Skessuhorn


Skessuhorn - 25.09.2019, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 25.09.2019, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 201930 Káramenn máttu játa sig sigraða gegn Selfyssingum, 0-2, í loka- leik 2. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Akraneshöllinni á laugardaginn. Það var Hrvoje to- kic sem kom Selfossi yfir á 26. mín- útu leiksins. Hann bætti síðan öðru marki við á 54. mínútu og þar við sat. Káramenn ljúka keppni í 10. sæti deildarinnar með 24 stig, stigi á eftir Fjarðabyggð og fimm stigum á undan KFG sem situr í fallsæti. Lokastaðan er kannski ekki sú sem stefnt var að, en miðað við stöðuna undir lok júlímánaðar mega Kára- menn vera nokkuð sáttir. Liðið sat þá í fallsæti en tókst að snúa erfiðu gengi við á lokakafla mótsins og bjarga sér frá falli. Liðið mun því leika aftur í 2. deild næsta sumar. Sama kvöld og tímabilinu lauk héldu Káramenn lokahóf sitt. Andri Júlíusson fyrirliði var valinn besti leikmaður liðsins, en hann var jafnframt markahæsti maður liðsins og markahæsti maður deildarinnar. Andri var jafnframt valinn ÍA-tV leikmaður Kára 2019. Guðfinnur Þór Leósson var val- inn efnilegasti leikmaður Kára 2019 og Arnleifur Hjörleifsson besti ungi leikmaðurinn, en þá er miðað við 2. flokks aldur. kgk/ Ljósm. Knattspyrnufélag Kára. Skallagrímsmenn fengu skell í loka- leik 3. deildar karla í knattspyrnu þegar þeir töpuðu 5-0 gegn Reyni S. á útivelli síðastliðinn laugardag. Elfar Máni Bragason kom Suð- urnesjaliðinu yfir á 16. mínútu og Gauti Þorvarðarson bætti öðru marki við á 24. mínútu. Magnús Magnússon skoraði þriðja mark Reynis á 36. mínútu og heima- menn leiddu 3-0 í hálfleik. theodór Guðni Haldórsson kom Reyni í 4-0 á 59. mínútu leiksins en það var síðan Hörður Sveinsson sem innsiglaði 5-0 sigur heima- manna á 90. mínútu leiksins. Borgesingar ljúka keppni í 12. og neðsta sæti 3. deildar karla þetta tímabilið. Þeir áttu erfitt uppdrátt- ar í deildinni þetta sumarið, sigr- uðu tvo leiki en töpuðu 20 og gerðu ekkert jafntefli. Báðir sigurleikirnir komu snemma á tímabilinu, Borg- nesingar sigruðu tvo af fyrstu fimm leikjum sínum en hafa síðan þurft að lúta í gras í síðustu 17 leikjun- um. Botnsætið er því raunin að þessu sinni og mun Skallagrímur því leika í 4. deild næsta sumar. kgk/ Ljósm. úr safni/ glh. Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum var haldið í Garða- bæ helgina 14.-15. september, sem og Íslandsmeistaramótið í bekk- pressu. Kraftlyftingafélag Akraness átti tvo fulltrúa á Íslandsmeistara- mótinu í klassískum kraftlyfting- um, sem báðir fóru með sigur af hólmi í sínum flokkum. Kristín Þórhallsdóttir fagnaði sigri í 84 kg flokki kvenna. Hún lyfti 165 kg í hnébeygju, 80 kg í bekkpressu og 172,5 kg í réttstöðu- lyftu. Samanlagður árangur var 417,5 kg sem skilaði henni 649,5 IpF stigum. Alexander Örn Kárason varð hlutskarpastur í 93 kg flokki karla. Hann lyfti 230 kg í hnébeygju, 170 kg í bekkpressu og 272,5 kg í rétt- stöðulyftu. Samanlagður árangur var 672,5 kg sem skilaði 630,9 IpF stigum. Alexander er fæddur árið 1998 og bekkpressan hans var nýtt Íslandsmet í unglingaflokki, sem og réttstöðulyfta hans. Samanlagð- ur árangur hans var sömuleiðis Ís- landsmet í unglingaflokki. Á Íslandsmeistaramótinu í bekk- pressu átti Kraftlyftingafélag Akra- ness einn fulltrúa, Einar Örn Guðnason. Hann lyfti 240 kg og sigraði í 105 kg flokki karla. Ein- ar var jafnframt stigahæsti karlinn í mótinu með 612,9 IpF stig. kgk Skagakonur máttu játa sig sigr- aðar gegn tindastóli, 4-1, í loka- leik Inkasso deildar kvenna í knatt- spyrnu. Leikið var á Sauðárkróki á föstudagskvöld. Fyrir leikinn hafði tindastóll möguleika á að tryggja sér sæti í efstu deild, að því gefnu að úrslit annarra leikja yrðu liðinu hagstæð. Skagakonur sigldu hins vegar lygnan sjó, búnar að bjarga sér frá falli og höfðu ekki að neinu að keppa í deildinni. Bæði lið mættu ákveðin í leiks og fyrri hálfleikur einkenndist af mik- illi baráttu. tindastólsliðið hafði heldur yfirhöndina en Skagakonur vörðust vel og áttu nokkrar álitleg- ar sóknir sem tókst þó ekki að nýta. Staðan var því markalaus þegar flautað var til hálfleiks. Skagakonur lágu til baka í síð- ari hálfleik og freistuðu þess að beita skyndisóknum þegar færi gáf- ust. Upp úr einni slíkri skoraði Eva María Jónsdóttir á 63. mínútu og kom ÍA yfir. Sókn tindastólsliðsins þyngdist eftir því sem leið á og þær sýndu mátt sinn og megin síðasta kort- erið eða svo. Bryndís Rut Haralds- dóttir jafnaði metin á 78. mínútu áður en Murielle tiernan bætti við tveimur mörkum á 80. og 82. mín- útu og heimakonur svo gott sem búnar að gera út um leikinn á stutt- um leikkafla. Fríða Halldórsdóttir varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark skömmu fyrir leikslok og leiknum lauk því með 4-1 sigri tindastóls. Skagakonur ljúka keppni í 8. sæti deildarinnar með 19 stig, stigi á eftir Fjölni og Augnabliki í sæt- unum fyrir neðan en fjórum stig- um á undan Grindavík, sem féll úr deildinni. Eftir góða byrjun Skaga- kvenna í mótinu tók við mjög erfið- ur kafli þar sem gekk á ýmsu, leik- menn hurfu á braut og liðið skipti um þjálfara. Liðinu tókst hins veg- ar að bjarga sæti sínu í deildinni í næstsíðustu umferðinni og leikur því aftur í næstefstu deild að ári. kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh. Einar Örn Guðnason var stigahæstur karla á ÍM í bekkpressu. Ljósm. úr safni. Sneru heim með gullverðlaun Kári tapaði lokaleiknum Leikmenn og aðstandendur Káraliðsins. Guðfinnur Þór Leósson, Andri Júlíusson og Arnleifur Hjörleifsson með viðurkenn- ingar sínar frá lokahófi Kára. Tap í lokaleiknum Skellur í síðasta leiknum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.