Skessuhorn - 17.07.2019, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 2019 13
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
ÚTBOÐ
SNÆFELLSBÆR – ÓLAFSVÍK
LENGING NORÐURGARÐS, 2019
Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskar eftir tilboði í
ofannefnt verk.
Um er að ræða lengingu Norðurgarðs í Ólafsvík um 80 m.
Helstu magntölur:
Útlögn grjóts og kjarna samtals um 36.000 m• 3
Upptekt og endurröðun um 2.000 m• 3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. september 2020.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7
í Reykjavík (móttaka), og á bæjarskrifstofu Snæfellsbæjar,
Klettsbúð 4, 360 Hellissandi, frá og með mánudeginum
15. júlí 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þriðjudaginn 30. júlí 2019 og verða þau opnuð þar
kl. 14:15 þann dag.
m i d i . i s
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ
20.00 OPNUNARTÓNLEIKAR
REYKHOLTSHÁTÍÐAR
Oddur Arnþór Jónsson, barítón
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
Anna Magdalena den Herder, víóla
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Kynnir: Guðni Tómasson
Oddur Arnþór Jónsson hlaut Íslensku tónlistar-
verðlaunin á þessu ári sem söngvari ársins.
Á opnunartónleikum Reykholtshátíðar munu
Oddur og Anna Guðný Guðmundsdóttir flytja tvo
ljóðahluta úr Svanasöng Franz Schuberts ásamt
tveimur mögnuðum verkum, Let us Garlands Bring
eftir Gerald Finzi og Dover Beach eftir Samuel
Barber en hið síðastnefnda er samið fyrir barítón
og strengjakvartett.
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ
13.00 FYRIRLESTUR
Á VEGUM SNORRASTOFU
Dr. Bjarni Guðmundsson flytur fyrirlestur um bústörf
Gísla Súrssonar og fólks hans í Haukadal.
16.00 Ó, LJÚFA SÓL
– ÍSLENSKAR KÓRPERLUR
Kvennakórinn Vox feminae
Stjórnandi: Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað
Efnisskráin er alíslensk, m.a. kórperlur eftir mörg
okkar þekktustu tónskáld eins og Atla Heimi
Sveinsson, Jón Ásgeirsson, Hjálmar H. Ragnarsson,
Báru Grímsdóttur og Hildigunni Rúnarsdóttur.
20.00 RÉTTTRÚNAÐUR OG RÓMANTÍK
– KAMMERTÓNLEIKAR
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla.
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla.
Anna Magdalena den Herder, víóla
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Sigurgeir Agnarsson, selló.
Kynnir: Guðni Tómasson
Efnisskráin samanstendur af einstaklega áheyri-
legum en sjaldheyrðum kammerverkum. Sérstakur
gestur á tónleikunum er hollenski víóluleikarinn
Anna Magdalena den Herder sem kemur í ár í fyrsta
sinn fram á Reykholtshátíð.
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ
14.00 HÁTÍÐARMESSA
16.00 HEIMSKRINGLUR OG HETJUDÁÐ
– LOKATÓNLEIKAR REYKHOLTSHÁTÍÐAR
Hljóðfæraleikarar Reykholtshátíðar
Guja Sandholt, mezzósópran
Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað, sópran
Oddur Arnþór Jónsson, barítón
Kynnir: Guðni Tómasson
Á efnisskrá er hinn stórkostlegi Píanókvintett í
f-moll eftir Johannes Brahms, en verkið er oft nefnt
drottning kammerverka þessa magnaða tónskálds.
Á tónleikunum fá áheyrendur að heyra sögu
Haralds konungs harðráða í stystu óperu í heimi,
eftir Judith Weir. Sagan er
byggð á Heimskringlu Snorra Sturlusonar og
einstakt að fá að upplifa flutning á verkinu
í Reykholti, bústað Snorra um árabil. Annars
konar Heimskringla, sönglagaflokkur Tryggva M.
Baldvinssonar við ljóð Þórarins Eldjárns, slær
botninn í Reykholtshátíð. Þessi Heimskringla
einkennist af hnyttni og húmor, bæði í textum
og tónsmíðum og mun senda tónleikagesti út
í sumarið með bros á vör.
r e y k h o l t s h a t i d . i s
Hin árlega söguganga fór fram á
írskum dögum á Akranesi fyrr í
mánuðinum. Gangan var á veg-
um Bókasafns Akraness og Skaga-
leikflokksins. Að þessu sinni voru
óvenju margir þátttakendur, eða
um 100 talsins, að sögn Hall-
beru jóhannesdóttur, sem er ein af
,,Kellingunum,” eins og þær kalla
sig.
Stansað var á nokkrum stöðum
sem tengjast Braga Þórðarsyni og
skrifum hans í gegnum tíðina. Les-
ið var úr bókum Braga og sungnir
söngvar. Fyrsti viðkomustaður var
Skátaheimilið. Síðan var haldið á
Kirkjubraut og rifjaðar upp minn-
ingar úr Ævisögu Odds fréttaritara.
Næsti viðkomustaður var Prent-
smiðjan. Síðan haldið að Brekku-
bæjarskóla og rifjaðar upp skóla-
minningar Braga, einnig sungnar
,,úmbrassavísur” - vísur Ólafs í
Mýrarhúsum. Næst var stansað við
gamla bókasafnshúsið á Heiðar-
braut, en þar var Bragi stjórnarfor-
maður um árabil. Þvínæst á horni
Stekkjarholts og Kirkjubrautar
(við Landakot) andspænis húsnæði
Bókaskemmunnar og Hörpuútgáf-
unnar. Loks var haldið í Bókasafn-
ið. Þar var boðið upp á hressingu
og skemmtilegt söngatriði. Voru
þátttakendur þakklátir ,,Kelling-
unum” fyrir skemmtilega stund.
mm/bþ/ Ljósm. aðsendar.
Kellingar hylltu heiðursborgara