru því 13% mannafla, en alls
voru 360.384 búsettir í land-
inu 1. júlí. Flestir erlendir rík-
isborgarar búsettir hér á landi
eru frá Póllandi eða 19.909 og
4.388 einstaklingar eru með
litháískt ríkisfang. -mm
Datt af baki
BORGARFJ: Hestaslys varð
á sunnudaginn skammt frá
Helgavatni í Borgarfirði. Mað-
ur um sextugt féll af baki þeg-
ar hestur sem hann reið fældist.
Kallað var eftir aðstoð björgun-
arsveitar sem mætti á vettvang
og fór með manninn í veiði-
hús við Helgavatn. Þaðan var
hann fluttur til aðhlynningar á
heilsugæslustöð HVE í Borgar-
nesi. Virðist honum ekki hafa
orðið stórlega meint af bylt-
unni, að sögn lögreglu. -kgk
Víðtæk bilun
AKRANES: Bilun kom upp
í búnaði fjarskiptafyrirtækisins
Mílu á Akranesi á þriðja tím-
anum á mánudaginn. Bilunin
hafði áhrif á fjarskipti á Akra-
nesi og nærliggjandi svæðum,
að því er fram kom í tilkynn-
ingu á vef Mílu. Viðgerð lauk
tæpum tveimur tímum síðar.
-mm
Frá 2017 hafa sauðfjárbændur þurft
að sætta sig við verulega raunlækk-
að afurðaverðs vegna sölutregðu
og offramleiðslu. Nú er hvorugt til
staðar. Sala lambakjöts hefur auk-
ist á þessu ári á sama tíma og dreg-
ið hefur úr framleiðslu. Erlend-
ir markaðir hafa opnast og landinn
velur sem fyrr lambakjöt á grillið.
Ýmsir kjöthlutar, eins og hryggir
eru því ófáanlegir í verslunum.
í ljósi þessa hefur Norðlenska
gefið út verðskrá fyrir komandi dil-
kaslátrun í haust þar sem gert er
ráð fyrir 15% hækkun afurðaverðs
til bænda. „Verðskráin er talsvert
breytt frá fyrra ári og er það mat
Norðlenska að hún endurspegli
enn betur raunvirði gerðar og fitu-
flokka en verðskrá síðasta árs. Stefna
Norðlenska er sú að þoka verðsk-
rám í átt að hlutfallslegu raunvirði
innleggs fyrir sölu og vinnslu og er
þessi breyting liður í því. Félagið
hvetur bændur til að kynna sér
verðskrána með þetta í huga. Með
því lágmarksverði sem hér er kynnt
hækkar meðalverð til innleggjenda
um rúm 15% frá árinu 2018, sé tek-
ið mið af raun innleggi til félagsins
árið 2018,“ segir í tilkynningu frá
Norðlenska. Greitt er yfirverð fyrir
innlagt kjöt frá viku 35 en það stig-
lækkar og lýkur í viku 39.
Sláturfélag Suðurlands tilkynnti
í lok júní um 8% hækkun afurða-
verðs til bænda. Þá er von á að aðrir
sláturleyfishafar tilkynni um verð-
breytingar á næstu dögum. Mið-
að við tilkynningar þessara tveggja
fyrirtækja er engu að síður langur
vegur frá að bændur fái sama raun-
verð fyrir lambakjöt og þeir fengu
t.d. haustið 2016. Verð á algengum
flokki, R3 í viku 40, er samkvæmt
vef Sláturfélags Suðurlands 421
króna fyrir kílóið. Hjá Norðlenska
fá bændur í Búsæld 425 kr. fyrir kíló
af sama flokki, en bændur utan Bú-
sældar 408 kr/kg. Aðrir sláturleyfis-
hafar höfðu ekki tilkynnt um slát-
urverð í haust þegar þessi frétt var
unnin.
mm
í Samráðsgátt stjórnvalda var síð-
astliðinn föstudag birt drög að
frumvarpi þar sem lagt er til að
aflaheimildum í grásleppu verði út-
hlutað til skipa sem eru með rétt
til að veiða grásleppu samkvæmt
gildandi lögum. í núgildandi fyr-
irkomulagi grásleppuveiða er veið-
unum stjórnað á grundvelli leyfa og
með dagatakmörkunum, en lagt til
að veiðistjórn verði breytt úr sókn-
arstýringu í aflamarksstýringu.
ÚTSALA
ENN MEIRI
VERÐ-
LÆKKUN!
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
Lagt til að aflamarksstýring verði tekin
upp á grásleppuveiðum
„Með því að breyta veiðistjórn á
grásleppu mun fara um stjórnunina
eftir lögum nr. 116/2006, um stjórn
fiskveiða,“ segir í kynningu. Þá er í
frumvarpinu mælt fyrir um að afla-
hlutdeild skuli úthlutað út frá veiði-
reynslu en ekki á einstök skip eða
báta. úthluta skal aflaheimildum á
grásleppu til allra þeirra sem hafa
rétt til grásleppuveiða samkvæmt
núgildandi lögum. Lagt er til að
viðmiðunartími verði þrjú bestu
veiðitímabil af árunum 2013 til og
með 2018.
í greinargerð með frumvarpinu
segir að stjórn grásleppuveiða með
sóknarmarki, eins og tíðkast hefur
undanfarin ár, hafi „sætt gagnrýni
fyrir að vera ómarkviss og ófyrirsjá-
anleg fyrir þá sem stunda veiðarn-
ar.“ Um mat á áhrifum frumvarps-
ins segir í greinargerð með því:
„Ábyrg fiskveiðistjórn er almanna-
hagur og með hlutdeildasetningu
á grásleppu er stefnu stjórnvalda í
fiskveiðistjórn fylgt. Kostirnir eru
ótvíræðir; ábyrgari og fyrirsjáan-
legri fiskveiðistjórn, meiri sveigjan-
leiki fyrir þá sem stunda veiðarnar
og einfaldari stjórnsýsla.“
Frumvarpsdrögin verða til um-
sagnar á Samráðsgátt stjórnvalda til
26. júlí næstkomandi.
mm
Grásleppu landað í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ sá.
Svipmynd úr Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey.
Bændur geta vænst hærra
verðs fyrir dilkakjöt