Skessuhorn


Skessuhorn - 25.09.2019, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 25.09.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 20198 Garnaveiki í Tröllaskaga SKAGAFJ: Garnaveiki hefur ver- ið staðfest á sauðfjárbúinu Brúna- stöðum í Fljótum. Garnaveiki hef- ur ekki greinst í tröllaskagahólfi frá árinu 2008. Garnaveiki er ólækn- andi smitsjúkdómur í jórturdýrum, en með bólusetningu er hægt að verja sauðfé fyrir sjúkdómnum og halda smitálagi í lágmarki. Á bæj- um sem garnaveiki greinist á gilda ýmsar takmarkanir sem lúta að því að hindra smitdreifingu. -mm Settar varaseðla- bankastjórar RVK: Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir hafa ver- ið fluttar í starf varaseðlabanka- stjóra. Ný lög um Seðlabanka Ís- lands kveða á um að skipaðir verði þrír varaseðlabankastjórar til fimm ára í senn. Einn þeirra skal leiða málefni er varða peningastefn- una, annar málefni sem varða fjár- málastöðugleika og sá þriðji mál- efni fjármálaeftirlits. Bráðabirgða- ákvæði nýju laganna gera ráð fyr- ir að embætti núverandi aðstoð- arseðlabankastjóra verði lagt nið- ur og heimilt að flytja hann í nýtt embætti varaseðlabankastjóra án auglýsingar. Einnig er gert ráð fyrir því þegar sameingin Seðla- banka Íslands og Fjármálaeftirlits- ins öðlist gildi um áramót að for- stjóri Fjármálaeftirlits megi flytja í nýtt starf varaseðlabankastjóra án auglýsingar. Rannveig, sem áður var aðstoðarseðlabankastjóri, hef- ur þannig verið flutt í nýtt emb- ætti varaseðlabankastjóra peninga- stefnu frá áramótum og Unnur verður varaseðlabankastjóri fjár- málaeftirlits, en hún hefur til þessa verið forstjóri Fjármálaeftirlitsins. -kgk Aflatölur fyrir Vesturland 14.-20. september Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 4 bátar. Heildarlöndun: 21.153 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 13.256 kg í tveimur löndunum. Arnarstapi: 1 bátur. Heildarlöndun: 2.464 kg. Mestur afli: Kvika SH: 2.464 kg í einum róðri. Grundarfjörður: 5 bátar. Heildarlöndun: 286.764 kg. Mestur afli: Hringur SH: 68.088 kg í einni löndun. Ólafsvík: 12 bátar. Heildarlöndun: 115.771 kg. Mestur afli: Gunnar Bjarnason SH: 22.950 kg í fjórum róðrum. Rif: 6 bátar. Heildarlöndun: 85.424 kg. Mestur afli: Saxhamar SH: 27.892 kg í þremur löndunum. Stykkishólmur: 4 bátar. Heildarlöndun: 72.044 kg. Mestur afli: Leynir SH: 40.146 kg í fimm róðrum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Hringur SH - GRU: 68.088 kg, 18. september. 2. Sigurborg SH - GRU: 63.297 kg, 16. september. 3. Farsæll SH - GRU: 47.919 kg, 17. september. 4. Helgi SH - GRU: 45.004 kg, 16. september. 5. Kap II VE - GRU: 39.253 kg, 15. september. -kgk Höfðar mál gegn ríkinu AKRANES: Á ríkisstjórnarfundi í gær var tekin fyrir beiðni Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráð- herra til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um að sú síðar- nefnda feli öðrum að skipa í emb- ætti skólameistara Fjölbrauta- skóla Vesturlands, á grund- velli auglýsingar þar um. Kjarn- inn greindi í gær frá málinu, en fjölmiðillinn kallaði eftir svari ráðuneytisins um ástæður þess- arar óvenjulegu beiðni. Í frétt Kjarnans kemur fram að Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameist- ari FVA hafi höfðað mál á hend- ur íslenska ríkinu vegna þeirr- ar ákvörðunar menntamálaráð- herra að auglýsa starfið laust til umsóknar frá og með næstu ára- mótum. Héraðdómur Reykjavík- ur mun taka málið upp en ríkis- lögmaður fer með málsvörn fyr- ir hönd ríkisins og mun mennta- málaráðherra ekki tjá sig um mál- ið á meðan á vinnslu þess stend- ur, samkvæmt svari ráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans. Skipun- artími skólameistara FVA rennur út um næstu áramót. Fjórir sóttu um starfið, þar á meðal núverandi skólameistari. -mm Opnunartími Kjörbúðar í Búð- ardal styttur DALABYGGÐ: Opnunartími Kjörbúðarinnar í Búðardal hefur verið styttur. Miði á hurð beið við- skiptavina verslunarinnar í byrjun síðustu viku þar sem greint var frá styttingu opnunartímans. Þar kom fram að frá og með 16. september verður opið frá 9:00 til 18:00 mánu- dag til fimmtudags, en frá 9:00 til 19:00 á föstudögum eins og áður var alla virka daga. Á laugardögum verð- ur óbreyttur opnunartími frá 10:00 til 18:00 en á sunnudögum frá 12:00 til 17:00, en áður var opið til 18:00 á sunnudögum. Samtals styttist opn- unartími verslunarinnar því um fimm klukkustundir á viku; fjórar klukku- stundir á virkum dögum og eina um helgar. „Ástæðurnar [fyrir styttingu opnunartíma; innsk. blms.] eru þær að við finnum fyrir verulegum sam- drætti í ferðaþjónustu og erum að bregðast við því þegar við styttum opnunartímann með þessum hætti. Auk þess sem kostnaður hefur auk- ist talsvert í rekstri Kjörbúðanna, rétt eins og hjá öðrum fyrirtækjum und- anfarin misseri. Með því að grípa til styttingar opnunartíma á að koma í veg fyrir að sá kostnaður færist út í vöruverð,“ segir Heiðar Róbert í samtali við Skessuhorn. „Við met- um það svo að viðskiptavinir okk- ar kunni að meta slíkar breytingar. Sömuleiðis gerir umrædd hagræðing okkur kleift að halda fjölda starfs- fólks í verslunum óbreyttum. Eins styðja þessar aðgerir við stefnu fyr- irtækisins um að gera Kjörbúðina að sífellt fjölskylduvænni vinnustað og við finnum ekki fyrir öðru en ánægju meðal okkar starfsfólks að verslun- um loki nú fyrr á kvöldin,“ segir Ró- bert. -kgk Nýverið greindist lungnasjúkdóm- ur hjá unglingi hér á landi þar sem grunur leikur á að veikindin tengist notkun á rafrettum. Birtingarmynd sjúkdómsins svipar til þess sem lýst hefur verið í Bandaríkjunum. Við- komandi er nú á batavegi. Frá þessu er greint í tilkynningu frá land- lækni þar sem birtar eru ábending- ar til almennings, skólastjórnenda og lækna vegna gruns um skaðleg áhrif rafrettunotkunar. „Flest er enn á huldu um faraldur alvarlegra lungnasjúkdóma í Banda- ríkjunum,“ segir í tilkynningu frá landlækni. „tilkynnt tilfelli eru yfir 500 og tengjast öll notkun á raf- rettum. Vitað er að stór hluti þeirra sem veikst hafa hafi notað rafrettu- vökva sem innihélt afleiður kanna- biss en svo virðist sem að veikindin séu ekki einungis bundin við það. Í ljósi þess að þekkingu um notkun á rafrettum er áfátt og vaxandi notk- unar barna og ungmenna á rafrett- um, vill landlæknir taka eftirfarandi fram: Börn eiga ekki að nota rafrettur, 1. hvaða nöfnum sem þær nefnast og varar landlæknir sterklega við því. Vitað er að fjöldi barna hefur prófað rafrettur og umtalsverður hluti notar þær að staðaldri, eða um 10% ungmenna í 10. bekk. Kannanir gefa til kynna að hlut- fall barna sem notar rafrettu hafi farið hratt hækkandi undanfar- in ár. Foreldrar eru hvattir til að ræða þetta mál við börn sín. Skólastjórnendur og kennarar 2. eru hvattir til að framfylgja banni við notkun rafretta á skólalóð- um. Þeim sem vilja hætta tóbaksreyk-3. ingum er bent á að nota viður- kennda meðferð við nikótínfíkn að viðhöfðu samráði við lækni; rafrettur eru ekki gagnreynd meðferð. Ekki er þó mælt með að fólk snúi frá rafrettum og aft- ur að tóbaksreykingum sem eru, miðað við núverandi þekkingu, skaðlegri. Þeir sem velja að nota rafrett-4. ur eru hvattir til að kaupa tæki og efni einungis af viðurkennd- um söluaðilum. Hámarksstyrk- leiki nikótínvökva er lögum sam- kvæmt 20 mg/ml og notendur rafretta sterklega varaðir við því að blanda vökva sjálfir. Einstaklingar sem nota rafrettur 5. og fá einkenni frá lungum eins og hósta, uppgang, mæði og verk fyrir brjósti er ráðlagt að leita til læknis. Önnur einkenni sem lýst hefur verið í tengslum við raf- rettunotkun í Bandaríkjunum eru einkenni frá meltingarvegi, líkt og ógleði, uppköst og niður- gangur, þreyta, hiti og þyngdar- tap. Læknar eru beðnir að vera á 6. varðbergi gagnvart slíkum ein- kennum og spyrja skjólstæðinga sýna um rafrettunotkun (leið- beiningar verða birtar um hvað skal spyrja). Læknar eru beðnir að tilkynna tilvik þar sem grun- ur er um veikindi tengd rafrett- unotkun til landlæknis, í síma 510-1900. Ef margar tilkynning- ar berast kemur til álita að virkja sérstakan greiningarkóða. Heilbrigðisyfirvöld munu skoða 7. hvort gripið verði til viðbragða vegna mikillar rafrettunotkunar barna, t.d. með því að takmarka bragðefni og umbúðir sem höfða sérstaklega til þeirra. Neytendastofa sem fer með eft-8. irlit með rafrettum hefur verið upplýst. Embætti landlæknis vinnur að 9. skipan vinnuhóps sem ætlað er að skoða aðgerðir til að vinna gegn faraldri rafrettunotkunar hjá börnum.“ mm Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra ,hefur ákveðið að hrinda af stað verkefnum sem ætlað er að vinna gegn matarsóun hér á landi. Verk- efnin eru liður í aðgerðaáætlun Ís- lands í loftslagsmálum og verða í umsjón Umhverfisstofnunar. Með- al aðgerða er könnun á viðhorfi Ís- lendinga til matarsóunar en sam- bærilegar kannanir voru gerðar árin 2015 og 2017. Þá verður efnt til viðburðar um matarsóun þar sem verður boðið upp á veiting- ar úr illseljanlegum, „útlitsgölluð- um“ en bragðgóðum matvörum í þeim tilgangi að vekja athygli á hve miklum matvælum við sóum ár- lega. Auknu fjármagni verður veitt í kynningu og fræðslu um matarsó- un og rekstur vefsins matarsoun.is tryggður áfram. Loks verður ráðist í samstarfsverkefni með Matvæla- stofnun og heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga. Það verkefni felst í að gera athugun á því hvar eftirlitsað- ilar gera mögulega kröfur sem ekki eru nauðsynlegar m.t.t. matvælaör- yggis sem gætu ýtt undir matarsó- un. Í framhaldinu verði gripið til ráðstafana til að samræma eftirlitið í því skyni að tryggja að einungis verði gerðar þær kröfur sem nauð- synlegar eru vegna matvælaörygg- is. mm Ýmis verkefni til að sporna gegn matarsóun Landlæknir birtir ábendingar vegna rafrettunotkunar Bergey verður Runólfur SH Eins og kunnugt er var togskip- ið Bergey VE 544 selt Guðmundi Runólfssyni hf. í Grundarfirði í febrúar á þessu ári og verður skipið afhent nýjum eiganda á næstu dög- um. Mun það fá nafnið Runólfur SH. Bergey var smíðuð í póllandi 2007 fyrir Berg-Hugin, dótturfélag Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyj- um, og hefur útgerð skipsins ávallt gengið mjög vel. Síðustu daga hef- ur skipið verið í slipp í Vestmanna- eyjum þar sem gengið hefur verið frá því til afhendingar. Meðal ann- ars var málað yfir rauða litinn og er skipið nú blátt að lit. Engar aflaheimildir fylgja skip- inu en það mun leysa af hólmi Helga SH sem verður seldur. Guð- mundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri GRun sagði í samtali við Skessuhorn fyrr á þessu ári að ástæður fyrir skipakaupunum væru einkum tvær. Í fyrsta lagi hafi fyrirtækið tekið í notkun nýja og af- kastamikla fiskvinnslustöð og því sé brýnt að auka veiðigetu skipa þess. Í öðru lagi mun nýja skipið leysa af hólmi eldra og minna skip. „Við trúum því að við séum að fá öflugt og gott skip sem hentar okkar starf- semi vel. Við eigum fyrir sambæri- legt skip, Hring SH, og það verð- ur hagkvæmt að gera þau út sam- an. Hér ríkir því mikil ánægja með þessi skipakaup,“ sagði Guðmund- ur Smári. mm Bergey VE blámáluð í slippnum í Eyjum. Ljósm. Síldarvinnslan/ Guðmundur Alfreðsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.