Skessuhorn


Skessuhorn - 31.07.2019, Side 11

Skessuhorn - 31.07.2019, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 2019 11 Þegar blaðamaður Skessuhorns renndi í hlað að Runnum í Reyk- holtsdal á föstudaginn kom Máni Hilmarsson ríðandi í hlað. „Hann var eitthvað að villast þessi svo ég var að sækja hann,“ segir Máni um leið og hann hoppar af baki og sleppir brúnum hesti lausum í gerði við hesthúsið að Runnum. Við eltum Mána inn í hesthús þar sem hann býður blaðamanni sæti á kaffistofunni. Tilefni heimsókn- arinnar er Heimsmeistaramót ís- lenska hestsins sem fram fer í Berl- ín 4.-11. ágúst en þar mun Máni keppa í fjórgangi og slaktaumatölti á Lísbetu frá Borgarnesi. Er þetta í annað skipti sem Máni keppir á heimsmeistaramóti, en hann keppti árið 2017 í fimmgangi og kom þá heim með gullið. Blendnar tilfinningar Aðspurður segir Máni blendnar tilfinningar að fara út til að taka þátt á heimsmeistaramóti þar sem hann getur ekki tekið hestinn með sér heim aftur. „Ég er að fara að keppa á níu vetra hryssu sem pabbi ræktaði. Hefur hún því verið í fjöl- skyldunni frá því hún var folald og ég hef sjálfur verið að þjálfa síð- ustu fimm ár. Það verður sérstakt að koma heim eftir mótið og hún verður ekki hér. En þetta er stórt tækifæri fyrir mig sem ég gæti ekki hafnað og það kostar bara þetta,“ segir Máni. „Þegar ég fór síðast var ég líka með hest sem við höfð- um sjálf ræktað og ég þurfti að skilja eftir, það var erfitt en svona er þetta. Hann fór á gott heimili í Bretlandi og hryssan mun líka fara þangað,“ segir hann. Gefandi starf Máni er að verða 22 ára gam- all Borgfirðingu. Hann kemur af miklu hestafólki og ólst upp í kring- um hesta og vinnur í dag við að þjálfa, temja, rækta og keppa. „Ég hef bara alltaf verið í þessu, þetta er í blóðinu,“ segir hann og bros- ir. „Ég er búin að vinna við þetta frá því ég var 17 ára og lífið snýst um hestamennskuna. Ég elska það sem ég geri, annars hefði ég örugglega ekki náð að endast þetta lengi því dagarnir í hesthúsinu eru mjög langir,“ segir hann. „Ég gæti ekki séð fyrir mér að fara að vinna á hefðbundnum skrifstofutíma, þá hefði ég ekkert að gera á kvöldin,“ bætir hann við og hlær. „Við erum fjögur sem vinnum hér saman og erum allt árið með um 32 hesta á húsi í einu. Það er alltaf nóg að gera sem er bara frábært því þetta er gefandi starf. Mér líður alltaf best í kringum dýr, þau gefa líf- inu mínu tilgang,“ segir hann ein- lægur. „Það er líka einstaklega gott að vera hér í sveitinni því við erum með góða aðstöðu og í svo mikilli nálægð við náttúruna. Við getum líka haft hestana mikið úti og ver- ið sjálf mikið úti. Ég er mikið nátt- úrubarn,“ segir hann. Strangar reglur um sóttvarnir En snúum okkur að heimsmeist- aramótinu, hvernig háttar hann undirbúningi fyrir svo stórt mót? „Það þarf fyrst og fremst að skoða vel heilsufar hryssunnar og fylgj- ast með því. Svo þarf að halda áfram að þjálfa hana, en bara ró- lega samt því hún þarf mikla hvíld fyrir bæði mótið og ekki síst ferða- lagið. Þetta er langt ferðalag fyr- ir hrossin og það er ekki gott að þau séu þreytt,“ svarar Máni. „Það verða mikil viðbrigði fyrir íslensku hrossin að koma út. Það er mikið heitara en hér og bara allt öðru- vísi loftslag. Sum hross eiga mjög erfitt fyrst eftir komuna út,“ seg- ir hann. Aðspurður segir Máni það mjög frábrugðið að keppa á móti er- lendis og hér heima. „Venjulega þegar ég keppi hér heima er ég að hugsa um svona 30 hesta en úti er ég bara að hugsa um einn, það er frekar sérstakt. Sóttvarnirnar í kringum okkur úti gerir það líka mjög sérstakt að keppa þar. Um- gjörðin er bara allt önnur. Það eru mjög strangar reglur um alla um- gengni við íslensku hestana og í kringum allan okkar búnað, bæði svo hestarnir okkar verði ekki veikir á mótinu og svo við ber- um ekki smit heim eftir mót. Við megum ekki ríða á sömu reiðleið- um og aðrir hestar og sjálf meg- um við sem erum í kringum ís- lensku hestana ekki koma nálægt neinum öðrum hestum,“ útskýrir Máni. „Hestarnir okkar eru svo einangraðir hér og ekki búnir að byggja upp ónæmi fyrir ýmsum bakteríum þarna úti. Það er því mjög mikilvægt að gæta vel að öllu hreinlæti til að bera ekki sýkingar í hestana. Allur búnaður sem við notum úti verður líka að vera eftir þar, nema það sem hægt er að sótt- hreinsa,“ bætir ann við. Kíkir á hryssuna í vetur Aðspurður segir hann mótið leggj- ast vel í sig. „Það er mikill heiður að fá að taka þátt á heimsmeistara- móti. En ég er heppin og hef ótrú- lega gott fólk í kringum mig sem sér til þess að ég geti gert þetta, ég kæmist ekki langt einn,“ seg- ir Máni og brosir. „En eins og ég segi eru þetta blendnar tilfinning- ar en það er samt gott að vita af því að hryssan fer á gott heimili og ég ætla einmitt að kíkja þangað til þeirra í vetur.“ arg Máni ásamt Landsliði Íslands í hestaíþróttum. Ljósm. úr safni. Máni og Lísbet halda til Berlínar á heimsmeistaramót Máni Hilmarsson og Lísbet frá Borgarnesi eru á leiðinni á Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Berlín. Ljósm. úr einkasafni. Máni keppti einnig á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins fyrir tveimur árum og hreppti þá gullið. Hér er hann á verðlauna- pallinum. Ljósm. úr safni/ Gísli Einarsson.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.