Skessuhorn


Skessuhorn - 25.09.2019, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 25.09.2019, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 201910 Kaupfélag Borgfirðinga opnaði í gær nýjan veitingastað og dagvöru- verslun við Digranesgötu í Borgar- nesi. Hlaut hann nafnið Food Sta- tion. Guðrún Sigurjónsdóttir for- maður stjórnar KB bauð gesti vel- komna en þvínæst klippti Mar- grét Katrín Guðnadóttir kaup- félagsstjóri á borða og opnaði stað- inn formlega. Með nafngiftinni er vísað til eðlis og áherslna í rekstri staðarins. Veitingastaðurinn og lít- il dagvöruverslun er í nýju þús- und fermetra húsi sem kaupfélag- ið lét byggja og er nú að mestu til- búið að innan sem utan. Kaupfélag- ið á þó enn eftir að ráðstafa 300 fm rými sem innangengt er í úr and- dyri hússins. Segir Margrét Katr- ín að þetta rými sé nú til leigu fyr- ir áhugasama, annað hvort fyrir rekstur verslunar eða þjónustu af einhverju tagi. Á Food Station er pláss fyrir 120 manns í sæti í stíl- hreinu og björtu húsnæði. Salernis- aðstaða er einnig mjög rúmgóð og nútímaleg og segir Margrét Katr- ín það vissulega hafa verið óvenju- legt í nýbyggingum að klósettin voru tilbúin fyrst, löngu áður en aðrar innréttingar komu til lands- ins. Salerni eru 32 talsins fyrir við- skiptavini og er að sögn Margrétar lögð áhersla á að hægt sé að taka við stórum hópum fólks í einu og að sjaldnast þurfi því að myndast biðraðir á salernin. Fyrirkomulag- ið er þannig að rukkað er 200 krón- ur inn á salernin í gjaldhliði og fær fólk kvittun í hendur við greiðslu. Viðskiptavinurinn getur síðan val- ið hvort hann notar 200 krónurn- ar sem innborgun í það sem keypt er, eða fer út án þess að eiga frek- ari viðskipti. „Þetta er fyrirkomu- lag sem mun ryðja sér til rúms í rekstri salerna í ferðaþjónustu bæði hér heima og um heim allan. Hing- að eru allir velkomnir, hvort sem er til að eiga einungis pissustopp, eða að eiga við okkur frekari viðskipti,“ segir kaupfélagsstjórinn. Ítrekað þurft að fresta opnun Matreiðslumeistarinn Birkir Snær Guðlaugsson var í júní síðast- liðnum ráðinn verslunarstjóri í Food Station. Hann hefur dágóða reynslu úr veitingageiranum og kveðst bjartsýnn á að rekstur Food Station muni eiga eftir að ganga vel. Hefur hann frá því hann byrj- aði tekið virkan þátt í innrétting- um á húsnæðinu, hönnun staðarins og undirbúningi í samráði við for- svarsmenn kaupfélagsins. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og lærdómsríkt ferli fyrir mig. Ég hélt í upphafi að ég væri að fara beint í að setja saman matseðil og slíkt, en þá hafði tafist verulega að hægt væri að ljúka smíði inni í húsinu. Í fyrstu var ég því t.d. að velja flísar á veggi og hef þannig náð að setja mitt mark á hönnun staðarins. Að undanförnu höfum við svo verið að setja saman matseðil og gera klárt fyrir opnun,“ segir Birkir Snær sem fagnar því að nú sé loks búið að opna. Birkir afgreiddi viðskiptavini í hádeginu í gær um steiktar kóte- lettur með tilheyrandi en samfelld biðröð var í kræsingarnar fram yfir hádegi. Margrét Katrín viðurkennir að verulegar tafir hafi orðið á því að hægt væri að opna staðinn. „Und- irbúningurinn á þessu ári hef- ur gengið brösuglega. Í fyrstu var markið sett á að opna í maí en það gekk ekki eftir. Eftir það hefur ver- ið stefnt á einar fjórar dagsetningar og 24. september er sjötta og síð- asta dagsetningin hjá okkur. Það má kannski segja að það sé tákn- rænt að við opnum nú á þriðju- degi og erum alls ekkert hrædd við gamla hjátrú. Við vonum allavega að við séum búin að taka út allan hjátrúar- og þrautapakkann,“ segir hún og hlær. Ástæða tafanna var afgreiðsla innréttinga sem aftur leiddi til þess að verkskipulag iðnaðarmanna sem ætluðu að setja þær upp riðlaðist og þeir voru þá orðnir fastir í öðrum framkvæmdum. „Við erum hins vegar vongóð nú þegar allt er að smella saman. Það getur verið kost- ur að byrja að hausti og hafa þann- ig rúman tíma og næði til að þróa staðinn í endanlega mynd, svo sem í vöruvali og þjónustu,“ segir Mar- grét Katrín. Nafngiftin með vísan í áherslurnar Fyrir Borgfirðinga og gamla kaup- félagsmenn gæti nafngift nýja stað- arins vafist fyrir einhverjum. Að- spurð segir Margrét Katrín að nafnið kunni að hljóma framandi í fyrstu. „Við ætlum á Food Station að leggja áherslu á hollan og fljót- legan valkost við veginn sem höfð- að getur bæði til heimafólks og ferðafólks sem á leið hér í gegnum Borgarnes,“ segir hún. Lögð verð- ur áhersla á hollan skyndimat, en auk þess mat úr héraði. „Við verð- um með salatbar af matseðli, bo- ost drykki, íslenska kjötsúpu og al- mennt eins mikið hráefni úr héraði og kostur er. Þá verðum við með smurt brauð, samlokur og nýbakað á staðnum. Í salatbarnum geta gest- ir valið úr mörgum réttum af mat- seðli. Hér verður fyrirkomulag- ið þannig að þú ferð í röð, pantar og rétturinn er settur saman á svip- stundu og afgreiddur á meðan þú bíður. Viðskiptavinir þurfa ekki að taka númer eða slíkt, hér verður allt í sjálfsafgreiðslu. Eftir að viðskipta- vinir hafa valið sér mat, drykki eða aðra vöru í versluninni fara þeir á kassa og greiða. Með þessu móti ætlum við að leggja áherslu á snögga þjónustu og þannig má segja að tilvísunin sé í nafngift stað- arins, ekki ósvipað og á lestarstöð þar sem allt gengur hratt fyrir sig. Auk þess munum við bjóða upp á rétt dagsins í hádeginu og ætlum okkur að höfða til þeirra fjölmörgu sem hér starfa og þurfa að fá hollan og góðan mat í hádeginu.“ Aukin fjölbreytni styrkir heildina Margrét Katrín segir að upphaflega hafi það ekki verið ætlun Kaup- félags Borgfirðinga að vera sjálft með starfsemi í húsinu. Ákveð- ið var að byggja það með von um að rekstrarðilar tækju húsið á leigu. Eftirspurn hafi hins vegar ver- ið engin og því hafi mótast þessi hugmynd um að kaupfélagið hæfi sjálft rekstur í húsinu. „Við fórum einfaldlega að velta því fyrir okk- ur hvað vantaði í þjónustuna hér í Borgarnesi og þetta varð niðurstað- an. Hér verður hollur matur í boði og afgreiddur hratt, ekki ósvipað og við þekkjum frá veitingastað Ikea í Garðabæ. Ferðafólki er að fjölga á Vesturlandi og við teljum að pláss sé fyrir stað með þessar áherslur hér í Borgarnesi. Húsið okkar er einungis 30 metra frá þjóðvegin- um og við munum leggja áherslu á að ná til ferðafólks. Einnig bjóðum við upp á mat fyrir heimafólk og raunar alla sem vilja leggja áherslu á hollustu í mataræði. Kaupfélag- ið er í grunninn ekki hagnaðardrif- ið félag, heldur er hlutverk þess að efla atvinnustig og þjónustu í hér- aði, skapa atvinnu og styðja þann- ig við aðra atvinnustarfsemi. Aukin þjónusta og fjölbreytni getur ekki annað en aukið bæði styrk kaup- félagsins en einnig sýnileika og styrk samfélagsins í heild. Nú höf- um við opnað en ég legg áherslu á að við munum þróa þessa versl- un og veitingasölu eftir óskum við- skiptavina. Hér munu einnig verða settar upp hraðhleðslustöðvar fyr- ir rafbíla, en líklega erum við hér að opna fyrstu bensínlausu bensín- stöðina við þjóðveginn,“ segir Mar- grét að endingu. Opnunartími Food Station í vet- ur verður frá klukkan 9 til 21 alla daga. Ferðaskrifstofur og ferða- skipuleggjendur geta auk þess pant- að opnun utan þess tíma, svo sem vegna norðurljósaferða. mm Glæsilegar veislutertur frá Geirabakaríi voru í boði við opnun staðarins. Nýr veitingastaður opnaður í Borgarnesi Food Station verður hraðveitingastaður með hollustu að leiðarljósi Food Station við Digranesgötu í Borgarnesi. Birkir Snær Guðlaugsson verslunarstjóri og Margrét Katrín Guðnadóttir við merki nýja staðarins. Margrét Katrín kaupfélagsstjóri klippti á borða og bauð gesti velkomna. Horft yfir salinn á nýja staðnum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.