Skessuhorn - 16.10.2019, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 201930
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað ætlar þú að gera
eftir 10. bekk?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Tæknimessu í FVA)
Andrea Ósk Pétursdóttir
Ég ætla að fara á afreksíþrótta-
braut í FVA.
Gígja Kristný Stefánsdóttir
Fara í FVA. Ekki ákveðin hvað
ég ætla að læra.
Magnea Sindradóttir
Ég ætla á afreksíþróttabraut hér
í FVA.
Ellert Kári Samúelsson
Ég ætla hingað í FVA og læra að
tengja hluti. Fara í rafiðn.
Tvítugi Skagamaðurinn Arnór
Sigurðsson, sem spilar nú sem at-
vinnumaður í knattspyrnu með
CSKA Moskvu, skoraði sitt fyrsta
mark fyrir íslenska landsliðið þegar
Ísland vann Andorra 2-0 á Laugar-
dalsvelli á mánudagskvöldið. Arnór
var valinn í byrjunarlið leiksins eftir
að hafa setið á bekknum í leiknum
gegn Frökkum á föstudaginn og
má segja að hann hafi komið sterk-
ur inn. Leikurinn í heild var fremur
bragðdaufur fyrstu mínúturnar, en
á 38. mínútu dró til tíðinda þegar
Arnór kom Íslandi yfir og færðist í
kjölfarið meira líf í leikinn. Það var
svo Kolbeinn Sigþórsson sem kom
með annað mark Íslands á 65. mín-
útu. Með því marki jafnaði Kol-
beinn markamet Eiðs Smára Guð-
johnsen fyrir landsliðið. Ísland sit-
ur nú í þriðja sæti riðilsins með 15
stig, fjórum stigum á eftir Frakk-
landi og Tyrklandi.
arg
Skallagrímskonur kræktu í fyrstu
stig vetrarins í Domino‘s deildinni
þegar þær unnu sannfærandi sigur á
liði Grindavíku, 74-59. Leikið var í
Borgarnesi á miðvikudagskvöld.
Skallagrímur hafði heldur yfir-
höndina í upphafi leiks, en gestirn-
ir á Grindavík voru þó aldrei langt
undan. Þegar komið var fram yfir
miðjan fyrsta leikhluta höfðu Borg-
nesingar fjögurra stiga forskot,
14-10, en eftir það skildu leiðir. Við
tók góður leikkafli Skallagríms-
kvenna sem skilaði 13 stiga forskoti
eftir upphafsfjórðunginn, 27-14.
Þær héldu uppteknum hætti í öðr-
um leikhltua, slitu sig enn lengra
frá gestunum og voru komnar í
vænlega stöðu í hálfleik, 46-24.
Skallagrímskonur byrjuðu síð-
ari hálfleikinn af krafti og juku for-
skotið í 30 stig. Gestirnir komu
aðeins til baka en Borgnesingar
leiddu með 24 stigum fyrir loka-
fjórðunginn, 65-41. Grindvíking-
ar minnkuðu muninn hægt og síg-
andi í fjórða leikhlutanum, en sig-
ur Skallagrímskvenna var aldrei í
hættu. Þegar lokaflautan gall mun-
aði 15 stigum á liðunum, 74-59 og
öruggur sigur Skallagríms stað-
reynd.
Keira Robinson var atkvæða-
mest í liði Skallagríms með 24 stig,
tíu fráköst, sjö stoðsendingar og
fimm stolna bolta. Emilie Hessel-
dal skoraði 16 stig, tók tólf fráköst,
stal sex boltum og gaf fimm stoð-
sendingar og Maja Michalska var
með 15 stig. Árnína Lena Rúnars-
dóttir skoraði níu stig, Gunnhild-
ur Lind Hansdóttir var með fjögur
stig, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
skoraði þrjú stig, tók átta fráköst
og gaf sex stoðsendingar, Þórunn
Birta Þórðardóttir var með tvö
stig og Arna Hrönn Ámundadóttir
skoraði eitt.
Skallagrímur situr eftir leikinn
í 5. sæti deildarinnar með tvö stig
eftir tvo leiki. Næsti leikur Borg-
nesinga er Vesturlandsslagur gegn
Snæfelli í Stykkishólmi í kvöld,
miðvikudaginn 16. október.
kgk
Vesturlandsmót í boccía fór fram
í íþróttahúsinu við Vesturgötu á
Akranesi síðastliðinn laugardag. Til
leiks mættu að þessu sinni aðeins
tólf sveitir; ein kom frá Hvamms-
tanga, ein frá Borgarbyggð, fjór-
ar frá Aftanskini í Stykkishólmi,
en heimamenn voru fjölmennir
og tefldu sex sveitum fram. „Ljóst
er að félög eldri borgara í Stykkis-
hólmi og á Akranesi ná vel til félaga
sinna og á þessum stöðum er boccí-
aíþróttin stunduð af kappi,“ sagði
Flemming Jessen yfirdómara sem
jafnframt var mótsstjóri ásamt Þor-
valdi Valgarðssyni.
Þótt mótið væri fámennt var góð
stemning og skemmtu þátttakend-
ur sér ágætlega. Keppt var í þrem-
ur riðlum, fjórar sveitir í hverjum
riðli. Eftir riðlakeppnina stóðu
þrjár sveitir sem sigurvegarar og
háðu þær síðan keppni sín á milli
um sæmdarheitið Vesturlands-
meistari 2019 í boccia.
Úrslit urðu þessi:
1. sæti: FEBAN 2; Edda Elíasdótt-
ir, Stefán Lárus Pálsson og Þórhall-
ur Björnsson.
2. sæti: FEBAN 1; Böðvar Jó-
hannesson, Eiríkur Hervarsson og
Hilmar Björnsson.
3. sæti: FEBAN 3; Björg Loftsdótt-
ir, Böðvar Þorvaldsson og Sigur-
laug Árnadóttir. mm
Það er tvöfaldur Vesturlandsslagur á dag-
skrá í Íslandsmótinu í körfuknattleik þessa
vikuna. Fyrst eigast við Snæfell og Skalla-
grímur í þriðju umferð Domino‘s deild-
ar kvenna í körfuknattleik. Bæði lið hafa
unnið einn leik og tapað einum það sem
af er vetri í Domino‘s deildinni. Búast má
við hörkuleik þegar liðin mætast í Stykkis-
hólmi í kvöld, miðvikudaginn 16. október,
eins og iðurlega þegar þessi tvö lið eigast
við.
Næsti Vesturlandsslagur er síðan viðureign
Snæfells og Skallagríms í 1. deild karla,
einnig í þriðju umferð mótsins næstkom-
andi föstudagskvöld, 18. október. Bæði
liðin eru án sigurs eftir fyrstu tvo leiki vetr-
arins og því ljóst að annað Vesturlands-
liðanna mun krækja í sín fyrstu stig næst-
komandi föstudagskvöld.
kgk
Stjórn Körfuknattleiksdeildar Snæ-
fells ákvað mánudaginn 7. októ-
ber sl. að rifta samningi sínum við
körfuknattleiksþjálfarann Vladim-
ir Ivankovic, sem þjálfað hefur kar-
lalið Snæfells frá því haustið 2018.
Baldur Þorleifsson og Jón Þór Ey-
þórsson hafa tekið tímabundið við
þjálfun liðsins, að því er fram kem-
ur í tilkynningu á Facebook-síðu
Snæfells.
Vladimir tók við karlaliði
Snæfells fyrir keppnistímabilið
2018-2019. Ungt lið Snæfells vann
tvo leiki en tapaði 19 og hafnaði í
7. sæti 1. deildar í fyrra, en liðið
lék stóran hluta tímabils án erlends
leikmanns. Auk þess að þjálfa karl-
ana var Vladimir aðstoðarþjálfari
kvennaliðs Snæfells síðasta vetur.
kgk
Vladimir rek-
inn frá Snæfelli
Frá viðureign Snæfells og Skalla-
gríms í Domino‘s deild kvenna
síðasta vetur. Ljósm. úr safni/ sá.
Vesturlandsveisla
í körfunni
Arnór Sigurðsson skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í leiknum gegn Andorra á
mánudagskvöldið. Ljósm. úr safni.
Fyrsta landsliðsmark Arnórs
Sannfærandi sigur Skallagríms
Skallagrímskonur sóttu fyrstu stig vetrarins með öruggum sigri á Grindavík.
Ljósm. Skallagrímur.
Þrjár efstu sveitir með verðlaunagripi sína. Ljósm. fj.
Skagamenn
Vesturlandsmeistarar í boccia
Rúnar Sigurðsson
Ég ætla að læra bifvélavirkjun.