Skessuhorn - 16.10.2019, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 20196
Ravisa áfram
með
sundlaugina
HVALFJ.SV: Á fundi sveit-
arstjórnar Hvalfjarðarsveit-
ar 10. september síðastlið-
inn var ákveðið að semja
að nýju við Ravisa ehf. um
rekstur sundlaugarinnar að
Hlöðum. Fyrirtækið sá um
reksturinn síðastliðið sumar
og voru gestir ríflega fjög-
ur þúsund. Hefur samning-
urinn nú verið endurnýjaður
fyrir næsta sumar. –arg
Rætt um
framtíð
Breiðafjarðar
DALIR: Fræðslu- og um-
ræðuþing um framtíð Beiða-
fjarðar, á vegum Breiðafjarð-
arnefndar og Umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins, verð-
ur haldið í Tjarnarlundi í
Saurbæ á miðvikudaginn
í næstu viku, 23. október.
Dagskráin hefst kl. 11:00
og stendur til kl. 16:00. All-
ir eru velkomnir og ókeypis
aðgangur. Það er mikilvægt
að skrá sig á netfangið brei-
dafjordur@nsv.is.
-arg
Árekstur við
Fellsöxl
HVALFJ.SV: Árekst-
ur tveggja bíla varð á Akra-
fjallsvegi við afleggjarann
að Fellsöxl á miðvikudaginn
í síðustu viku, þegar einum
bíl var ekið í veg fyrir ann-
an. Engin slys urðu á fólki en
báðir bílarnir skemmdust.
-kgk
Gripnir tvisvar
á tveimur
dögum
VESTURLAND: Lög-
reglan á Vesturlandi hand-
tók ökumann, grunaðan um
ofsaakstur og akstur und-
ir áhrifum ávana- og fíkni-
efna, við Olís í Borgarnesi að
morgni síðasta miðvikudags.
Lögregla fékk tilkynningu
um bíl sem ekið var ofsa-
akstri um Vesturlandsveg
úr norðri og fann bifreiðina
við Olís í Borgarnesi. Tveir
voru í bifreiðinni og var öku-
maður handtekinn, en grun-
ur leikur á að hann hafi ver-
ið undir áhrifum kókaíns við
aksturinn. Bifreiðin var kyrr-
sett og ökumaður sendur í
blóðprufu. Þriðji maðurinn
kom síðan og sótti mennina
tvo í Borgarnes. Þremenn-
ingarnir áttu síðan eftir að
koma aftur við sögu lög-
reglu daginn eftir. Strax á
miðvikudagsmorgun var til-
kynnt um einkennilegt akst-
urslag bifreiðar. Lögreglan
á Vesturlandi fór og sat fyr-
ir bílnum þar sem hann kom
upp úr Hvalfjarðargöngum.
Reyndust þar vera á ferðinni
sömu aðilar og gripnir voru
við Olís í Borgarnesi daginn
áður, á öðrum bíl og annar að
keyra í þetta skiptið. Reyndu
mennirnir að víxla öku-
mönnum á ferð, en vildi ekki
betur en svo að það sáu lög-
reglumenn auk þess sem þeir
tilburðir sjást á upptökum úr
lögreglubílum á vettvangi.
Þeir voru því báðir hand-
teknir og eru grunaðir um
akstur undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Þriðji maður-
inn var sömuleiðis handtek-
inn. Á mönnunum fundust
ætluð fíkniefni, marijúana
og kókaín. Efnin voru gerð
upptæk og mennirnir færðir
í fangaklefa. Lögregla segir
málið litið mjög alvarlegum
augum, enda geti það skapað
stórhættu í umferðinni þegar
ekið er undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Einn ökumað-
ur til viðbótar var stöðvaður
í umdæminu í síðustu viku,
nánar til tekið á sunnudag,
grunaður um ölvun við akst-
ur. Hann er sömuleiðis grun-
aður um akstur undir áhrif-
um ávana- og fíkniefna.
-kgk
Sandur og
drulla
VESTURLAND: Sand-
ur og grjót fauk á bifreið í
Ólafsvík í vikunni sem leið.
Talið er að efnið hafi fokið af
palli vörubifreiðar. Lögregla
vill beina því til atvinnubíl-
stjóra að ganga úr skugga
um að tryggilega sé geng-
ið frá öllum farmi. Seinna í
vikunni var tilkynnt um að
nokkrir rúmmetrar af blautri
mold hefðu fallið á Akra-
fjallsveg fyrir ofan hitavei-
tutankana. Lögregla hafði
samband við verktaka sem
fóru og hreinsuðu moldina
af veginum.
-kgk
Skipulags-, hafnar- og húsnæðis-
nefnd Reykhólahrepps fjallaði um
aðalskipulagsbreytingu vegna Vest-
fjarðavegar á fundi sínum á mið-
vikudag. Þar var farið yfir drög að
svörum við umsögnum og athuga-
semdum við tillögu að breyttu
skipulagi. Minnihluti nefndarinnar
taldi að brugðist hefði verið við öll-
um athugasemdum og lagði til að
tillögunni yrði vísað til samþykkt-
ar í sveitarstjórn. Meirihluti nefnd-
arinnar lagði hins vegar til að fall-
ið yrði frá því að setja Þ-H leið um
Teigsskóg á aðalskipulag hrepps-
ins. „Þess í stað verði niðurstöðum
valkostagreiningar Viaplans fylgt
og farin leið sem tengir Reykhóla-
þorpið við Vestfjarðaveg 60,“ segir
í bókun meirihlutans, þeirra Ingi-
mars Ingimarssonar og Karls Krist-
jánssonar. Auk þeirra situr Jóhanna
Ösp Einarsdóttir í nefndinni.
Í greinagerð með tillögu meiri-
hlutans er m.a. bent á að leið um
Teigsskóg hafi tvívegis farið í um-
hverfismat og í bæði skiptin hafi
Skipulagsstofnun lagt til að far-
in verði önnur leið, vegna nei-
kvæðra áhrifa á skóginn og firðina
sem á að þvera. Sömuleiðis segir í
greinagerðinni að ekki hafi verið
gerð kostnaðar- eða ábatagrein-
ing eða félagshagfræðileg grein-
ing vegna framkvæmda, engin til-
raun verið gerð til að verðmeta
land sem nýtur sérstakrar verndar,
né kostnaðarmeta samfélagslegan
og byggðalegan ávinning af því að
koma þorpinu að Reykhólum í al-
faraleið. Kostnaðarútreikningar
snúi aðeins að stofnkostnaði fram-
kvæmdarinnar. Þá eru einnig rifj-
aðar upp bókanir sveitarstjórnar frá
22. janúar, þar sem kjörnir fulltrúar
lýstu því að þeir teldu sig hafa verið
beitta óeðlilegum þrýstingi af hálfu
Vegagerðarinnar við ákvarðana-
töku sína: „Ljóst er af þessum bók-
unum að voldug ríkisstofnun með
stjórnkerfið og fjárveitingarvaldið á
bak við sig hefur beitt stöðu sinni
þannig að kjörnir fulltrúar telja sig
ekki geta gætt hagsmuna umhverfis
og samfélags í Reykhólahreppi með
eðlilegum hætti,“ segir í greinagerð
meirihlutans.
Í niðurstöðukafla greinagerðar-
innar segir meirihlutinn að engin
þörf sé á að setja Teigsskógarleið
inn á aðalskipulag Reykhólahrepps.
Þar njóti nánast hver einasti metri
sérstakrar verndar samkvæmt nátt-
úruverndarlögum. Segir meirihlut-
inn fráleitt að brýn nauðsyn sé fyrir
því að fara með veg um Teigsskóg
og vísar til þess að Reykhólaleið R
hafi komið best út úr valkostagrein-
ingu. Á heildina litið fyrir tækni-
lega, skipulagslega, umhverfislega
og félagslega þætti sýni sú leið betri
niðurstöðu en hinir þrír valkostirn-
ir sem þar voru teknir til skoðunar.
„Það er því engin brýn nauðsyn fyr-
ir Teigskógarleið, það er hins vegar
brýn nauðsyn fyrir þorpið á Reyk-
hólum og Reykhólahrepp allan að
farin verði R-leið,“ segir í greina-
gerð meirihlutans. Sömuleiðis er
vísað í niðurstöðu valkostagrein-
ingar Viaplans, sem mat A3 leið
Vegagerðar og Þ-H leið sambæri-
legar m.t.t. umferðaröryggis.
Afgreiðsla skipulags-, hafnar- og
húsnæðisnefndar Reykhólahrepps
á málinu var tekin til umfjöllunar
á fundi sveitarstjórnar í gærkvöldi,
en þeim fundi var ekki lokið þegar
Skessuhorn fór í prentun.
mm
Horft í átt að Reykhólum. Ljósm. úr safni/ mm.
Skipulagsnefnd leggst
gegn Teigsskógarleið