Læknablaðið - Dec 2018, Page 23
LÆKNAblaðið 2018/104 555
gjöf lyfja og í náinni framtíð er líklegt að slík tæki munu fram-
kvæma nánast að öllu leyti ýmsar skurðaðgerðir.10,11
Gervigreindar tölvur og vélmenni munu í framtíðinni gegna
mikilvægu hlutverki við vöktun og eftirlit með sjúklingum á
sjúkrastofnunum og jafnvel sjá að einhverju leyti um umönnun
fólks. Þegar eru til vélmenni, svokallaðir carebots, sem hjálpa fólki
með vitræna skerðingu og aðstoða heilbrigðisstarfsfólk við að
eiga samskipti við einstaklinga sem erfitt getur verið að ná til,
eins og börn með einhverfu.12,13 Í þessu sambandi er mikilvægt
að menn séu meðvitaðir um þau fjölmörgu siðferðilegu álitaefni
sem óhjákvæmilega koma upp þegar rætt er um notkun véla við
samskipti og umönnun sjúklinga.
Margar grunnrannsóknir í læknisfræði fela í sér úrvinnslu og
greiningu á gríðarstórum gagnasöfnum sem eru bæði óheyrilega
flókin og tímafrek. Sem dæmi má nefna sameindaerfðafræði þar
sem verið er að rannsaka mikinn fjölda erfðabreytileika sem geta
með margvíslegum hætti tengst sjúkdómsáhættu. Vísindamenn
vinna nú að því að beita gervigreind og vélnámi við að greina
tengsl erfðabreytileika við meingerðarferli fjölda sjúkdóma.14
Þessar aðferðir munu vafalítið einnig nýtast í auknum mæli við
leit að nýjum lyfjum þar sem gervigreindar tölvur geta skoðað
sameindabyggingu efna hratt og í miklum smáatriðum og spáð
fyrir um hvernig þau passa til dæmis við viðtaka á yfirborði
frumna.15
Persónumiðuð læknisfræði
Framfarir síðustu ára hafa einnig hjálpað til við þróun svokall-
aðrar persónumiðaðrar læknisfræði (personalized medicine). Hún
felur í sér nýtingu ýmiss konar upplýsinga um einstaklinginn
til þess að auka nákvæmni greininga og gera mönnum kleift
að sérsníða meðferð fyrir einstaka sjúklinga. Möguleikarnir á
þessu sviði tengjast ekki síst hratt vaxandi þekkingu á erfðafræði
ýmissa sjúkdóma. Þannig geta erfðaupplýsingar í vissum tilfell-
um spáð fyrir um áhættu á ákveðnum sjúkdómum eða um það
hvernig einstaklingur er líklegur til að þola eða svara ákveðinni
lyfjameðferð. Þetta getur til dæmis hjálpað til við val á lyfi og
æskilegum skammti þess og dregið úr líkum á því að sjúklingur
sé settur á lyf sem er ólíklegt að virki eða er líklegt til að þolast
illa.
Þessi þróun getur haft þá kosti að meðferð verður markvissari
þar sem valin er meðferð sem er líklegri til að skila árangri í
viðkomandi tilfelli en byggir ekki á rannsóknum og reynslu af
meðferð hópa sjúklinga sem eiga lítið annað sameiginlegt en að
vera með ákveðna sjúkdómsgreiningu. Einnig getur þessi nálgun
stuðlað að því að ýmsar lífsstílsráðleggingar verði markvissari
þar sem nýttar eru upplýsingar um samsetningu þeirra áhættu-
arfgerða sem einstaklingurinn er með. Rannsóknir benda til þess
að sjúklingar séu bæði ánægðari með og líklegri til að fylgja með-
ferðar- og lífsstílsleiðbeiningum þegar þær eru byggðar á þeirra
eigin upplýsingum.16
Gervigreind og vélnám mun eflaust flýta fyrir þróun einstak-
lingsmiðaðrar læknisfræði. Dæmi um slíka möguleika eru
myndgreiningarrannsóknir á heila til að meta hættuna á að
einstaklingar með byrjunareinkenni geðrofs þrói með sér alvar-
lega og langvinna geðrofssjúkdóma eins og geðklofa.17 Vitað er
að aðeins um þriðjungur þessara einstaklinga fá að endingu
geðrofssjúkdóm en hinir ýmist losna við einkenni eða fá aðrar
geðraskanir. Nýlegar rannsóknir með segulómun hafa sýnt að
hópurinn sem fær geðrofssjúkdóm er með breytingar í hvíta efni
heilans á ákveðnum stöðum en þessar breytingar sjást ekki hjá
þeim sem ekki þróa með sér geðrofssjúkdóm.18 Rannsakendur á
þessu sviði hafa beitt vélnámi þar sem gervigreindar tölvur læra
að þekkja þessar breytingar út frá miklum fjölda segulómmynda.
Í langflestum tilfellum myndu þessar breytingar ekki greinast
við hefðbundna skoðun á segulómmynd en niðurstöður þessara
rannsókna hafa sýnt að tölvur greina breytingarnar í allt að 90%
þeirra sem fá geðrofssjúkdóm og líklegt er að sú tala geti hækkað
með áframhaldandi vélnámi.17
Á næstu árum mun læknisfræði verða sífellt einstaklingsmið-
aðri sem mun væntanlega leiða til nákvæmari sjúkdómsgrein-
inga og markvissari og öruggari meðferða.
Gervigreindar tölvur og vélmenni munu í framtíðinni sinna ýmsum af þeim verkum sem í dag eru unnin af læknum. NordicPhotos/Getty