Skessuhorn - 25.09.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 201912
Síðastliðinn föstudag afhenti Sig-
urður Garðarsson hjá Hrafnhóli
ehf. Reykhólahreppi formlega
nýtt raðhús við Hólatröð. tryggvi
Harðarson sveitarstjóri tók við hús-
inu fyrir hönd sveitarfélagsins. Að-
eins fjóra mánuði tók að reisa og
ganga frá húsinu en í því eru þrjár
íbúðir, tvær 86 fermetrar að stærð
og ein 95 fm. Nýir leigjendur tóku
svo síðar sama dag við lyklum að
íbúðum sínum. tryggvi Harðarson
segir á vef Reykhólahrepps að með
þessu nýja raðhúsi fjölgi íbúðum á
Reykhólum utan stofnana um 10%
en ekkert íbúðarhúsnæði hafi verið
byggt á Reykhólum í áratug. Hann
segir að stefnt verði að því að selja
íbúðirnar inn í sjálfseignarhúsnæð-
isfélag. ,,Félagsmálaráðherra hefur
verið og er að láta vinna úrlausnir
fyrir sveitarfélög til að geta byggt
ný hús á svæðum við erfiðar mark-
aðsaðstæður. Ég bind miklar vonir
við að sú vinna skili sér til hagsbóta
fyrir sveitarfélög á landsbyggð-
inni,“ sagði tryggvi.
mm
Löng hefð er fyrir því að sveitarfé-
lagið Borgarbyggð veiti umhverf-
isverðlaun þar sem veittar eru við-
urkenningar fyrir snyrtimennsku.
Hafa verðlaunin verið afhent á
Sauðamessu að hausti en þar sem
hátíðin hefur nú lagst af var boð-
að til sérstakrar móttöku í Ráð-
húsi Borgarbyggðar síðastliðinn
fimmtudag. Dagskránni stýrðu þau
Gunnlaugur A Júlíusson sveitar-
stjóri og Margrét Vagnsdóttir, for-
maður umhverfis- og landbúnaðar-
nefndar, en nefndin hefur það hlut-
skipti að skoða tilnefnda staði og
velja þá sem hljóta verðlaun. Aug-
lýst var eftir tilefningum um snyrti-
lega garða, bændabýli og atvinnu-
húsnæði. Auk þess var að venju
veitt sérstök viðurkenning til ein-
staklings. Verðlaunahafar fengu að
launum viðurkenningarskjal, rækt-
arlega birkiplöntu frá Grenigerði
auk glaðnings úr Ljómalind í Borg-
arnesi. Þá fékk snyrtilegasta bænda-
býlið sérstakt merki sem festa á við
bæjarskiltið við heimreið að bæn-
um.
Stulli veitir afburða
þjónustu
Sérstök umhverfisverðlaun komu
í hlut Sturlaugs Arnars Kristins-
sonar, bílstjóra á sorpbíl Íslenska
gámafélagsins. Starf hans er að
aka um sveitir og safna ýmist sorpi
og flokkuðum úrgangi til endur-
vinnslu. Hefur Sturlaugur reynst
bændum og búaliði einstaklega
hjálpsamur og veitt afburða þjón-
ustu í störfum sínum. Sturlaugur
er fæddur og uppalinn á Kleifum
í Gilsfirði, en hefur búið í Borgar-
nesi frá 16 ára aldri.
Norðurreykir
í Hálsasveit
Snyrtilegasta bændabýlið er Norð-
urreykir í Hálsasveit þar sem hjón-
in Kolbrún Sveinsdóttir og Bjart-
mar Hannesson reka kúabú. Hafa
þau byggt jörð sína myndarlega
upp og snyrtimennska er hvar-
vetna innan sem utan dyra. Í garði
við íbúarhúsið eru eldri uppgerðar
heyvinnuvélar sem setja skemmti-
legan svip.
HP pípulagnir
í Brákarey
Snyrtilegasta atvinnuhúsnæðið var
valið verkstæðishús Hp pípulagna
við Brákarbraut 18-20 í Borg-
arnesi. Hp pípulagnir reka þeir
Hilmir Auðunsson og páll Sigurðs-
son. Fyrirtækið er rekið í endarými
iðnaðarhúsnæðis í Brákarey og hóf
starfsemi þar fyrir nokkrum árum.
Arnarklettur 19
í Borgarnesi
Loks var styrtilegasta lóð við
íbúðarhúsnæði valin Arnarklettur
19 í Borgarnesi, endaíbúð í þriggja
íbúða raðhúsi í Bjargslandi. Þar
búa Bjarney Ingadóttir og Sigurð-
ur Daníelsson. Hús og lóð ber fag-
urt vitni snyrtimennsku og mikill-
ar vinnu við umhirðu og garðrækt.
Garðurinn er vel gróinn og þar er
ræktað grænmeti í vermireitum,
en sumarblóm og fjölær í bland
við fallegan trjágróður í beðum við
húsið.
mm
Yngsta húsið á Reykhólum og fjær er Læknishúsið, elsta hús staðarins. Ljósm. Reykhólahreppur.
Nýjar íbúðir afhentar á Reykhólum
Húsnæði HP pípulagna við Brákarbraut 18-20 í Borgarnesi.
Umhverfisverðlaun Borgarbyggðar 2019
Verðlaunahafar ásamt fulltrúum Borgarbyggðar. F.v. Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri, Hilmir Auðunsson frá HB
pípulögnum ehf, Bjarney Ingdóttir í Arnarkletti 19, Sturlaugur Arnar Kristinsson, Kolbrún Sveinsdóttir á Norðurreykjum og
Margrét Vagnsdóttir, formaður umhverfis- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar.
Norðurreykir í Hálsasveit er snyrtilegasta bændabýlið.
Lóðin bakvið húsið við Arnarklett 19.
Gullregn er meðal trjáplantna sem prýða garðinn við Arnarklett 19.