Skessuhorn - 16.10.2019, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 201910
Íbúðir í þremur nýjum fjölbýlishús-
um á Akranesi voru settar í sölu í
síðustu viku. Um er að ræða sam-
tals 37 íbúðir í húsunum að Aspar-
skógum 29, Dalbraut 4 og Stillholti
21. Íbúðirnar eru frá 73 fermetr-
um upp í 190 fermetrar að stærð,
tveggja til fjögurra herbergja. Verð-
ið er á bilinu 39 milljónir og upp í
tæpar 86 milljónir króna. Öll fjöl-
býlishúsin sem um ræðir eru ný-
byggingar.
Tólf íbúðir
við Asparskóga
Að Asparskógum 29 eru til sölu
samtals tólf þriggja og fjögurra her-
bergja íbúðir. Fjögurra herbergja
íbúðirnar eru í kringum 126 fer-
metrar að stærð og kosta á bilinu
59,9 til 61,9 milljónir. Þriggja her-
bergja íbúðirnar eru um 99 fer-
metrar að stærð og verð fyrir þær
er á bilinu 47,9 til 48,9 milljónir.
Asparskógar 29 eru á þremur hæð-
um og það var Uppbygging ehf.
sem byggði.
Íbúðir fyrir
eldri borgara
Að Dalbraut 4 er verið að byggja
fimm hæða fjölbýlishús. Á jarðhæð
hússins verður salur í eigu Akranes-
kausptaðar, sem m.a. Félag eldri
borgara á Akranesi og nágrennis
fær til afnota fyrir félagsstarf sitt.
Íbúðirnar á hæðunum fjórum þar
fyrir ofan eru byggðar með eldri
íbúa í huga. Fjórar íbúðir í húsinu
voru settar í sölu í síðustu viku. Í
fyrsta lagi tæplega 111 fermetra
þriggja til fjögurra herbergja íbúð á
52,9 milljónir. Þá tvær þriggja her-
bergja íbúðir, frá 117 til 122 fer-
metrum að stærð. Verð fyrir þær er
53,9 til 55,4 milljónir. Að lokum er
síðan ein tveggja herbergja íbúð í
húsinu til sölu. Hún er 73 fermetr-
ar að stærð og ásett verð er 39,9
milljónir.
Húsið að Dalbraut 4 er í bygg-
ingu, en það er Byggingarfélag-
ið Bestla ehf. sem byggir. Áætluð
verklok eru vorið 2020.
86 milljóna þakíbúð
Að Stillholti 21 hefur samtals 21
íbúð verið sett í sölu, en þær verða
samtals 37 í húsinu á tíu hæðum.
Íbúðirnar eru tveggja til fjögurra
herbergja. Veglegustu og jafnframt
dýrustu íbúðirnar sem settar hafa
verið í sölu að Stillholti 21 er tvær
fjögurra herbergja þakíbúðir á 10.
hæð hússins. Sú stærri er 190,4 fer-
metrar að stærð, með samtals 57,6
fermetra svölum til suðurs og vest-
urs. Verðið er 85,8 milljónir króna.
Minni þakíbúðin er 170,6 fermetr-
ar að flatarmáli með samtals 47 fer-
metra svölum sem vísa til austurs
og suðurs. Verð fyrir hana er 77,9
milljónir króna.
Sjö þriggja herbergja íbúðir eru
til sölu í húsinu, á bilinu 106 til 107
fermetrar að stærð. Kosta þær frá
46,6 milljónum upp í 51,9 millj-
ónir. Jafnmargar fjögurra herbergja
íbúðir á stærðarbilinu 126 til 129
fermetrar eru til sölu að Stillholti
21. Verð fyrir þær er frá 56,4 millj-
ónum upp í 59,4 milljónir. Þá hafa
fimm tveggja herbergja íbúðir frá
93 til 95 fermetrum verið boðnar
til sölu, en verð fyrir þær er á bilinu
39 til 41,5 milljónir.
Það er Þingvangur ehf. sem
byggir húsið að Stillholti 21. Fram-
kvæmdir standa yfir og áætluð verk-
lok eru í árslok 2019. kgk
Eins og kunnugt er hafa staðið yfir
framkvæmdir við nýjan áningarstað
við Kirkjufellsfoss í Grundarfirði á
þessu ári, bílastæðin þar voru mal-
bikuð í lok ágúst. Stöðu málsins og
vegtengingu við nýja áningarstað-
inn kynnti Björg Ágústsdóttir á Fa-
cebook síðu Grundarfjarðar síðast-
liðinn sunnudag fyrir hönd bæjar-
félagsins, Vegagerðarinnar og land-
eigenda.
Þar kemur fram að Kirkjufells-
landið er í einkaeigu, en Grund-
arfjarðarbær fékk styrk úr Fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða til
að fjármagna endurbætur og fram-
kvæmdir við nýja áningarstaðinn.
„Fyrsti áfanginn fólst í að gera
stærra bílastæði, á nýjum stað, vest-
an við fossinn, og aðkomuveg frá
þjóðvegi að stæðinu. Í ágúst á þessu
ári var nýja bílaplanið malbikað en
það er um 2.900 fermetrar að flat-
armáli, ætlað fyrir minni bíla og
rútur. Næsti áfangi felst í að end-
urbæta göngustíga á svæðinu, frá
bílaplani og austur fyrir fossinn,
þar sem stígur verður breikkaður,
settar tröppur í hann og gengið
betur frá öllum umbúnaði stígs og
afmörkun frá brekkubrún að fossi.
Auk þess á að setja upp nýjar merk-
ingar og upplýsingaskilti á svæðinu.
Gamla bílastæðið verður síðar af-
lagt og sömuleiðis verður göngu-
stígur vestan megin við fossinn af-
máður,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að síðan í sumar hafi
landeigendur, Grundarfjarðarbær
og Vegagerðin, einnig með að-
komu lögreglunnar á Vesturlandi,
átt í samstarfi um hvernig umferð-
aröryggi verði sem best tryggt á
svæðinu, þá aðallega á og við þjóð-
veg 54. „Vegagerðin hafði málið á
sinni könnu og hefur nú ákveðið
að hefja framkvæmdir við að taka
niður og lækka þjóðveginn í brekk-
unni, austan við aðkomuveginn að
nýja stæðinu. Það þýðir að blind-
hæðin sem þarna er mun hverfa
við lækkun vegarins. Vegagerðin
er langt komin með að hanna þessa
útfærslu og mun í beinu framhaldi
hefja verkframkvæmdir. Það ætti
því ekki að líða langur tími þar til
blindhæðin í Kirkjufellsbrekkunni
heyrir sögunni til.“
Jafnframt segir að landeigend-
ur, Grundarfjarðarbær og Vega-
gerðin séu sammála um að þetta
sé sú lausn sem auki umferðarör-
yggi til mestra muna og að með
þessu sé horft til framtíðarhags-
muna á svæðinu. Þegar fram-
kvæmd við þjóðveginn lýkur og
nýja bílastæðið verður komið í
gagnið, verður núverandi bíla-
stæði aflagt, en það var útbúið
sumarið 2014.
mm
Nýju bílastæðin við áningarstaðinn við Kirkjufellsfoss voru malbikuð síðla í ágúst.
Ljósm. tfk.
Samstarf um framkvæmdir við Kirkjufellsfoss
Kirkjufellsfoss. Ljósm. ág.
Nýjar íbúðir á markað á Akranesi
Samtals 37 nýjar íbúðir í fjölbýlishúsum eru nú á söluskrá
Þannig mun húsið að Dalbraut 4 koma til með að líta út. Salur verður á jarðhæð
sem m.a. FEBAN mun fá til afnota. Á þaki fyrstu hæðar verður síðan garður.
Tólf íbúðir að Asparskógum 29 hafa verið settar í sölu.
Framkvæmdir standa yfir við tíu hæða fjölbýlishús að Stillholti 21. Áætluð verklok
eru í lok þessa árs.