Skessuhorn - 18.09.2019, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 18. SEpTEMBER 20196
Óhöpp og slys í
umferðinni
VESTURLAND: Þriggja bíla
árekstur varð á Akranesvegi, við
hringtorgið fyrir ofan verslun
Bónuss á laugardag. Þegar einn
bíll var stöðvaður á biðskyldu
var öðrum ekið aftan á hann og
síðan var þeim þriðja ekið aft-
an á þann bíl. Engin slys urðu á
fólki en minniháttar skemmdir
á bifreiðunum. Bíll valt á gatna-
mótum Útnesvegar og Háarifs
á sunnudagskvöld. Ökumað-
ur taldi sig hafa ekið of geyst í
beygjuna með þeim afleiðing-
um að hann missti bílinn út af
veginum þar sem hann lenti á
ljósastaur og tengikassa og valt
að lokum. Ökumaður og far-
þegi voru fluttir á sjúkrahúsið á
Akranesi til aðhlynningar. Með-
fylgjandi mynd er tekin á þeim
vettvangi. -kgk/Ljósm. af.
Landsæfing
framundan
SNÆFELLSNES: Landsæf-
ing Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar fer fram í Snæfellsbæ og
nágrenni laugardaginn 5. októ-
ber næstkomandi. „Einingar á
svæði 5 hafa unnið að undirbún-
ingi síðustu mánuði og stefnir í
að æfingin verði hin glæsileg-
asta. Verkefnin verða með fjöl-
breyttu sniði og verður eitthvað
í boði fyrir alla; bátaverkefni,
drónar, fjallabjörgun, fyrsta
hjálp, leitarverkefni, rústabjörg-
un, straumvatnsbjörgun, kaf-
araverkefni, sleðaverkefni, að-
gerðarstjórn, hundaverkefni og
tækjaverkefni,“ segir í tilkynn-
ingu til félaga í björgunarsveit-
unum. Hópar munu geta fengið
gistingu í grunnskólanum og á
laugardagskvöldinu verður grill
fyrir þátttakendur. -mm
Samið um rekstur
sundlaugar
HVALFJ.SV: Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar samþykkti á
fundi sínum þriðjudaginn 10.
september að semja við Aldísi
Ýr Ólafsdóttur um rekstur sund-
laugarinnar að Hlöðum sumar-
ið 2020, en hún annaðist rekst-
ur laugarinnar á liðnu sumri.
Jafnramt lýsti sveitarstjórn yfir
ánægju sinni með aðsóknina að
sundlauginni að Hlöðum í sum-
ar. Ríflega fjögur þúsund gestir
heimsóttu laugina á þeim tíma
sem hún var opin síðasta sumar.
-kgk
Forðast að bera
smit til landsins
LANDIÐ: Matvælastofnun
beinir þeim tilmælum til fólks
sem er að koma frá Noregi að
gæta ýtrustu varkárni til að koma
í veg fyrir að sjúkdómur í hund-
um þar í landi berist til Íslands.
Smitið, sem lýsir sér í blóðugum
uppköstum og niðurgangi, hefur
valdið bráðum dauða þrátt fyr-
ir meðhöndlun. Fólk sem hef-
ur verið í mikilli snertingu við
veika hunda eða verið á svæðum
þar sem mörg tilfelli hafa greinst
er bent á að skipta um fatnað
og þrífa og sótthreinsa skófatn-
að fyrir komu. Bann við inn-
flutningi hunda frá Noregi sem
Matvælastofnun setti 6. septem-
ber mun verða áfram í gildi um
óákveðinn tíma. -mm
Bátur losnaði frá
bryggju
STYKKISH: Báturinn Gull-
hólmi losnaði frá bryggju í
Stykkishólmi í leiðindaveðri
um kl. 19:30 á sunnudagskvöld.
Kallað var eftir aðstoð Björg-
unarsveitarinnar Berserkja sem
mætti á staðinn og kom bönd-
um á bátinn og festi hann við
bryggju að nýju. -kgk
Skilti ekin niður
HVALFJSV: Umferðarskilti á
gatnamótum Vesturlandsvegar
og Grundartangavegar voru ekin
niður miðvikudaginn 11. sept-
ember sl. Ekki er vitað hver var
að verki, því sá virðist hafa látið
sig hverfa af vettvangi. Lögregla
hefur málið til rannsóknar. -kgk
Reyndi að stela
hjólhýsi
BORGARNES: Íbúi í Borg-
arnesi tilkynnti lögreglu um að
reynt hefði verið að stela hjól-
hýsinu frá heimili hans aðfarar-
nótt fimmtudags. Um morgun-
in sáust greinileg merki þess að
reynt hafði verið að ræna hjól-
hýsinu. Þjófarnir hurfu hins veg-
ar frá verkinu, því þeir reyndu
að draga það á brott í hand-
bremsu og með bæði fætur þess
og nefhjólið niðri. Þessar aðfar-
ir þjófanna ollu smávægilegum
skemmdum á hjólhýsinu. -kgk
Laust fyrir klukkan 11 á sunnu-
daginn varð mjög harður árekst-
ur tveggja bíla á Grjóteyrarhæð.
Þrír voru í öðrum bílnum og einn
í hinum. Tveir voru fluttir alvar-
lega slasaðir á sjúkrahús í Reykjavík
og var annar þeirra, erlendur ferða-
maður, úrskurðaður látinn síðar
um daginn. Einn var fluttur til að-
hlynningar á Heilsugæslustöðina í
Borgarnesi.
Vegna slyssins var Borgarfjarðar-
braut lokuð í um fjóra tíma á sunnu-
daginn meðan rannsókn á vettvangi
fór fram. Lögregla hefur ekki gefið
út hver tildrög slyssins voru. mm
Í tilefni af 75 ára lýðveldisafmæli Ís-
lands hefur Rarik ohf. fært íslenska
ríkinu jörðina Dynjanda við Arnar-
fjörð að gjöf. Formleg afhending
fór fram á Degi íslenskrar náttúru
síðastliðinn mánudag. Skráður eig-
andi Dynjanda var RARIK ohf, sem
er opinbert hlutafélag í eigu ríkis-
ins og stofnað 1. ágúst 2006. Fé-
lagið tók þá við rekstri Rafmagns-
veitna ríkisins sem hófu starfsemi
sína 1. janúar árið 1947. Þannig má
líta á gjöfina sem gjafagjörning þar
sem opinberri eign er komið fyrir í
öðrum vasa sama eiganda.
Innan marka jarðarinnar er nátt-
úruvættið Dynjandi ásamt vatna-
sviði fossanna í Dynjandisá. Dynj-
andi er meðal hæstu fossa landsins,
nær 100 metra hár, og af mörgum
talinn ein af fegurstu náttúruperl-
um Íslands. Hann er einn helsti
viðkomustaður ferðamanna á Vest-
fjörðum. Svæðið við Dynjanda er
að mestu ósnortið og einkennist
af áhrifum jökla sem hafa sorfið
landið og skilið eftir sig einstak-
lega mikinn fjölda vatna og tjarna
á Dynjandisheiði.
„Vegna sérstöðu þessa mikil-
fenglega náttúrvættis og tengingar
jarðarinnar við fæðingarstað Jóns
Sigurðssonar, ákvað stjórn RARIK
að færa ríkissjóði Íslands jörðina
Dynjanda að gjöf á lýðveldisafmæl-
inu. Samhliða því sem jörðin var af-
hent í dag undirrituðu Guðmund-
ur Ingi og Birkir Jón Jónsson, for-
maður stjórnar RARIK, samkomu-
lag milli ríkisins og RARIK. Mark-
mið þess er að tryggja útivistar- og
náttúruverndargildi jarðarinnar og
náttúruvættisins Dynjanda. Dynj-
andi og aðrir fossar í Dynjandisá
ásamt umhverfi þeirra voru frið-
lýst sem náttúruvætti árið 1981 en
af hálfu stjórnvalda er nú stefnt að
friðlýsingu allrar jarðarinnar,“ seg-
ir í tilkynningu um gjafagjörning-
inn.
mm
Banaslys á Borgarfjarðarbraut
Birkir Jón Jónsson, formaður stjórnar Rarik, afhendir hér Guðmundi Inga Guð-
brandssyni umhverfisráðherra plagg til staðfestingar á að ríkið eigi nú jörðina
Dynjanda.
Ríkisstofnun gefur
ríkinu jörðina Dynjanda