Skessuhorn


Skessuhorn - 31.07.2019, Qupperneq 22

Skessuhorn - 31.07.2019, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 201922 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Hvaða dýr myndirðu helst vilja vera? Spurni g vikunnar (spurt á Akranesi) Guðmundur Óskarsson: „Api.“ Móeiður Sigvaldadóttir: „Ugla.“ Arna Gerður Hafsteinsdóttir: „Hundur.“ Valgerður Sólveig Sigurðardóttir: „Maðurinn.“ Sigríður Herdís Guðmundsdóttir: „Maðurinn.“ Víkingur Ó. og Þróttur R. gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í 14. umferð Inkasso deild- ar karla í knattspyrnu. Leikið var í Ólafsvík á fimmtudagskvöld. Heimamenn voru öflugri í fyrri hálfleik, áttu ágætis marktilraun- ir en sköpuðu sér þó engin dauða- færi. Eftir hálftíma leik áttu Ólafs- víkingar langt innkast inn á teig og skot framhjá eftir at í teign- um. Þegar nær dró hléinu þyngd- ist sókn þeirra enn. Vidmar Miha átti hörkuskot úr aukaspyrnu sem Arnar Darri Pétursson varði vel í marki gestanna. Harley Willard fór síðan illa með varnarmenn Þróttara og átti skot að marki sem var var- ið. Harley var síðan aftur á ferðinni rétt fyrir hléið þegar hann átti skot yfir markið úr vítateignum. jafnræði var með liðunum í upp- hafi fyrri hálfleiks. Rafael Victor fékk gott færi fyrir gestina þeg- ar hann átti frían skalla eftir horn- spyrnu en hitti ekki á markið. Vid- mar og Harley áttu síðan ágætis til- raunir fyrir Víking skömmu síðar en skutu báðir framhjá markinu. Sal- lieu Tarawallie slapp skömmu síðar einn innfyrir vörn Þróttar en skotið hans var slakt. Aldrei voru heima- menn þó nær því að skora en á 77. mínútu þegar þeir skalla í þverslána eftir hornspyrnu. Boltinn bara vildi ekki inn og loka- tölur urðu því 0-0 jafntefli. Víkingur Ó situr í fimmta sæti deild- arinnar með 22 stig, tveimur stigum á eftir Leikni R. og jafn mörgum stig- um á undan Fram í sætinu fyrir neðan. Ólafsvíkingar léku norður á Akureyri gegn Þór í gærkvöldi, þriðjudaginn 30. júlí. Sá leikur var hins vegar ekki hafinn þegar Skessuhorn fór í prent- un. kgk/ Ljósm. úr safni. íA og Valur mættust í hörkuleik í 14. um- ferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu á sunnudagskvöld. Leikið var á Akranesi og lauk leiknum með sigri Valsmanna, 1-2. Gestirnir voru öflugri í upphafi leiks og komust yfir á 16. mínútu eftir mistök Skaga- manna. Arnór Snær Guðmundsson steig ofan á boltann og Kristinn Freyr Sigurðs- son komst einn á móti Árna Snæ Ólafssyni í marki Skagamanna. Kristinn var óeigin- gjarn, lagði boltann á Sigurð Egil Lárusson sem gat ekki annað en skorað. Skagamenn voru nálægt því að jafna á 24. mínútu. Albert Hafsteinsson sendi fyrir markið á Stefán Teit Þórðarson sem smell- hitti boltann en Hannes Halldórsson varði glæsilega á þverslána og yfir. Upp úr horn- spyrnunni kom síðan jöfnunarmarkið. Stef- án Teitur fékk boltann, sendi hann á Hall Flosason sem stangaði hann í netið. Staðan orðin 1-1 og þannig var hún í hálfleik. Tryggvi Hrafn Haraldsson var nálægt því að koma íA yfir á upphafsmínútu síð- ari hálfleiks, en skot hans fór rétt framhjá markinu. Bæði lið áttu sín hálffæri næstu 20 mínúturnar eða svo. En á 58. mínútu dró til tíðinda þegar Patrick Pedersen féll í vítateignum eftir viðskipti sín við Arnar Má Guðjónsson. Vítaspyrna var dæmd en Skagamenn voru allt annað en sáttir við þá niðurstöðu. Patrick fór sjálfur á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Skagamenn lágu á Valsmönnum á loka- mínútum leiksins en tókst ekki að jafna metin. Bjarki Steinn Bjarkason komst í gott færi í uppbótartíma en skaut boltanum yfir markið. Það voru því Valsmenn sem fóru með sigur af hólmi á Akranesvelli. Skagamenn sitja í þriðja sæti deildarinn- ar með 22 stig, stigi á eftir Breiðabliki í sæt- inu fyrir ofan en stigi á undan Stjörnunni. Næst leika Skagamenn á móti FH í Hafn- arfirði þriðjudaginn 6. ágúst næstkomandi. kgk Spánverjinn Antoni Vicens hefur skrifað undir samning við Körfu- knattleiksdeild Skallagríms og mun leika með liði Borgnesinga í 1. deild karla næsta vetur. Antoni er 29 ára gamall, 204 cm á hæð og leikur stöðu miðherja. Síðast lék hann með Coulom- miers Brie Basket í NM2 deildinni í Frakklandi en áður hefur hann leikið í Austurríki og heimalandinu Spáni. „Ánægja er með að fá Vicens í Borgarnes en hann mun styrkja liðið vel undir körfunni,“ segir í til- kynningu á Facebook-síðu Skalla- gríms. kgk Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við tap gegn Augnabliki þegar liðin mættust á Skallagrímsvelli í Borgarnesi í 14. umferð 3. deildar karla á fimmtudagskvöld. Gestirnir mættu ákveðnari til leiks og sóttu hart að heimamönn- um á upphafsmínútunum. Stefán Ingi Sigurðarson kom Augnabliki yfir á 19. mínútu eftir góða sókn. Skallagrímsmenn sýndu þó eng- in merki þess að ætla að slá slöku við og sýndu mikla baráttu og vilja í sýnum aðgerðum. Uppskáru þeir í vítaspyrnu á 37. mínútu. Viktor Ingi jakobsson fór á punktinn fyr- ir Borgnesinga og sendi boltann ákveðinn í hægra hornið og jafnaði metin. Staðan 1-1 þegar gengið var til búningsklefa. í síðari hálfleik voru heima- menn mun sprækari, þjörmuðu að gestunum og virtust líklegri til að skora. Augnabliksmenn voru hins vegar klókir gegn Borgnesingum. Á 75. mínútu varð einhver rugl- ingur í sókn þeirra gulklæddu sem gestirnir nýttu sér, hirtu boltann, brunuðu upp völlinn í skyndisókn sem endaði með því að Stefán Ingi skoraði sitt annað mark þegar hann kom sínum mönnum yfir á ný, 1-2. Ekki náði Skallagrímur að jafna metin þrátt fyrir að hafa skapað sér nokkur álitleg marktækifæri og þurftu þeir því að sætta sig við enn eitt tapið. Eftir þrettán umferðir sitja Skallagrímsmenn í botnsætinu með sex stig, einu stigi á eftir KH sem á þó leik til góða. Augnablik styrkir stöðu sína í botnbaráttunni og eru þeir nú í níunda sæti með þrettán stig. Næsti leikur Skallagríms verð- ur gegn KF á Ólafsfjarðarvelli mið- vikudaginn 31. júlí og hefst hann klukkan 19:00. glh Unnar Þór Garðarsson var í síð- ustu viku ráðinn þjálfari meistara- flokks kvenna í íA. Honum til að- stoðar verður Aron Ýmir Péturs- son. Þeir taka við þjálfun af þeim Helenu Ólafsdóttur og Anítu Lísu Svansdóttur sem sögðu starfi sínu nýverið upp. „Unnar Þór hef- ur viðamikla reynslu að baki sem þjálfari. Aron Ýmir hefur nokkra reynslu að baki sem þjálfari og hef- ur undanfarið starfað sem þjálfari í yngri flokkum félagsins,“ segir í til- kynningu frá KFíA. „Knattspyrnu- félag íA hlakkar til samstarfsins við Unnar Þór og Aron Ými og býður þá velkomna til starfa hjá félaginu. Aðalstjórn vill þakka Helenu Ólafs- dóttur og Anítu Lísu Svansdóttur fyrir góð störf sem þjálfarar meist- araflokks kvenna, og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.“ mm Viktor Ingi fagnar með liðsfélögum sínum eftir að hafa skorað úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Súrt tap hjá Skallagrími Taka við þjálfun meistaraflokks kvenna Frá undirritun samnings við þá Unnar Þór og Aron Ými. Með þeim á myndinni er Sigurður Þór Sigursteinsson framkvæmdastjóri KFÍA. Spænskur miðherji í Skallagrím Boltinn vildi ekki í netið Hallur Flosason í mikilli baráttu í leiknum gegn Val. Hann skoraði eina mark Skagamanna. Ljósm. gbh. Skagamenn töpuðu í hörkuleik

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.