Skessuhorn


Skessuhorn - 31.07.2019, Síða 7

Skessuhorn - 31.07.2019, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 2019 7 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Verkalýðsfélag Akraness STJÓRNARKJÖR 2019 S K E S S U H O R N 2 01 9 www.vlfa.is Að óska eftir aðildarviðræðum við ESB og leggja kosti og galla aðildar undir dóm þjóðarinnar. Að auka aaheimildir í þorski um 30 til 40 þúsund tonn og leigja þær á frjálsum markaði. Að stöðva útutning á óunnum gámaski, en slíkt myndi skapa ölmörg störf hér á landi. Að auðlindum hafsins verði komið aftur í eigu þjóðarinnar. Að afnema verðtrygginguna við fyrsta tækifæri. Að koma með skýra aðgerðaáætlun um hvernig á að hjálpa skuldsettum heimilum. Þessar vikurnar er þeim að blæða út. Að koma með skýra aðgerðaáætlun um hvernig á að örva og ea atvinnulíð. Að atvinnuleitendum verði heimilt að stunda nám á meðan þeir eru á atvinnuleysisbótum. Að koma okkar sjónarmiðum vegna deilna við Breta vel á framfæri við alþjóðasamfélagið. Að misbjóða ekki þjóðinni með því fá Breta til að sinna hér loftrýmisvörnum á sama tíma og þeir telja okkur vera hryðjuverkamenn. Að skipt verði út stjórnendum í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu enda virðast þeir aðilar ekki njóta trausts og trúnaðar íslensku þjóðarinnar. Að stórea upplýsingaæði til almennings. Íslenska þjóðin vill vita, hvað er verið að gera - hvað er búið að gera og hvað hyggist þið gera. Að fenginn verði óháður erlendur aðili til að rannsaka hrun bankakersins og þar verði hverjum steini velt við. Að leitað verði allra leiða til að frysta eigur þeirra útrásarvíkinga sem stóðu að útrás bankanna á meðan rannsókn fer fram á hruni bankakersins. Að allir þeir aðilar sem skuldsettu íslenska alþýðu uppí rjáfur á erlendri grundu verði látnir sæta ábyrgð og einnig þeir eftirlitsaðilar sem brugðust sínu hlutverki. Stjórn Verkalýðsfélags Akraness skorar á ríkisstjórn Íslands Stjórn Verkalýðsfélags Akraness www.vlfa.is                Verkalýðsfélag Akraness Sunnubraut 13 | 300 Akranes | Sími 430 9900 | Fax 430 9901 | skrifstofa@vlfa.is Samkvæmt 29. gr. laga Verkalýðsfélags Akraness ber að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjór ar. Framboðslistum til stjórnarkjörs í Verkalýðsfélagi Akraness árið 2019, ásamt meðmælendum skv. reglugerð ASÍ um allsherjar- atkvæðagreiðslur, ber að merkja kjörstjórn og skila á skrifstofu félagsins, Sunnubraut 13, fyrir kl. 12:00 þann 12. ágúst nk. Hv rt þ ð fram- boð er gilt sem fram kemur innan þess tíma og hefur skriflegt samþykki þeirra sem framboðslistann skipa. Stjórn og trúnaðarráð Verkalýðsfélags Akrane s hefur lagt fram framboðslista til stjórnar sem hægt er að skoða inná heimasíðu félagsins. Berist kjörstjórn ekki aðrir listar telst framboðslisti stjórnar og trúnaðarráðs sjálfkjörinn samkvæmt 29. gr. laga Verkalýðsfélags Akraness. Sunnubraut 13 | 300 Akranes | Sími 430 9900 | skrifstofa@vlfa.is Reykholtskirkja Verið velkomin í Reykholtskirkju 7. sd. e. trin. er sunnudaginn 4. ágúst Guðsþjónusta kl 14 S K E S S U H O R N 2 01 9 / L jó sm . G uð la ug ur Ó sk ar ss on Þeir Kristján Helgi Carrasco og Kristinn Birkisson lögðu af stað í göngu um öræfi íslands í lok júní þegar þeir lögðu af stað frá Lóni á Austurlandi. Þeir gengur þvert yfir hálendi íslands og niður í Borgar- fjörð í vestri og náðu á áfangastað í fjörunni við Grjóteyri rétt utan við Borgarnes á mánudagskvöld- ið. Þá höfðu þeir gengið rúmlega 580 kílómetra á 30 dögum, frá fjöru í austri yfir í fjöru í vestri. Hugmyndin af göngunni kvikn- aði út frá drögum að gönguleið sem þau Róbert Marshall, Bryn- hildur Ólafsdóttir, Páll Ásgeir Ás- geirsson, Rósa Sigrún jónsdótt- ir og Einar Skúlason settu saman yfir kjötsúpu. Þau langaði að setja saman langa og krefjandi gönguá- skorun um ísland, sambærilega þeim sem eru til víða erlendis. Þau vörpuðu fram þessari gönguleið í gegnum tímaritið úti og óskuðu eftir göngufólki til að fara þessa leið. Þeir Kristján Helgi og Krist- inn ákváðu að slá til. Ekki eins laskaðir og þeir bjuggust við Við komuna að Grjóteyri á mánu- dagskvöldið tók á móti þeim hóp- ur fólks sem fylgdi þeim síðustu metrana niður að sjó. Þar ætluðu þeir að stinga tánum í sjóinn sem endapunkt göngunnar en enduðu á að stinga sér til sunds í sjónum. En hvernig kom það til að þeir lögðu af stað í þessa ferð? „Æv- intýraþrá,“ svarar Kristján Helgi. „Þetta er í rauninni lífið okkar bara. útivist er okkar aðal áhuga- mál,“ bætir Kristinn þá við. Þeir segjast ekki hafa lagt í svo stórt verkefni áður. „Þetta er svona það stærsta fram að þessu en við það má segja að við þrífumst á að ögra sjálfum okkur og gera krefjandi hluti,“ segja þeir félagar. Spurð- ir hvort eitthvað hafi komið þeim sérstaklega á óvart á leiðinni eru þeir sammála um að það hafi verið hversu mikið þeir gátu gengið án þess að klára alla orkuna. „Við vor- um að ganga að meðaltali 23 kíló- metra á dag og tókum fjóra daga í hvíld. Við gengum mest 36 kíló- metra á einum degi en við urðum held ég aldrei alveg úrvinda á leið- inni,“ svarar Kristinn. „Ég bjóst við því að við yrðum meira laskað- ir en okkur hefur bara liðið vel og alveg náð að halda sönsum,“ bætir Kristján Helgi við og Kristinn tek- ur undir. „Við vorum alveg búnir undir að þetta yrði erfitt andlega en það var svo ekki. Það hjálpaði örugglega að við fengum rosalega gott verður alla leiðina, það komu bara fjórir rigningardagar en aldrei neitt brjálað veður. Það hjálpaði örugglega líka að við erum báð- ir mjög jákvæðir og sterkir, bæði í hausnum og skrokknum svo það gerir allt mikið auðveldara,“ segja þeir. Bættust mörg ævintýri í bókina Nú þegar göngunni er lokið hvað tekur þá við? „Að fá okk- ur ís í Borgarnesi,“ segir Kristinn og hlær. „Svo fer maður bara að- eins til ömmu Helgu á Skagan- um,“ bætir Kristján Helgi við. Að- spurðir segja þeir þetta ekki vera þeirra síðasta ævintýri. „Núna þurfum við bara að setjast niður og fara yfir þessa ferð saman og svo taka bara við önnur ævintýri,“ seg- ir Kristinn. „Það bættust við ansi mörg ævintýri í bókina á leiðinni,“ bætir Kristján Helgi við og hlær. „En núna tekur bara við að fara að vinna aftur og svo höldum við bara alltaf áfram að gera eitthvað svona skemmtilegt,“ segja þeir að endingu. arg Gengu þvert yfir Ísland frá austri til vesturs Þeir félagar skáluðu við vini og fjölskyldu sem kom að fylgja þeim síðustu metrana niður að sjó. Kristján Helgi Carrasco og Kristinn Birkisson gengu þvert yfir Ísland frá austri til vesturs á 30 dögum. Hér eru þeir að fagna á endastöð við Grjóteyri.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.