Skessuhorn


Skessuhorn - 11.09.2019, Side 14

Skessuhorn - 11.09.2019, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPtEMBER 201914 Síðastliðinn fimmtudag fór fram áhugaverð ráðstefna samtímis á sex stöðum á landinu. til umfjöllunar voru tækifæri og áskoranir sem hin- ar dreifðu byggðir landsins standa frammi fyrir samhliða því sem kallað er fjórða iðnbyltingin. Ekki var um venjulega málstofu að ræða því sam- tímis fór hún fram með dagskrá á sex stöðum og auk þess send út á netinu. Hér á Vesturlandi var fundað í hús- næði Símenntunarmiðstöðvarinnar í Borgarnesi, en auk þess á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Reyðarfirði og Selfossi. Málstofan var skipulögð af Nýsköpunarmiðstöð Íslands og landshlutasamtökum sveitarfélaga í samvinnu við Byggðastofnun. Ráð- herrarnir Þórdís Kolbrún R. Gylfa- dóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson ávörpuðu ráðstefnugesti. Megininntak málþingsins eru þau tækifæri sem liggja í fjórðu iðnbylt- ingunni fyrir dreifðar byggðir. „Að hugsa til framtíðar gefur tækifæri á að takast á við breytingar, dagurinn í dag er nýtt upphaf. Þéttbýlisstað- ir og borgir víðs vegar um heim- inn eru upptekin af því að þróa það sem nefnt er snjallar lausnir, oftast í tengslum við stafræna þróun. Oft er um að ræða aukna sjálfvirkni og að innleiða nýjungar sem eru skil- virkari í tengslum við atvinnuþróun, menntun, heilbrigðismál eða annað. tækifærin eru ekki síður við þróun dreifðra byggða. Hvernig getum við hagnýtt þessa þróun fyrir dreifðari byggðir,“ var meðal þess sem rætt var um. „Með fjórðu iðnbylting- unni skapast tækifæri fyrir dreifðar byggðir fyrir aukna þjónustu og ný störf en um leið njóta allra þeirra lífsgæða sem búseta í dreifðum byggðum hefur í för með sér.“ Ell- efu manns héldu erindi og yrði of langt mál að gera öllum erindum skil. Hér verður því stiklað á stóru. Tæknibreytingar þjóna öllum Í opnunarræðu Þórdísar Kolbrún- ar R. Gylfadóttur, iðnaðar- og ný- sköpunarráðherra, kom fram að fólki væri nauðsynlegt að reyna að rýna inn í framtíðina. tæknin mun leiða til þess að fjölmörg störf munu hverfa, verða bókstaflega óþörf. Ný störf munu hins vegar taka við, störf sem við höfum vart hugmyndaflug enn til að ímynda okkur. Stjórn- völdum og atvinnulífi er hins veg- ar nauðsynlegt að sporna gegn því ójafnvægi sem fjórða iðnbyltingin mun leiða af sér. tækniþekkingu má til dæmis ekki einvörðungu verða að finna á höfuðborgarsvæðinu, nefndi hún sem dæmi. „Það er því nauð- synlegt að mæta tæknibreytingum með opnum huga, læra að þekkja falsfréttir frá réttum og tileinka okk- ur grænar lausnir.“ Sagði hún tækni- breytingar til langs tíma þjóna öll- um. Stappaði hún stálinu í lands- byggðarfólk og benti á að lífsgæði í hreinni og óspilltri náttúru vega meira en að sitja fastur í umferðar- teppu. Störf munu leggjast af David Wood, breskur framtíðar- fræðingur, ávarpaði málþingsgesti og fór yfir þá þróun sem orðið hefur á tæknisviðinu síðastliðin 15 ár og spáði svo fyrir um hvar við verðum stödd eftir önnur fimmtán ár. Fyr- ir fimmtán árum var samskiptafor- ritið twitter ekki til, en í dag hef- ur það 330 milljón notendur. Á Wi- kipediu voru tíu þúsund greinar árið 2003 en þær eru nú 40 millj- ónir talsins. Þá voru tíu milljón- ir vanþróaðra snallsíma árið 2003, en í dag eru snjallsímanotendur 330 milljónir með gríðarlega fullkom- in tæki í höndunum. Hann, líkt og aðrir sem ávörpuðu þingið, benti á nauðsyn þess að efla menntun og fræðslu, með þeim hætti eingöngu gæti fólk brugðist við þeim breyt- ingum sem verða samhliða auk- inni tækni. „Flest nútíma störf eru í hættu samhliða fjórðu iðnbylting- unni, því allar tækniframfarir snúast um að lækka kostnað.“ Áhersla á menntun er lykilþáttur María Kristmundsdóttir hjá Al- coa Fjarðaáli fjallaði í erindi sínu um tækniþróun í framleiðsluiðn- aði. Fyrirtækið sem hún starfar hjá skaffar 90 milljarða í útflutnings- tekjur á ári. Sjálfvirkni er sífellt að aukast og benti hún á að fjórða iðn- byltingin væri þegar hafin. „Það er sérkenni allra dreifðra byggða að hver og einn einstaklingur hefur breiðara hlutverki að gegna en sá sem býr í þéttbýli. Sama á við um stóriðju sem reist er á landsbyggð- inni. tiltölulega stórt fyrirtæki í fá- mennu byggðarlagi þarf að vera svo margt í senn; reka slökkvilið, bakarí, heilbrigðisþjónustu og fjölmargt fleira. Við hjá Fjarðaáli eru meðvit- uð um þetta hlutverk okkar í samfé- laginu á Austfjörðum. Við horfum mikið til lífsgæða út frá samfélags- legum þáttum og fjörða iðnbylt- ingin þarf því að mótast af þörfum samfélagsins.“ Benti hún á tækni- framfarir sem meðal annars fel- ast í að spjaldtölvuvæða ýmis sam- skipti og gagnagrunna. Nefndi hún vaktakerfi, viðhaldsforrit, fram- leiðsluvöktun, videóþjálfun starfs- fólks og fleira. Lagði María áherslu á að grunnforsenda fyrir vexti og viðgangi fyrirtækisins og mann- auðs sem þar er að finna sé áhersla á menntun. „Stóriðjan þarf ætíð að standa framarlega í tækniþekkingu og við lítum svo á að það sé hlut- verk okkar fyrirtækis að sýna sam- félagslega ábyrgð og standa okkur í innleiðingu tækninnar.“ Tæknin virkar í báðar áttir Garðar Már Birgisson hjá Þulu á Akureyri fjallaði um áskoranir sem fyrirtæki hans stendur frammi fyr- ir. Þula er hugbúnaðarframleið- andi fyrir heilbrigðiskerfið og sel- ur mest af sínum búnaði til annarra Norðurlanda. tækni er oftast not- uð í samskiptum við viðskiptavini. Lýsti hann áhyggjum yfir að ýmis starfsemi hafi færst frá landsbyggð- inni. Lögð hefur verið áhersla á að senda út á landsbyggðina störf sem skapa ekki mikið af öðrum störf- um í kringum sig og nefndi hann símsvörun sem dæmi um störf sem leggjast af þegar tækniþekking eykst. Sagði hann alltof algengt að fyrirtæki slíti barnsskónum á lands- byggðinni en flytji svo annað, jafn- vel úr landi, eftir að þau ná að þrosk- ast. tók hann dæmi af lyfjaskömmt- un sem nú fer að mestu fram á höf- uðborgarsvæðinu, en gæti allt eins farið fram í útlöndum. „Vinnan mun færast til vélmenna, hvar sem þau verða stödd. Sama mun ger- ast með sérhæfðar lækningar sem í framtíðinni munu fara fram í gegn- um netið.“ Nefndi Garðar dæmi um prentiðnaðinn sem nú er að mestu farinn úr landi, sem og vef- hýsing. Sagði hann ánægjulegt að verða vitni af fyrirtækjum sem ná að halda starfsemi sinni í landinu, svo sem hátæknifyrirtækin Skag- Ræddu tækifæri dreifðra byggða í fjórðu iðnbyltingunni Tæknin mun breyta flestum störfum en skapa ný tækifæri Fjórða iðnbyltingin snýst um tækniframfarir sem munu gera fjölda starfa óþörf, en önnur koma að einhverju leyti í staðinn. Menntun er lykilþáttur til að nýta tækifærin. Málþingsgestir í Borgarnesi komu sér fyrir í kennslusal Símenntunarmiðstöðvarinnar.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.