Skessuhorn - 16.10.2019, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 201926
Lista- og menningarhátíðin Vöku-
dagar hefst á Akranesi fimmtudag-
inn 24. október og stendur fram á
sunnudaginn 3. nóvember. Um er
að ræða hátíð sem orðin er ómiss-
andi hluti af menningarlífinu í bæj-
arfélaginu. Vel hefur gengið að
skipuleggja hátíðina í ár, að sögn
Fríðu Kristínar Magnúsdóttur, við-
burðastjóra hjá Akraneskaupstað.
Verður hátíðin í ár með nokkuð
hefðbundum hætti. „Ég hef reyndar
ekki komið að skipulagningu Vöku-
daga áður en miðað við dagskrána í
fyrra verður þetta ekki ósvipað. Við
verðum þó með glæsilega nýjung í
ár sem er Heima-Skagi. Þar munu
listamenn og hljómsveitir spila í
heimahúsum á Akranesi föstudags-
kvöldið 1. nóvember,“ segir Fríða.
„Svo verðu þetta hefðbundna eins
og sýningar á verkum leikskóla-
barna og fleira í þeim dúr,“ bætir
hún við.
Fjölbreyttar sýningar
Meðal fleiri dagskrárliða nefn-
ir Fríða Kristín að Jónína Björg
Magnúsdóttir og Eðvarð Lárusson
munu syngja dúett í keilusalnum,
Erna Hafnes listakona verður með
örsýningu á nýjum olíuverkum, en
sýning hennar ber nafnið Góðir
Íslendingar. „Leirbakaríið verður
með sýningu sem ber nafnið Út um
víðan völl og á Bókasafni Akraness
veður fjölskyldustund með skólakór
Grundaskóla undir leiðsögn Val-
gerðar Jónsdóttur. Hljómsveitiir-
nar Gaddavír og Skullcrusher verða
með tónleika í Þorpinu. Þetta eru
ungar þungarokkshljómsveitir sem
komu einnig fram á Írskum dög-
um í sumar og var mjög flott,“ segir
Fríða. Sölvi Helgason verður á Café
Kaju með fyrirlestur og Sóli Hólm
verður með uppistand í Bíóhöll-
inni laugardagskvöldið 26. október.
„Nemendur í 9. bekk í Brekkubæj-
arskóla hafa verið að vinna að verk-
efnum um loftlagsbreytingar út frá
hugsjón Gretu Thunberg og verða
þau með sýningu á þriðju hæð í
Akranesvita. Þá verður Guðrún
Jónína Magnúsdóttur einnig með
sýningu þar sem ber nafnið Finndu
mig í fjöru. Tinna Royal mun einnig
verða með sýningu í Galleríi Bjarna
Þórs auk þess sem sett verður upp
farandssýningin Þetta vilja börnin
sjá, á Bókasafni Akraness.“
Styrktartónleikar
Hljómsveitin Slitnir strengir verða
með tónleika á Gamla Kaupfélaginu
og Kór Akraneskirkju kemur fram í
Frístundamiðstöðinni á Garðavöll-
um. Þá verða styrktartónleikar fyrir
Skagastelpurnar Ester Eir og Ólav-
íu laugardaginn 26. október í Tón-
bergi, sal Tónlistarskólans á Akra-
nesi. Þar munu koma fram Agnar
Már Magnússon á píanó, Ari Bragi
Kárason á trompet, Brynja Valdi-
marsdóttir syngur, Einar Scheving
slær trommur og Haraldur Ægir
Guðmundsson verður á kontra-
bassa. „Þetta verður fjölbreytt dag-
skrá og það ættu allir að geta fund-
ið eitthvað við sitt hæfi. Það hefur
verið gaman að skipuleggja hátíðina
og ég er glöð með hvað fólk hefur
tekið vel í þetta og hversu marg-
ir hafa átt frumkvæði að viðburð-
um. Þarna verður öll listaflóran og
ég er viss um að þetta verði virki-
lega skemmtileg hátíð fyrir alla fjöl-
skylduna,“ segir Fríða að endingu.
arg
Tónlistarhátíðin Heima-Skagi
verður haldin í fyrsta sinn á Akra-
nesi föstudaginn 1. nóvember næst-
komandi. Er hún haldin í tengslum
við menningarhátíðina Vökudaga,
sem stendur yfir í bænum frá 24.
október til 3. nóvember. Á Heima-
Skaga hátíðinni munu koma fram
sex tónlistarmenn/flytjendur, sem
spila tvisvar sinnum hver á sex
stöðum á Akranesi. Á einu kvöldi
verða því haldnir samtals tólf tón-
leikar. Fyrst og fremst fer hátíðin
fram í heimahúsum, þar sem íbú-
ar bjóða heim, en einnig verða tón-
leikar í Bárunni brugghúsi og Akra-
neskirkju.
Eftirvænting í loftinu
Skipuleggjendur hátíðarinnar eru
Ólafur Páll Gunnarsson og Hléd-
ís Sveinsdóttir. Fyrirmyndin að há-
tíðinni er fengin frá færeyska bæn-
um Gøtu, í gegnum Hafnarfjörð.
Þar hafa tónlistarhátíðir með sam-
bærilegu sniði verið haldnar undan-
farin ár. En hvernig kom það til að
ákveðið var að heimfæra þessa hug-
mynd upp á Akranes? „Ég er bú-
inn að reyna að láta mér detta í hug
einhver sniðug lítil tónlistarhátið til
að halda hérna síðan ég flutti aftur á
Skagann en ekki fengið neina betri
hugmynd en þessa. Enda er þetta
mjög góð hugmynd og gott kons-
ept sem er bæði skemmtilegt og
þakklátt í framkvæmd,“ segir Óli
Palli í samtali við Skessuhorn, en
hann þekkir vel til hátíðanna sem
eru fyrirmyndin að Heima-Skaga
hátíðinni.
„Þetta hefur alveg svínvirkað í
Hafnarfirðinum svo núna var ákveð-
ið að kýla á þetta á Skaganum,“ seg-
ir hann. „Þessi fyrsta hátíð á Skag-
anum verður aðeins minni í sniðum
en sú sem er í Hafnarfirðinum, við
förum rólega af stað, reynum að
finna hvar mörkin liggja þannig að
allir geti komið og séð það sem þá
langar að sjá. Þó er ekki útilokað,
í ljósi þess hve vel miðasala hefur
farið af stað, að við bætum jafnvel
við hátíðina, ég tala nú ekki um ef
það verður uppselt fljótlega,“ bætir
hann við. „Við erum allavega mjög
spennt fyrir þessu og ánægð hvað
fólk tekur vel í þetta. Miðasalan
byrjar vel og allir sem við töluðum
við um að hleypa fólki inn voru til
í að taka þátt. Listamennirnir tóku
sömuleiðis allir mjög vel í þessa
hugmynd. Auðvitað gátu ekki allir
mætt, en það var eingöngu vegna
þess að þeir voru uppteknir þetta
kvöld, en áhuginn var til staðar,“
segir Óli Palli. „Þannig að þetta
virðist ætla hitta í mark hjá öllum,“
segir hann ánægður.
„Á að vera notalegt“
Þeir sem koma fram á Heima-
Skaga hátíðinni í ár eru Friðrik
Dór, Högni Egilsson, Jónas Sig,
Ragnheiður Gröndal, Úlfur Úlfur
og Valgeir Guðjónsson. Tónlistar-
flutningur verður í fjórum heima-
húsum í gamla bænum á Akranesi;
Vesturgötu 32, Vesturgötu 71b,
Skólabraut 20 og Grundartúni 8.
Auk þess verða tónleikar í Akra-
neskirkju og Bárunni brugghúsi.
„Allir staðirnir eru á Neðri-Skag-
anum, í góðu göngufæri hver frá
öðrum. Það er lykilatriði í þessu.
Þetta er innihátíð og fólk á aðeins
að vera örfáar mínútur að skjót-
ast á milli staða,“ segir Óli Palli. „Í
heimahúsum, þar sem komast bara
15-20 manns inn, þá skapast oft
mikil nánd á tónleikum sem mörg-
um þykir skemmtilegt. Þá erum við
einnig mjög þakklát kirkjunni fyrir
að hafa tekið okkur opnum örmum
sem og Bárunni brugghúsi. Hug-
myndin er að þetta sé notalegt, en
stundum verður auðvitað líka mik-
ið stuð. En það er ekkert sem segir
að þetta tvennt geti ekki farið sam-
an. Það getur verið mjög notalegt
á tónleikum þó það sé líka mikið
stuð. Við skipuleggjendurnir erum
mjög spenntir að sjá hvernig þetta
kemur út,“ segir Óli Palli að end-
ingu.
Tónlistarhátíðin Heima-Skagi
hefst með óformlegri og afslapp-
aðri setningarathöfn í Harald-
arhúsi kl. 20:00, föstudaginn 1.
nóvember. Að svo búnu syngur
Ragnheiður Gröndal fyrstu tóna
hátíðarinnar. Miðasala er hafin og
fer fram á www.tix.is. Að tónleika-
dagskrá lokinni er boðið til eftir-
partís á Gamla Kaupfélaginu þar
sem gestir geta hist og borið sam-
an bækur sínar og spjallað um tóna
kvöldsins.
kgk
Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir, skipuleggjendur Heima Skaga hátíðarinnar.
Ljósm. Stella María Arinbjargardóttir.
Tónlistarhátíðin Heima-Skagi verður haldin í fyrsta sinn um mánaðamótin:
„Þetta virðist ætla að hitta í mark hjá öllum“
Í fyrra á Vökudögum var Tinna Royal með sýninguna Glassúr en hún verður einnig með sýningu á hátíðinni í ár. Á myndinni er hún ásamt Bellu dóttur sinni og þær
klæðast báðar kleinuhringjapeysum.
Vökudagar hefjast á Akranesi í næstu viku