Skessuhorn - 17.07.2019, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 2019 19
Heimildamyndahátíðin Icelandic
Documentary Film Festival hefst
á Akranesi í kvöld, miðvikudaginn
17. júlí, og stendur fram á sunnu-
dag. Á hátíðinni verða sýndar 50
heimildamyndir alls staðar að úr
heiminum, þar af 30 í fullri lengd.
Lagt er upp úr fjölbreyttri dag-
skrá, léttum myndum og þung-
um auk barnamyndum. „Við ætl-
um að hafa sérstaka barnadagskrá
á morgnana samhliða hátíðinni,“
sagði Ingibjörg Halldórsdóttir, einn
skipuleggjenda hátíðarinnar, í sam-
tali við Skessuhorn í síðustu viku.
Þá verður ratleikur á laugardaginn
og fjör á Akratorgi og skemmtiat-
riði fyrir alla á kvöldin. Sem dæmi
má nefna að á laugardaginn mætir
Húlladúllan og skemmtir og börn-
in fá að prófa að húlla. Harmon-
ikkukóngurinn Reynir jónasson
skemmtir gestum með ljúfum tón-
um og Blaðrarinn býr til furðuhluti
úr blöðrum fyrir börnin. Hald-
in verður snú snú keppni og boð-
ið upp á andlitsmálningu, hoppað í
París og krítað. Enn fremur verða
stuttar heimildarmyndir verða
sýndar á hátíðinni, ætlaðar börnum
og ungmennum á aldrinum 10 til
16 ára og eru þær sýningar án að-
gangseyris.
Heimildarmyndirnar á hátíðinni
verða sýndar í Bíóhöllinni, Tón-
bergi og Byggðasafninu í Görð-
um. Dagskráin er nokkuð þétt en
þó verða allar myndir sýndar tvisv-
ar sinnum. Opnunarmynd hátíðar-
innar ber heitið In Touch, en það
er heimildarmynd um þorpið Stare
juchy í Póllandi. Stór hluti íbúa
þaðan hefur flutt til íslands undan-
farna áratugi og ekki snúið aftur. Sú
mynd verður sýnd í Bíóhöllinni kl.
19:30 í kvöld, miðvikudaginn 17.
júlí.
Nánar um dagskrá hátíðarinnar í
auglýsingu í Skessuhorni vikunnar
og á heimasíðunni www.icedocs.is.
kgk
Hvalaskoðunarbáturinn Láki fór
með ferðamenn í lundaskoðun og
sjóstangveiði miðvikudaginn 10.
júlí síðastliðinn. Það sem var óhefð-
bundið við þessa ferð er að einung-
is kvenmenn voru í áhöfn skipsins.
josephine Mayr var í sinni fyrstu
ferð sem skipstjóri þennan dag og
Sandra Hörbst var með henni í
áhöfn. Þá sigldu þær með farþega
að Melrakkaey í fuglaskoðun og
svo renndu farþegar fyrir fisk. Ekki
var annað að sjá í andlitum farþeg-
anna enn þeir hafi skemmt sér vel
og fengið einstaka upplifun.
tfk
Nýir eigendur tóku við Hvernum
og tjaldsvæðinu á Kleppjárnsreykj-
um í Borgarfirði í lok aprílmánaðar.
Það eru mágkonurnar Kristín Por-
ter og Guðrún Inga Bjarnadóttir
sem reka staðinn. Þær höfðu báð-
ar brugðið sér af bæ þegar blaða-
mann bar að garði svo það er Birg-
ir, eiginmaður Kristínar, sem sit-
ur fyrir svörum. „Ég kem til með
að verða hér með annan fótinn og
aðstoða eftir þörfum. Kristín og
Guðrún sjá um reksturinn, veit-
ingaskála, tjaldsvæði og gistingu.
Guðrún er reynslumikill bókari og
menntaður leiðsögumaður. Kristín
er heilsunuddari að mennt,“ seg-
ir Birgir þegar blaðamaður Skessu-
horns kom við í kaffi í Hvernum.
„Kristín hefur um tíma verið að
leigja út gistingu fyrir ferðamenn
og þótt það skemmtilegt. Það var
því ákveðið að prófa eitthvað nýtt
og taka ferðaþjónustustarfið skref-
inu lengra og það má segja að við
höfum fengið fangið fullt.
Ætla að draga lærdóm
af fyrsta sumrinu
Aðspurður segir Birgir ekki mikl-
ar breytingar fyrirhugaðar í Hvern-
um þetta árið. „Við vildum upp-
haflega taka við þessu í byrjun árs
en það gekk ekki upp. Við kom-
um hér í lok apríl og opnuðum tíu
dögum síðar svo það var ekki mik-
ill tími fyrir breytingar. Reksturinn
verður því með sama sniði og ver-
ið hefur út þetta tímabil. Lærdóm-
ur verður síðan dreginn af sumr-
inu. Þegar er ljóst að við erum að
reka okkur á eitt og annað sem bet-
ur mætti fara og munum við vinna
að úrbótum úr því fyrir næsta vor,“
segir Birgir og bætir við að stefnt
sé á að hafa meiri vetraropnun en
hefur verið. „Bragi, fyrrum eigandi,
hefur gert margt gott hér sem við
búum að, en það má alltaf gera bet-
ur og við munum leggja okkar af
mörkun til að bæta aðstöðu ferða-
manna enn frekar. Eitt af því sem
við viljum er að geta boðið upp á
opnun á veturna. Það verður svo
bara að koma í ljós hversu mikið
verður opið. Við sjáum það betur
þegar líður á haustið og veturinn.
Við erum í rauninni opin fyrir öllu,
hvort sem við verðum með opið
ákveðna daga eða jafnvel bara eft-
ir pöntunum. Ætli við stillum okk-
ur ekki bara eftir traffíkinni en við
vitum að hér er fólk á ferðinni allt
árið og við höfum hugleitt að hafa
tjaldsvæðið opið fyrir bíla á veturna
líka. Þetta verður skoðað í haust,“
segir hann.
Sérstök tenging við
Borgarfjörðinn
Aðspurður segir Birgir tengingu
þeirra við Borgarfjörðinn nokkuð
sérstaka, en afi Guðrúnar og Birg-
is er ættaður úr Flókadal í Borgar-
firði. „Afi okkar hét Magnús Pét-
ursson og pabbi hans bjó í Geirs-
hlíð. Hann ólst ekki upp hjá föð-
ur sínum og börn Péturs Magnús-
sonar í Geirshlíð voru ekki alsystk-
ini hans. Sjálfur þekki ég söguna
ekki nógu vel til að segja frá en það
er samt skemmtilegt að hafa þessa
tengingu hingað. Við fengum líka
ættingja okkar á ættarmót hér um
daginn sem var mjög gaman. Það
komu margir og spjölluðu við okk-
ur og kunnum við vel að meta það,“
segir Birgir og brosir. „Okkur finnst
Borgarfjörðurinn frekar vanmetinn
og efum ekki að umferð um svæðið
eigi nokkuð inni. Hér er fjölbreytt
afþreying og eftir því sem fólk áttar
sig á öllu sem hér er í boði teljum
við að svæðið muni sækja á. Aukin
dreifing mun stuðla að ánægjulegri
upplifun af landinu okkar fyrir alla
þá sem það sækja.“
Aðspurður segir hann vorið hafa
verið fínt á tjaldsvæðinu. „Þetta fór
hægt af stað, sem hentaði okkur vel.
„Hér var frábært veður í sex vikur
og ég er viss um að það hafi haft sitt
að segja. En við tökum þetta fyrsta
sumar í að læra og svo sjáum við til
hvernig næsta sumar verður. Það
hefur verið nóg að gera hér til að
halda okkur á tánum og við erum
fegin að vera ekki að kaffæra okkur
strax fyrstu dagana. Við erum kom-
in hingað til að vera svo við erum
alveg þolinmóð þó fyrsta sumarið
fari hægt af stað,“ segir Birgir.
Fjölskyldufyrirtæki
„Við leggjum mikla áherslu á súp-
urnar okkar. Ræktum sjálf gulræt-
ur í gúlrótarsúpu og tínum sveppi
í villisveppasúpu. Þessar tvær súp-
ur eru alltaf á boðstólnum og hafa
fengið gott lof frá gestum okk-
ar. Auk þess erum við með stuttan
en góðan matseðil. „Ekkert okkar
hefur mikla reynslu af svona eld-
hússvinnu, ekki nema bara eldun í
heimahúsi,“ segir Birgir og brosir.
„Við erum að læra jafnóðum. En
okkur langar að bjóða upp á fjöl-
breyttara úrval og stefnum á að
hafa rétt dagsins og eitthvað að-
eins meira úrval,“ bætir hann við.
Þau sjá sjálf um alla vinnuna og
hafa ekki ráðið til sín starfsfólk til
að létta undir. „Við sjáum sjálf um
matinn og við erum að vinna þetta
allt sjálf en búum svo vel að eiga
góða að til að hlaupa undir bagga
þegar mikið er að gera, þetta er
því fjölskyldufyrirtæki með sanni,“
segir hann „Við höfum eitt mottó
og það er; „höfum gaman af þessu“.
Heimamenn hafa tekið okkur ákaf-
lega vel og alltaf gaman þegar þeir
líta við í kaffi,“ segir Birgir að end-
ingu.
arg
Hverinn í Borgarfirði. Ljósm. úr safni frá í vor/mm.
Nýir eigendur Hversins segja sumarið byrja vel
Kristín Porter við afgreiðsluborðið í Hvernum. Hún er önnur af nýjum eigendum
staðarins, ásamt Guðrúnu Ingu Bjarnadóttur, mágkonu sinni. Ljósm. aðsend.
Láki kemur að bryggju þar sem að Arnar Guðlaugsson tekur á móti þeim Söndru
og Josephine.
Kvenkyns áhöfn í fyrsta
sinn hjá Láka
Josephine Mayr og Sandra Hörbst ánægðar með sína fyrstu ferð saman á Láka.
IceDocs hefst á Akranesi í kvöld