Skessuhorn - 18.09.2019, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 18. SEpTEMBER 201922
Tina Cotofana hefur frá því í sumar
stundað svepparæktun á Bæ í Bæjar-
sveit, þar sem hún er búsett. Ræktar
hún sveppina í gámi sem hún hefur
innréttað sérstaklega. Hún er lærð-
ur listamaður og vinnur að ýmsum
verkefnum á því sviði en hefur lengi
haft áhuga á hvers kyns heimarækt-
un. Hún fékkst þannig við sveppa-
rækt til eigin nota fyrir allnokkrum
árum en það var ekki fyrr en ný-
lega að hún ákvað að stofna fyrir-
tækið Sveppasmiðju, hefja fram-
leiðslu á sveppum og selja til veit-
ingahúsa. Undirlagið til ræktunar-
innar býr hún til sjálf, en það sam-
anstendur af viði og næringarefn-
um, svo sem hveitiklíði eða kaffi.
Framleiðslan fer fram í rými fyr-
ir aftan heimili hennar, sem helst
líkist lítilli rannsóknarstofu. Þar er
undirlagið útbúið, sveppagróunum
komið fyrir á því og það síðan sett
inn í sérstakan ræktunarklefa þar
sem hitastigið er alltaf í kringum 19
gráður og rakastigið um það bil 90
prósent.
„Þessi aðstaða er í raun tilraun.
Mig langaði að prófa að rækta til
að selja, sjá hvort áhugi væri fyrir
þessu og síðan sjá til með framhald-
ið,“ segir Tina í samtali við Skessu-
horn. „Þetta byrjaði í raun allt sam-
an fyrir um það bil einu og hálfu ári
síðan þegar vinur minn sagði mér
frá grein um svepparækt í Bænda-
blaðinu. Áður hafði ég ræktað
sveppi sem áhugamál fyrir löngu
síðan og ég hugsaði með mér að
þetta væri gaman að prófa. Ég fór
að afla mér upplýsinga, prófa mig
áfram í afar litlu magni og síðan
keypti ég gám og byrjaði að inn-
rétta hann. Það tók mig fimm mán-
uði og er í raun ekki alveg búið, því
ég á þrjú lítil börn og þarf að skipu-
leggja mig í kringum þau. En síðan
fékk ég leyfi frá heilbrigðiseftirlit-
inu í lok júní og þá gat ég byrjað að
rækta til að selja, þannig að þetta er
tiltölulega nýtilkomið,“ segir Tina.
Selur sveppi
og ræktunarsett
Þegar Skessuhorn bar að garði
var Tina að rækta fjórar mismun-
andi tegundir ostrusveppa, sem all-
ir eru matsveppir. Auk þess var ver-
ið að rækta Reishi sveppi, sem eru
til dæmis notaðir í te, en ekki til
matar. „Þeir hafa mjög góð áhrif
á ónæmiskerfið,“ segir hún. „Mat-
sveppina sel ég til veitingastaða hér
í nágrenninu. Ef ég á afgang þá
segi ég frá því á Facebook-síðunni
minni, Sveppasmiðja. Þá getur fólk
komið og keypt. Síðan ef ég er að
fara til Reykjavíkur tilkynni ég það
líka á síðunni og þá getur fólk pant-
að hjá mér,“ segir Tina. En hún sel-
ur ekki aðeins sveppina sem hún
rætkar, heldur ræktunarsett líka
fyrir fólk að rækta sína eigin sveppi
heima við. „Það virðist vera nokk-
uð vinsælt um þessar mundir. Ég
þarf stundum að passa mig aðeins
því blokkirnar sem ég sel sem rækt-
unarsett get ég auðvitað ekki notað
sjálf. Ég þarf ákveðið magn í hverri
viku til að mæta eftirspurninni og
þarf að gæta þess að raska ekki því
skipulagi með því að selja frá mér of
mikið af undirlagi. En það er auð-
vitað algjört lúxusvandamál,“ segir
hún og brosir.
„Vaxa nokkurn veginn
hvar sem er“
Ef fólk hefur áhuga á að rækta
sveppa heima við segir Tina al-
mennu regluna að halda þurfi
þeim frá sólarljósi og þurrki, sjá til
þess að lofta um þá og vökva þá.
„Ef það er gert eru þeir meira og
minna sáttir og vaxa nokkurn veg-
inn hvar sem er. Það er til dæmis
mjög fínt að hafa þá í eldhúsinu,“
segir hún. „Undirlagið er síðan
hægt að nota aftur, en það fer að-
eins eftir því hvaða tegund er rækt-
uð hverju sinni hversu oft er hægt
að nota kubbana,“ bætir hún við.
„Þegar ekki er hægt að nota kubb-
ana lengur til ræktunar má nota þá
til að byggja upp jarðveg, þeir eru
einhver besta molta sem maður
getur fengið,“ segir Tina.
Áhugamönnum um svepparætk-
un er bent á að 17. nóvember verð-
ur sérstakur viðburður helgaður
sveppum í brugghúsi Steðja. Þar
er ætlunin að stefna saman fagfólki
og áhugamönnum um svepparækt.
„Þar munum við hittast, ræða sam-
an um svepparækt, eldamennsku og
allt sem tengist sveppum. Það eru
ótrúlega margir sem hafa áhuga
á sveppum og stunda svepparækt.
Það verður gaman að hittast, miðla
þekkingu og læra af hvort öðru.“
Spurð hvort hún hafi í hyggju að
stækka við ræktunina með tíð og
tíma segir hún að það verði bara að
koma í ljós. Núna framleiðir hún
allt að 10 kg á viku af sveppum, auk
þess að selja ræktunarsettin. Þegar
ræktunin verði komin í full afköst
áætlar hún að geta selt milli 20 og
30 kg á viku, eftir því hvaða teg-
undir hún ræktar hverju sinni. „En
ef vel gengur þá gæti vel farið svo
að ég stækki ræktunina. Sveppir
njóta nokkuð vaxandi vinsælda og
það eru ótrúlega margir sem rækta
heima á Íslandi, miklu fleiri en ég
hélt áður en ég fór að kynna mér
málið,“ segir Tina
Sveppir til matar og
hreinsunar
Tina telur að sveppir gætu leikið
stærra hlutverk í daglegu lífi okk-
ar í framtíðinni en þeir gera í dag.
„Við lifum á tímum þar sem sífellt
fleiri eru að verða gagnrýnir á kjöt-
framleiðslu. Fyrir þá eru sveppir
áhugaverður kostur, þeir eru mjög
næringarríkir og mjög góð upp-
spretta prótíns, til dæmis. Sumir
sveppir geta meira að segja byggt
upp D-vítamín, með aðstoð sér-
stakra lampa. Það myndi henta
sérstaklega vel hér á Íslandi,“ seg-
ir hún. „Einnig er hægt að nota
sveppi til að hreinsa olíuleka,“ bæt-
ir hún við. „Ef olía kemst í jarð-
veg er mengaði jarðvegurinn graf-
inn upp, viði blandað saman við og
vatni bætt út í. Síðan eru ræktunar-
kubbarnir muldir og blandað sam-
an við. Að því búnu er breitt yfir
og sveppirnir látnir stofna þar ný-
lendu. Best er að nota „ákveðna“
sveppi eins og ostrusveppi, því þeir
borða allt; pappa, kaffikorg, jafnvel
blauta sokka og ég veit ekki hvað,“
útskýrir hún og hlær. „Þegar svepp-
irnir hafa haslað sér völl í þessari
menguðu blöndu taka þeir til við að
brjóta olíuna niður í minna skað-
lega efnisþætti. Ég mæli ekki með
því að borða sveppi sem vaxa upp
úr þessu, en það sem eftir stendur
er að minnsta kosti ekki jafn skað-
legt og olíumengaður jarðvegur,“
segir Tina. „ Einnig eru til aðferðir
til að hreinsa skurði milli túna með
aðstoð sveppa, en oft má sjá olíu-
brák á vatninu í þeim sem kemur
úr jarðveginum. Til slíkrar hreins-
unar yrðu notaðar ræktunarblokk-
ir sem búið er að nota. Ég á nóg af
þeim og yrði bara þakklát ef ein-
hver gæti hjálpað mér að minnka
hauginn,“ segir hún og bætir því að
vinur hennar, sem starfar hjá Land-
búnaðarháskóla Íslands á Hvann-
eyri, hafi áhuga á að gera ítarlegar
tilraunir með sveppi til að hreinsa
upp olíu. „Þetta er mjög áhugavert.
Síðan hafa meira að segja fundist
sveppir sem geta brotið niður plast!
Ég var að lesa mér til um þetta ný-
lega. Við ættum að hafa auga með
sveppunum í framtíðinni,“ segir
Tina Cotofana að endingu.
kgk/ Ljósm. Josefina Morell.
„Sveppir eru mjög næringarríkir og mjög góð uppspretta prótíns,“ segir Tina.
„Ættum að hafa auga með sveppunum í framtíðinni“
- segir Tina Cotofana, svepparæktandi í Bæjarsveit í Borgarfirði
Tina Cotofana, svepparæktandi í Bæjarsveit.
Sveppirnir eru ræktaðir á undirlagi úr viði og næringarefnum, nokkurs konar
kubbum, sem Tina útbýr sjálf. Kubbana má síðan nota aftur.
Sveppir í ræktuninni hjá Tinu á Bæ í Bæjarsveit.