Skessuhorn


Skessuhorn - 31.07.2019, Síða 8

Skessuhorn - 31.07.2019, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 20198 Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni hefur fyrirtækið Quadracan Iceland Development ehf. haft hug á að reisa vindorku- garð í landi Sólheima í Laxárdal. Tillaga að matsáætlun fyrir um- hverfismat vegna þessara áforma er nú til kynningar. RúV greinir frá. Fyrirhugað er að reistar verði allt að 27 vindmyllur sem gætu þá skil- að allt að 115 megawöttum á 3.200 hektara svæði á Laxárdalsheiði, í landi Sólheima. Frá staðnum eru um tíu kílómetrar til Borðeyrar en um 23 km í Búðardal. Áætlað er að skipta framkvæmdum upp í tvo áfanga. Fyrst verði reistar 20 vind- myllur með 85 MW hámarksaf- köstum og síðan sjö vindmyllur til viðbótar sem geti skilað allt að 30 MW samtals. Turnar vindmyllanna verða á bilinu 91,5 til 105 metrar á hæð og þvermál spaðanna frá 117 og upp í 136 metra. Ætlunin er að nota vindmyllur sem gerðar eru fyrir kalt lofstlag, með ísvörn og íseyð- ingu auk sjálfvirkrar stjórnunar á snúningshraða sem tekur mið af hita og raka, svo síður safnist ís á spaðana sem kastast síðan af þeim. í tillögu að matsáætluninni kem- ur fram að þetta svæði henti vel til virkjunar vindorku vegna stöðugra sterka vindstrengja á afskekktu svæði langt frá byggð. Aðgengi að núverandi vegakerfi telst gott auk þess sem stutt er í tengingu við raf- orkukerfið. Forsvarsmenn fyrir- tækisins hafa átt samtal við skipu- lagsyfirvöld í Dalabyggð um breyt- ingar vegna þessa á aðalskipulagi, en auk þess kallar verkefnið á deili- skipulag framkvæmdasvæðisins. Matsáætlunina má lesa í heild sinni á vef Mannvits. Öllum er frjálst að skila ábendingum eða gera athugasemdir við áætlunina til 1. ágúst. kgk Franska skemmtiferðaskipið Le Boreal kom til hafnar á Akranesi í þriðja skiptið síðasta laugardag. Skipið kom síðast á Akranes í ágúst í fyrra. Le Boreal var smíðað árið 2010 og er tæplega 11.000 brúttó- tonn, 142 metrar að lengd, 18 metr- ar að breidd og með djúpristu upp á 4,8 metra. Le Boreal ferjar 264 far- þega, auk áhafnar sem telur um 140 manns. Alls voru sjö skipakomur bókaðar fyrir sumarið á Akranes, þ.e. sex ko- mur skemmtiferðaskipsins Panora- ma frá 6. júní til 26. ágúst og eina komu Le Boreal sem var síðasta laugardag. í fyrra sumar kom Pan- orama tólf sinnum á Akranes. Sagt var frá því fyrr á árinu að áætlað yrði að 2019 yrði það stærsta hvað varðar skipakomur farþegaskipa og farþegafjölda. Alls var áætluð 201 skipakoma farþegaskipa til hafna Faxaflóahafna með samtals 190.784 farþega. glh Klukkan 11:33 á laugardag var haft samband við stjórnstöð Land- helgisgæslu íslands og óskað eftir þyrlu til Ólafsvíkur vegna vélhjóla- slyss. Áhöfnin á TF-GRO var ein- mitt á leið á æfingu á þeim tíma og brást skjótt við. Tekið var á loft frá Reykjavík tíu mínútum eftir að kall- ið barst og þyrlan lenti með mann- inn við Landspítalann í Fossvogi kl. 12:58. kgk/ Ljósm. Landhelgisgæslan. Sóttu slasaðan mann í Ólafsvík Le Boreal við Akraneshöfn. Ljósm. úr safni. Franskt skemmtiferðaskip á Akranesi Matsáætlun vegna vindorkugarðs til kynningar Allt að 27 vindmyllur gætu risið í landi Sólheima

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.