Skessuhorn - 31.07.2019, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 201912
Borgnesingurinn Þórkatla Dagný
Þórarinsdóttir útskrifaðist nýlega
sem stoðtækjafræðingur frá háskól-
anum í jönköping í Svíþjóð. Þar
hefur hún skotið niður rótum og
stundað nám síðastliðin þrjú ár og
ver nú sumrinu á íslandi með kær-
asta sínum, fjölskyldu og vinum
áður en hún heldur aftur út til Sví-
þjóðar til að hefja störf sem stoð-
tækjafræðingur. Skessuhorn setti sig
í samband við Þórkötlu Dagnýju og
fékk að heyra hvernig það kom til að
hún ákvað að leggja stoðtækjafræð-
ina fyrir sig. Fagið er ekki kennt hér
á landi og þurfti Þórkatla að fara ör-
litla krókaleið á sínum námsferli til
þess að finna sitt rétta fag.
Leitaði að
stoðtækjafræðinni
Þegar Þórkatla útskrifaðist úr
Menntaskóla Borgarfjarðar á sín-
um tíma var hún ekki alveg viss
hvað skyldi taka við eftir stúdent-
inn. Hún vissi þó að áhuginn lá hjá
mannslíkamanum. „Ég hef alltaf
haft mikinn áhuga á mannslíkam-
anum og hvernig hann virkar og sá
alltaf fyrir mér að ég myndi vinna
með hann á einn eða annan hátt. Ég
skráði mig í heilbrigðisverkfræði
í Háskólanum í Reykjavík en fann
fljótt að það var ekki það sem ég
var að leitast eftir,“ segir Þórkatla
við blaðamann Skessuhorns. Þór-
katla tók eina önn í heilbrigðisverk-
fræðinni í HR og áttaði sig á því að
um of mikla verkfræði væri að ræða.
„Ég sá fyrir mér að ef ég hefði hald-
ið áfram þá leið, þá væri ég lítið að
vinna með fólki, sem ég sækist mik-
ið í, heldur væri ég meira fyrir fram-
an tölvuna,“ bætir hún við.
Hafði samband
við Össur
Þórkatla tók örfáar beygjur á náms-
ferlinum áður en hún fann loksins
stoðtækjafræðina, en eins og fyrr
segir þá er þetta nám ekki í boði á
íslandi. Vissi Þórkatla því ekki ná-
kvæmlega hvað það var sem hún
leitaði að, en hélt þó ótrauð áfram
leitinni. „Ég skráði mig í geisla-
fræði í Háskóla íslands og tók eitt
ár í því námi til að sjá hvort það
væri fyrir mig. í gegnum það nám
fékk ég sumarstarf hjá Orkuhúsinu
í Reykjavík á röntgendeild en fann
fljótt að það væri ekki alveg það
sem ég var að leita að,“ segir Þór-
katla en þáverandi yfirmaður henn-
ar hjá Orkuhúsinu kom Þórkötlu í
samband við starfsmann hjá stoð-
tækjafyrirtækinu Össuri. „Það var
hjá Orkuhúsinu sem ég rambaði
inn á stoðtækjafræðina. Ég sendi
tölvupóst á Össur og sagði þeim að
ég væri að hugsa um að fara að læra
stoðtækjafræði. Þau buðu mér að
koma í heimsókn sem ég þáði. Þar
fékk ég að tala við fólk sem kynnti
fyrir mér hvað það væri að gera. Ég
fékk í rauninni að vita hvað felst í
því að vera stoðtækjafræðingur.“
Þórkatla segist hafa tekið mjög
upplýsta ákvörðun þegar hún lét
svo loks vaða og sótti um nám í há-
skólanum í jönköping í Svíþjóð.
Hún hafði prófað heilbrigðisverk-
fræðina, geislafræðina og fengið
góða innsýn í störf stoðtækjafræð-
inga hjá Össuri á íslandi eftir heim-
sókn sína í fyrirtækið. „Af því nám-
ið var erlendis þá vildi ég vera alveg
viss um að þetta væri eitthvað sem
ég vildi læra og að það væri ekki
eitthvað annað hérna heima sem
ég myndi fíla betur,“ segir Þórkatla
sem sótti svo um í skólanum í Sví-
þjóð.
Talaði ekki orð í sænsku
Össur mælti með nokkrum skólum
fyrir Þórkötlu þar sem hún gæti lært
stoðtækjafræði, þar á meðal skólan-
um í jönköping sem er eini skólinn
þar í landi og býður upp á þetta til-
tekna nám. Hún sótti fyrst um árið
2015 en þá vantaði nokkrar eining-
ar í eðlisfræði upp á að hún fengi
inngöngu. Þórkatla dró hvergi fæt-
urna í þeim efnum og skráði sig í
fjarnám, græjaði það undir eins á
meðan sem hún starfaði á röntg-
endeildinni hjá Orkuhúsinu. Ári
seinna, haustið 2016, komst Þór-
katla inn í skólann og flutti til Sví-
þjóðar. „Það er allt kennt á sænsku
þarna úti. Ég hafði engan bakgrunn
í tungumálinu nema dönskuna sem
maður lærði í grunnskóla á sínum
tíma. Svo í rauninni kunni ég ekki
stakt orð,“ rifjar Þórkatla upp sem
er í dag talar reiprennandi sænsku.
Hún bjó fyrstu fimm næturn-
ar á hóteli sem hún lýsir sem fata-
skáp, en engir gluggar voru á her-
berginu. „Ég veit ekki hversu oft ég
hugsaði, hvað í fjandanum ég væri
búin að koma mér út í, sérstaklega
þarna á fyrstu dögunum,“ segir hún
og hlær.
Þórkatla segir þetta tímabil í
byrjun hafa verið mjög skrítið og
að það hafi verið óþægilegt að
flytja út með ekkert húsnæði fast í
hendi, sem bjargaðist þó fyrir rest.
Að sögn Þórkötlu þá gekk nám-
ið vel en að hún hafi þurft að hafa
vel fyrir því að meðtaka námsefn-
ið í byrjun. „Fyrstu önnina þá sat
maður bara í tímum og vissi ekk-
„Hef alltaf haft áhuga á
hvernig mannslíkaminn virkar“
Þórkatla Dagný frá Borgarnesi er nýútskrifaður stoðtækjafræðingur
Þórkatla Dagný, stoðtækjafræðingur. Ljósm. glh.
Fyrsti fóturinn sem Þórkatla smíðaði í skólanum.