Skessuhorn - 17.07.2019, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 20198
Störf í boði hjá
sveitarfélaginu
BORGARBYGGÐ: Um
þessar mundir auglýsir
Borgarbyggð eftir starfsfólki
í nokkur störf á vegum sveit-
arfélagsins. í Skessuhorni í
síðustu viku var auglýst nýtt
starf verkefnastjóra atvinnu-,
markaðs- og menningarmála
hjá sveitarfélaginu. Um fullt
stöðugildi er að ræða, en
ráðið til eins árs í fyrstu með
möguleika á framlengingu.
Starfið heyrir undir nýja at-
vinnu-, markaðs- og menn-
ingarnefnd. Auk fyrrgreinds
starfs var auglýst starf um-
sjónarmanns Hjálmakletts.
Umsóknarfrestur um fyrr-
greind störf er til og með 28.
júlí. Þá vantar einnig í hluta-
starf í Frístund í Borgarnesi
og húsvörð við Grunnskóla
Borgarfjarðar. -mm
Óska tilboða
í eignir á
Laugum
DALIR: Dalabyggð hef-
ur auglýst eftir tilboðum í
eignir Dalabyggðar á Laug-
um í Sælingsdal. Þannig skal
nú gera aðra tilraun til sölu
eignanna. „Sveitarstjórn hef-
ur ákveðið að bjóða til sölu
allar húseignir Dalabyggð-
ar á Laugum í Sælingsdal.
Eignirnar telja m.a. skóla/
hótel, íþróttahús, sundlaug
ásamt íbúðarhúsnæði og
seljast í einu lagi. Gera skal
aðgreint tilboð í einbýlishús-
ið Laugafell,“ segir í frétt á
vef sveitarfélagsins. Tilboðs-
frestur er til 1. september nk.
-mm
Meira fyrir
fiskinn
LANDIÐ: útflutningsverð-
mæti sjávarafurða var 239,8
milljarðar á síðasta ári. Er
það 17,8% meira en árið
2017, að því er fram kemur á
vef Hagstofunnar. Flutt voru
út rúmlega 670 þúsund tonn
af sjávarafurðum á árinu
2018, sem er 61 þúsund tonni
meira en árið áður. Fryst-
ar sjávarafurðir voru 42,7%
af útflutningsverðmætinu,
ísaðar 13,8% og mjöl/lýsi
27%. Sé litið til einstakra
tegunda var verðmæti ísaðra
þorskafurða mest, eða tæp-
lega 39,4 milljarðar. Frystur
þorskur var næstverðmæt-
astur, eða um 35,3 milljarðar
króna. Alls fengust 15,3% af
heildarútflutningsverðmæti
vegna útflutnings til Bret-
lands, 11,3% til Frakklands
og þar á eftir koma Spánn,
Noregur og Bandaríkin með
rétt undir 10% hvert land.
Eru það álíka hlutföll og
árið 2017. Verðmæti útflutn-
ingsframleiðslu sjávarafurða,
sem er samtala útflutnings
og birgðabreytinga sjávaraf-
urða, var tæpir 240 milljarð-
ar á síðasta ári. Er það 22%
aukning frá árinu á undan. Á
föstu verðlagi jókst útflutn-
ingsframleiðsla um 24%
miðað við árið 2017.
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
29. júní - 5. júlí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 18 bátar.
Heildarlöndun: 43.193
Mestur afli: Ebbi AK:
18.932 kg í þremur róðrum.
Arnarstapi: 16 bátar.
Heildarlöndun: 36.829 kg.
Mestur afli: Hrafnborg SH:
5.449 kg í þremur róðrum.
Grundarfjörður: 18 bátar.
Heildarlöndun: 198.244
kg.
Mestur afli: Hringur SH:
64.284 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 28 bátar.
Heildarlöndun: 71.804 kg.
Mestur afli: Egill SH:
27.785 kg í þremur róðrum.
Rif: 22 bátar.
Heildarlöndun: 52.679 kg.
Mestur afli: Esjar SH:
19.559 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur: 29 bátar.
Heildarlöndun: 97.290 kg.
Mestur afli: Blíða SH:
14.437 kg í fimm róðrum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH - GRU:
64.284 kg. 3. júlí.
2. Sigurborg SH - GRU:
46.235 kg. 1. júlí.
3. Helgi SH - GRU: 44.475
kg. 1. júlí.
4. Farsæll SH - GRU:
19.545 kg. 1. júlí.
5. Esjar SH - RIF: 14.169
kg. 2. júlí.
-kgk
Þrenns konar störf eru í boði hjá
sjávarútvegsfyrirtækinu Guðmundi
Runólfssyni hf. í Grundarfirði.
Samkvæmt auglýsingu í Skessu-
horni í síðustu viku vantar starfs-
mann hjá fyrirtækinu í starf verk-
og gæðastjóra og netagerðamann.
Þá er einnig auglýst eftir fólki til
starfa í nýrri hátæknifiskvinnslu
fyrirtækisins í Grundarfirði.
kgk
Eins og áður hefur verið greint frá
hafa staðið yfir framkvæmdir á Snæ-
fellsnesvegi um Fróðárheiði síðan í
vetur. Verið er að leggja nýjan veg
frá Valavatni að vegamótum út-
nesvegar Ólafsvíkurmegin. Verkið
er í höndum verktakafyrirtækisins
Borgarverks ehf. og ganga fram-
kvæmdir vel, að því er fram kem-
ur á Facebook-síðu Snæfellsbæj-
ar. Áætlað er að fyrsta áfanga verði
lokið í haust en umferð verður þó
ekki hleypt á veginn strax. Verk-
inu á síðan að verða að fullu lok-
ið haustið 2020, eins og áður hefur
verið greint frá. kgk
Fjármála- og efnahagsráðherra
hefur samþykkt nýja eigandastefnu
fyrir jarðir, land, lóðir og auðlind-
ir í ríkiseigu. Var eigendastefnan
kynnt á fundi ríkisstjórnar í vik-
unni sem leið. Ekki hefur áður ver-
ið í gildi eigandastefna fyrir þenn-
an málaflokk. í samræmi við lög
um opinber fjármál fer fjármála-
og efnahagsráðuneytið með fyrir-
svar flestra eigna í eigu ríkissjóðs,
þ.m.t. eignarhlut ríkisins í fasteign-
um, jörðum, auðlindum og öðrum
fasteignatengdum réttindum. Meg-
inmarkmið í eignaumsýslu ríkisins
undanfarin ár hefur verið að stuðla
að skýrri, skilvirkri og hagkvæmri
meðferð á ríkiseignum hvort sem
um er að ræða fasteignir, jarðir
eða auðlindir í eigu ríkisins, ásamt
því að bæta yfirsýn og fjárhagslegt
gagnsæi við meðferð allra eigna.
„Með nýrri eigandastefnu eru
meginmarkmið ríkisins með eign-
arhaldinu nánar útfærð til að stuðla
betur að markmiðum um faglega
umsýslu jarða, lands og auðlinda í
eigu ríkisins,“ segir í kynningu. Á
vef ráðuneytis fjármála má finna
Eigandastefna vegna jarða, landa,
lóða og auðlinda í eigu ríkisins.
mm
Fyrir helgi var byrjað að lagfæra
veginn frá Akrafjallsvegi, meðfram
Berjadalsá og að Akrafjalli. Að sögn
Sævars Freys Þráinssonar bæjar-
stjóra á Akranesi er verkið unnið
á kostnað bæjarfélagsins en í góðri
sátt við hlutaðeigandi landeigend-
ur. Fjöldi fólks fer daglega að fjall-
inu til útivistar og umferð því tals-
verð. Vegurinn er grófur og óslétt-
ur á köflum. Verður yfirlag bætt og
vegurinn heflaður. mm/ Ljósm. ki.
Góður gangur á Fróðárheiði
Unnið við vegagerð á Fróðárheiði síðastliðinn fimmtudag. Ljósm. Snæfellsbær.
Úr vinnslusal nýrrar
fiskvinnslu G.Run í
Grundarfirði. Ljósm.
úr safni/ tfk.
Atvinnutækifæri hjá G.Run í Grundarfirði
Ríkið samþykkir
eigendastefnu fyrir ríkisjarðir
Kirkjubæjarklaustur.
Hér má sjá efsta hluta leiðarinnar sem búið er að lagfæra.
Vegurinn lagfærður að Akrafjalli
Víða er stórgrýti sem stendur uppúr veginum og viðhald hans því orðið tímabært.