Skessuhorn - 25.09.2019, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 201928
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Árni Snær Ólafsson, markvörð-
ur og fyrirliði ÍA, hefur endurnýj-
að samning sinn við liðið til tveggja
ára. Mun hann því leika með
Skagamönnum út keppnistímabil-
ið 2021.
Árni Snær er fæddur árið 1991
og á að baki 150 leiki með meist-
araflokki ÍA í deild og bikar. Hann
hefur leikið veigamikið hlutverk í
liði ÍA um langa hríð og verið fyr-
irliði liðsins undanfarin tvö sumur.
Árni á auk þess að baki þrjá leiki
með U21 árs landsliði Íslands og
tvo leiki með U19 ára landsliðinu.
Sigurður Þór Sigursteinsson,
framkvæmdastjóri Knattspyrnu-
félags ÍA, lýsir yfir mikilli ánægju
með að samið hafi verið við Árna
Snæ að nýju. „Árni Snær hefur
veirð lykilmaður í liði ÍA síðasta
áratug og alltaf staðið fyrir sínu.
Það er því gríðarlegt fagnaðarefni
að hann skuli hafa framlengt samn-
ing sinn við félagið,“ segir Sigurð-
ur Þór.
kgk
Breska körfuknattleikskonan Char-
lotte thomas-Rowe mun leika með
Skallagrími í Domino‘s deildinni á
komandi vetri. Charlotte er 24 ára
að aldri og leikur stöðu bakvarð-
ar. Hún lék með Skólaliði Grande
prairie Regional Collage í Alberta
fylki í Kanada árið 2016 og hef-
ur síðan þá leikið með félagsliðum
bæði á Ítalíu og í Danmörku. Síð-
asta keppnistímabil lék hún með
liði Lemvig í dönsku úrvalsdeild-
inni.
Samið við þrjár ungar
Þá hefur Körfuknattleiksdeild
Skallagríms einnig samið við þær
Ingu Rósu Jónsdóttur, Lisbeth
Ingu Kristófersdóttur og Heiði
Karlsdóttur.
Inga Rósa er 18 ára gömul og
uppalin hjá Skallagrími. Hún lék
með Snæfelli veturinn 2017-2018
en tók sér hlé frá körfuknattleik síð-
asta vetur. Hún snýr nú aftur heim
í Borgarnes og tekur slaginn með
Skallagrími í Domino‘s deildinni.
Inga Rósa leikur stöðu bakvarðar.
Lisbeth og Heiður eru báðar 14
ára að aldri og koma úr uppsveit-
um Borgarfjarðar. Þær hafa æft
með Umf. Reykdæla undanfarin
ár og leikið með sameiginlegum
liðum Skallagríms og Reykdæla í
yngri flokkunum, auk þess að hafa
æft með meistaraflokki Skallagríms
síðasta vetur. kgk
Knattspyrnuþjálfarinn Ejub purise-
vic er hættur sem þjálfari Víkings
Ó. eftir að hafa starfað hjá félaginu
og þjálfað meistaraflokk karla nær
samfellt í 17 ár. „Knattspyrnudeild
Víkings Ó. og Ejub purisevic hafa
tekið sameiginlega ákvörðun um að
ljúka 17 ára farsælu samstarfi sínu,“
segir í tilkynningu frá Víkingi Ó.
Ejub kom fyrst til Víkings árið
2003 sem spilandi þjálfari og und-
ir hans stjórn hafa Ólafsvíkingar
skipað sér í hóp með betri knatt-
spyrnuliðum landsins. Liðið var
nánast á botninum í neðstu deild
þegar hann tók við liðinu en var
komið í næstefstu deild árið 2005.
Undir stjórn Ejubs komst Víkingur
Ó. í fyrsta sinn í deild þeirra bestu
árið 2013 og aftur léku Ólafsvík-
ingar þar 2016 og 2017. „Árangur
Ejubs með liðið undanfarin ár hef-
ur verið frábær en til marks um það
má nefna að undanfarin níu tímabil
hefur liðið aldrei endað neðar en í
fjórða sæti í B-deild. Þá hefur lið-
ið spilað þrjú tímabil í deild þeirra
bestu og tvívegis komist í undanúr-
slit í bikarkeppni,“ segir í tilkynn-
ingu félagsins.
Fyrir störf sín í þágu félagsins var
Ejub sæmdur gullmerki Víkings
Ó. á lokahófi liðsins, sem haldið
var um síðustu helgi. Í tilkynningu
félagsins eru honum færðar þakkir
fyrir framlag sitt til uppbyggingar
knattspyrnu í Snæfellsbæ og óskað
velfarnaðar í framtíðinni. „Ejub er,
og verður alltaf, stór hluti af knatt-
spyrnusögu Ólafsvíkur.“
kgk/ Ljósm. úr safni/ bþb.
Körfuknattleikskonan Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir hefur endurnýjað
samning sinn við Skallagrím. Mun
hún því leika með liði Borgnesinga
í Domino‘s deild kvenna á komandi
vetri.
Sigrún er þrítug að aldri, fyrirliði
Skallagríms og reynslumesti leik-
maður liðsins, en hún á að baki á
þriðja hundrað leikja í efstu deild. Á
sínum ferli hefur hún hampað bæði
Íslands- og bikarmeistaratitlum.
Hún hefur leikið með Skallagrími,
Haukum, KR, Hamri og Grindavík
á sínum meistaraflokksferli sem og
franska liðinu Olimpique Sanno-
is og Norrköping Dolphins í Sví-
þjóð. Þá á hún að baki 53 lands-
leiki fyrir Íslands hönd. „Sigrún er
reynslumesti leikmaður liðsins og
fyrirliði og því dýrmætt að Skalla-
grímur njóti krafta hennar áfram,“
segir í tilkynningu á Facebook-síðu
Skallagríms. kgk
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir í leik með Skallagrími síðasta vetur. Ljósm. úr safni.
Sigrún Sjöfn áfram
með Skallagrími
Charlotte Thomas-Rowe, nýr erlendur leikmaður Skallagríms, er hér hvítklædd í
baráttu um boltann.
Breskur leikmaður í Skallagrím
Samið við þrjá unga leikmenn að auki
Ejub Purisevic knattspyrnuþjálfari.
Ejub kveður Víking Ólafsvík
Árni Snær Ólafsson
spyrnir frá markinu
í leik með ÍA í sumar.
Ljósm. gbh.
Árni Snær áfram hjá ÍA