Skessuhorn - 17.07.2019, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 201916
B59 Hótel í Borgarnesi stefnir að
því að opna ísbúð í húsnæði sínu í
næsta mánuði. Verður það í rým-
inu þar sem gjafavöruverslunin Fok
var til skamms tíma, áður en hún
flutti starfsemi sína yfir í Hyrnu-
torg í byrjun sumars. Nýja ísbúðin
fær nafnið ísbúð Ömmu Gógó og
segir Hendrik Björn Hermanns-
son hótelstjóri nafnið koma úr
persónulegri átt, en móðir hans er
oftar en ekki kölluð Amma Gógó
af barnabörnum sínum. „ísbúðin
verður í svona ömmu anda, ef svo
má segja. Við ætlum að bjóða upp á
vöfflur upp úr uppskrift frá ömmu
og svo pönnukökur úr uppskrift frá
mömmu. Við viljum skapa hlýja,
skemmtilega og lifandi stemningu
fyrir viðskiptavini ísbúðarinnar,“
segir Hendrik spenntur.
Ætla að vera með gamla
og nýja ísinn
Það hefur verið í umræðunni á
meðal bæjarbúa í Borgarnesi og ná-
grenni að það vanti ísbúð í pláss-
ið. Einu staðirnir til að verða sér
úti um þennan vinsæla, kalda eft-
irrétt er á bensínstöðvunum. Auk
þess sem að hægt er að kaupa sér
dall af ís í kjörbúðunum, sem marg-
ir eru sammála að sé ekki það sama
og að fá sér ís í brauði. „Við ætl-
um að bjóða upp á ís af öllum gerð-
um. Það verður rjómaís, gamli ís-
inn, sykurlaus ís, jarðaberjaís og
súkkulaðiís. Einnig verður hægt að
fá kúluís og svo allskonar nammi og
sætindi til að skreyta ísinn að utan
eða setja í bragðaref. Einnig ætl-
um við að vera með ís frá Laufey
ísgerð í Brekkukoti, svo það verð-
ur fjölbreytt úrval í ísbúðinni,“ seg-
ir Hendrik.
Hægt verður að
leigja veislusal
Ásamt ísbúð þá verður veislusal-
ur inni í sama rými, en settur verð-
ur upp skilveggur á milli til þess að
bjóða upp á þann valmöguleika að
halda afmælisveislur eða fundi eða
hvað það er sem fólk vill, að sögn
Hendriks. „Það verður hægt að
loka hérna á milli svo fólk getur
fengið næði fyrir sínar samkomur.
Einnig er sér inngangur inn í salinn
sem er stór plús fyrir svona veislu-
aðstöðu.“
Eins og fyrr segir er stefnt á að
opna ísbúðina í ágúst en Hend-
rik segir að ísvélarnar komi í hús
skömmu eftir verslunarmannahelgi.
„Það verður allt sett á fulla ferð þá.
Við tilkynnum opnunardag þegar
nær dregur og stefnum á að bjóða
ísinn á opnunardeginum sjálfum,
á 59 krónur, en auðvitað á með-
an birgðir endast. Við vonum að
bæjarbúar og gestir sem eiga leið í
gegnum bæinn nýti sér þetta óspart
og fái sér ís hjá Ömmu Gógó,“ seg-
ir Hendrik að lokum. glh
Valdís Þóra jónsdóttir og Stef-
án Orri Ólafsson fögnuðu sigri í
meistaraflokkum kvenna og karla á
meistaramóti Golfklúbbsins Leynis
2019, en mótinu lauk á laugardag.
Valdís lék best allra í mótinu, spilaði
á samtals átta höggum undir pari á
fjórum keppnishringjum. Hún fór
hringina fjóra á samtals 280 högg-
um og sigraði í meistaraflokki
kvenna, en Hulda Birna Kjærnes-
ted Baldursdóttir varð önnur á 359
höggum.
Stefán sigraði meistaraflokk karla
á 305 höggum, Þórður Emil Ólafs-
son varð annar á 309 höggum og
Björn Viktor Viktorsson þriðji á
311 höggum.
Alex Hinrik Haraldsson sigraði í
1. flokki karla á samtals 298 högg-
um, Viktor Elvar Viktorsson varð
annar á 304 höggum og Trausti
Freyr jónsson þriðji á 308 högg-
um.
Arna Magnúsdóttir sigraði í 1.
flokki kvenna á 329 höggum, Bára
Valdís Ármannsdóttir varð önnur á
346 höggum og Eva jódís Péturs-
dóttir þriðja á 350 höggum.
í 2. flokki karla varð Gabríel Þór
Þórðarson hlutskarpastur á 327
höggum, jón Vilhelm Ákason var
annar á 330 höggum og Vilhjálmur
Birgisson þriðji á 332 höggum.
Klara Kristvinsdóttir fagnaði
sigri í 2. flokki kvenna á 348 högg-
um, Elsa Maren Steinarsdóttir varð
önnur á 361 höggi og Ellen Ólafs-
dóttir þriðja á 383 höggum.
Kári Kristvinsson sigraði í 3.
flokki karla á 340 höggum, Einar
Gíslason varð annar á 350 höggum
og Sölvi Már Sigurjónsson þriðji á
355 höggum.
jóna Björg Ólsen sigraði í 3.
flokki kvenna á 324 höggum og
Helena Rut Steinsdóttir varð önn-
ur á 330 höggum.
Þórir Björgvinsson sigraði 4.
flokk karla á 404 höggum, Ægir
Mar jónsson varð annar á 414
höggum og Einar Brandsson þriðji
á 450 höggum.
Karlar 55-69 ára léku þrjá hringi.
Björn Bergmann Þórhallsson sigr-
aði á 250 höggum, Reynir Sigur-
björnsson varð annar á 260 högg-
um og þeir Tryggvi Bjarnason og
Sigurður Grétar Davíðsson deildu
þriðja sætinu á 261 höggi hvor.
Konur 50 ára og eldri léku þrjá
hringi. Hrafnhildur Geirsdótt-
ir sigraði á 297 höggum, Ingunn
Þóra Ríkharðsdóttir varð önnur á
305 höggum og Ólöf Agnarsdóttir
þriðja á 319 höggum.
í flokki 65 ára og eldri voru
sömuleiðis leiknir þrír hringir.
Guðrún Kristín Guðmundsdóttir
sigraði í kvennaflokki á 290 högg-
um. Haukur Þórisson sigraði karla-
flokkinn á 248 höggum en Reyn-
ir Þorsteinsson varð annar á 250
höggum og Þórður Elíasson þriðji
á 256 höggum.
Rósa Björk Lúðvíksdóttir sigraði
í opnum flokki kvenna á 220 högg-
um, en þar voru leiknir tveir hring-
ir. jónína Rósa Halldórsdóttir varð
önnur á 224 höggum og Gunnhild-
ur Björnsdóttir þriðja á 240 högg-
um.
Punktakeppni yngri
kylfinga
í flokki yngri kylfinga voru leikn-
ar níu holur. Guðlaugur Þór Þórð-
arson sigraði í karlaflokki með 38
punkta, Birkir Hrafn Samúels-
son varð annar með 37 punkta og
Hilmar Veigar Ágústsson, Sigurður
Brynjarsson og Árni Daníel Grét-
arsson deildu þriðja sætinu með 36
punkta hver. Vala María Sturlu-
dóttir sigraði í kvennaflokki með 35
punkta, Elína Anna Viktorsdóttir
varð önnur með 31 punkt og Vikt-
oría Vala Hrafnsdóttir þriðja með
14 punkta.
í flokki 18 ára og yngri voru
leiknir tveir hringir. Björn Viktor
Viktorsson sigraði með 78 punkta,
Kári Kristvinsson varð annar með
75 punkta og Ingimar Elfar Ágústs-
son þriðji með 67 punkta.
kgk/ Ljósm. Golfklúbburinn
Leynir.
Valdís og Stefán eru Akranesmeistarar í golfi
Valdís Þóra Jónsdóttir og Stefán Orri Ólafsson, Akranesmeistarar í golfi 2019. Efstu þrjár í 1. flokki kvenna. F.v. Eva Jódís Pétursdóttir, Arna Magnúsdóttir og
Bára Valdís Ármannsdóttir.
Efstu þrír í 1. flokki karla. F.v. Viktor Elvar Viktorsson, Alex Hinrik Haraldsson og Trausti Freyr Jónsson.
Ísbúð ömmu Gógó verður opnuð í Borgarnesi í ágúst.
Ísbúð Ömmu Gógó opnuð í Borgarnesi í ágúst