Skessuhorn - 17.07.2019, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 201918
Það er ekki óalgengt að sjá börn
jafnt sem fullorðna bregða sér nið-
ur á bryggju með veiðistöng síð-
degis og á kvöldin, sér til ánægju
eða til að veiða í soðið, nema hvort
tveggja sé. Algengt er að draga mar-
hnúta upp úr höfninni en stundum
bíta aðrar tegundir á krókinn, stöku
þyrsklyngar og makríll á sumrin,
sem dæmi. jafnan eru þessi fiskir
í smærri kantinum. Þeir verða því
að teljast heldur fengsælir lithá-
ísku starfsmennirnir sem voru við
kvöldveiði á Akraneshöfn á þriðju-
daginn í síðustu viku. Drógu þeir
myndarlega lúðu upp úr höfninni
sem vigtaði hvorki meira né minna
en 11 kíló.
Meðfylgjandi mynd af fisknum
tók Engilbert Runólfsson. Kvaðst
hann í samtali við Skessuhorn vart
hafa trúað eigin augum þegar hann
sá vigtina á fiskinum og taldi með
hreinum ólíkindum að svo stór
fiskur hafi veiðst í höfninni.
kgk
Það rigndi dálítið á sunnudaginn en
það var ekki nógu mikil úrkoma til
að gera gagn, það þarf miklu meira
en þetta Við vorum í Hítará við
veiðar,“ sagði júlíus Bjarni Bjarna-
son í samtali við tíðindamann
Skessuhorns. Nokkrir laxar veidd-
ust þann daginn.
„Ég var að koma úr Kjarará og
þegar ég fór heim voru komnir ell-
efu laxar í hollinu, en hollið á und-
an veiddi fimm laxa,“ sagði Baldur
Hermannson en Þverá og Kjarará
hafa gefið um 190 laxa og veiðin
togast rólega upp á við þessa dag-
ana. „Það er mikið af löxum í djúpu
hyljunum í ánni, eins og í Horn-
hyl og Hellgate. í Réttarhyl vit-
um við um risafisk, líklega um 30
punda ferlíki.“ Baldur segir að lax-
inn bunki sig í dýpstu hyljina og
taki mjög illa því sem veiðimenn
bjóða þeim. „já það hefur mest ver-
ið sól og hægviðri síðustu daga. Það
rignir lítið hjá okkur líkt og víðar í
landshlutanum,“ sagði Baldur.
Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum
eru byrjaðar að gefa fiska og síðasta
holl nældi í þrjá laxa og 33 bleikjur.
Veiðimenn sáu töluvert af fiski nið-
ur í lóninu, bæði laxa og bleikjur.
Veiðin er því rétt að komast af stað
og fiskurinn farinn að gefa sig.
gb
Bæjarráð Akranes fór yfir fram-
kvæmd írskra daga á fundi sínum
síðastliðinn fimmtudag. ísólfur Har-
aldsson, forsvarsmaður Vina hallar-
innar sem heldur Lopapeysuballið á
laugardagskvöldi hátíðarinnar, mætti
á fundinn. „Bæjarráð vill þakka öll-
um þeim sem tóku þátt í að skipu-
leggja og taka þátt í að gera upp-
lifun íbúa og gesta á írskum dög-
um á Akranesi eins vel heppnaða og
raun bar. Bæjarráð þakkar ísólfi fyr-
ir greinargóðar upplýsingar á fund-
inum og tekur undir orð hans um
að skerpa þurfi á undirbúningi fyrir
næsta ár svo öryggi gesta verði tryggt
þegar svo mikill fjöldi kemur saman
til skemmtanahalds.“
Eins og fram kom í frétt Skessuhorns
í liðinni viku varð talsverður troðning-
ur við miðasölu á Lopapeysuna þegar
margir komu að á sama tíma. Skapað-
ist um tíma hættuástand. Nú er stefnt
á að það endurtaki sig ekki að ári. mm
Sumarferð Félags skógarbænda á
Vesturlandi verður að þessu sinni
farin 7. ágúst, hringferð um innan-
vert Snæfellsnes og Skógarströnd.
„Rútan fer frá Búðardal um kl. 8:50
að Lindartungu í Kolbeinsstaðar-
hreppi og fer þaðan kl. 09:30, en þar
getur fólk geymt bíla sína. Stefnt er
að því að vera komin aftur að Lind-
artungu um klukkan 17. Fyrsti við-
komustaður er Landgræðsluskóg-
urinn í Hrossholti. Þvínæst er far-
in Vatnaleið, þá um Álftafjörð og
á Skógarströnd. Þar verða heim-
sóttar skógarjarðir og bændur segja
frá sínu. Sumsstaðar verður farið í
stuttar skoðunargöngur. Um há-
degisbil verður áð hjá Guðrúnu og
Kristni á Hálsi. Þau hafa góðfús-
lega boðið fram Hlöðusal sinn en
stjórn FSV leggur til matföng. Það-
an verður ekið áfram inn ströndina
rétt innfyrir Heydalsvegamót. Síð-
an haldið suður Heydal að Lindar-
tungu og loks í Búðardal. Lifandi
lýsingar og jafnvel skemmtisögur
verða í rútunni. Kostnaður fer eft-
ir fjölda en reikna má með 5.000 -
7.000 kr. á mann.
-fréttatilk.
Flestar laxveiðár á Vesturlandi eru í
sumar langt undir meðalveiði, sum-
ar vart svipur hjá sjón. Veiðin er
snöggtum skárri í ánum á Norður-
landi og Rangánum á Suðurlandi.
Þurrkar með tilheyrandi vatnsleysi,
auk lélegra árganga í laxabúskapn-
um, eru stærsta ástæðan fyrir lítilli
veiði á Vesturlandi. Veiðitölur sem
Landssamband veiðifélaga gefur út
vikulega vitna um erfiðar aðstæð-
ur til veiða. úr Norðurá í Borgar-
firði voru komnir 83 laxar á land á
miðvikudaginn í síðustu viku, sem
er tíundi hluti þess sem var á sama
tíma í fyrrasumar. Líklega hefur
upphaf veiðitímabilsins aldrei ver-
ið jafn slæmt þar og nú. úr Þverá
og Kjarará voru komnir 140 laxar
á land á miðvikudaginn, en viku-
veiðin var 49 laxar svo heldur hefur
glæðst þar yfir. í Haffjarðará höfðu
133 laxar veiðst, en ársveiðin þar í
fyrrasumar var 1545 laxar.
Urriðafoss í Þjórsá er efst á lista
íslensku ánna með 502 laxa síðast-
liðinn miðvikudag, en vikuveiðin
þar var 75 laxar. Þar sem þetta er
fremur nýtt stangveiðisvæði er ekki
hægt að bera saman mörg ár aftur
í tímann.
Nýjustu veiðitölur er alla mið-
vikudaga hægt að finna á angling.is.
mm
Lúðan er líklega með stærri fiskum sem veiðst hafa í Akraneshöfn í gegnum tíðina.
Ljósm. er.
Drógu ellefu kílóa
lúðu úr höfninni
Skógarbændur stefna á
ferð um Snæfellsnes og
Skógarströnd
Svipmynd úr safni af Laxfossi í Norðurá.
Veiðin í Norðurá tíundi hluti
þess sem var í fyrra
Veiðimaður kastar flugunni í Selstrengnum í Kjarará. Ljósm. Baldur.
Risafiskur í Réttarhylnum
Skerpa á undirbúningi fyrir
næsta Lopapeysuball
Svipmynd frá Lopapeysunni 6. júlí. Ljósm. Mummi Lú.