Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 45
LÆKNAblaðið 2018/104 577
stæðingum í janúar 2018 líkt og aðra janúarmánuði undanfarin
ár. Flestir lungnasjúklingar vita að ástandið um áramót er
slæmt og halda sig því inni og auka lyfjanotkun sína kring-
um áramót en þurfa ekki að leita til læknis. Þannig er verið
að auka á vanlíðan þess stóra hóps Íslendinga sem eru með
lungnasjúkdóma og skerða lífsgæði þeirra.
Viðhorf almennings til flugelda voru rannsökuð í þjóðmála-
könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Niðurstöður
gefa til kynna að 69% landsmanna telji að svifryksmengun af
völdum flugelda geti haft skaðleg áhrif á heilsu og 57% studdu
að stjórnvöld myndu setja strangari reglur um notkun flug-
elda. En hvaða breytingar væri hægt að gera?
Hægt væri að setja markmið um hversu mikið af flugeld-
um megi flytja inn á hverju ári. Ef horft er til síðastliðinna
15 áramóta fór svifryksmengun yfir heilsuverndarmörk
annað hvert ár. Ef innflutningur flugelda helmingaðist
myndi svifryksmengun fara sjaldnar yfir heilsuverndar-
mörk. Til að tryggja að standast heilsuverndarmörk þyrfti
hins vegar að minnka magn innfluttra flugelda um áttfalt.
Hægt væri banna auglýsingar líkt og er gert með áfengi og
tóbak. Einnig mætti minnka vöruframboð og hætta alveg
með þá flugelda sem menga mest við jörðu. Að auki mætti
íhuga skilagjald fyrir umbúðir af flugeldum til að minnka
flugeldaúrgang í umhverfinu. Nýleg rannsókn gefur hins
vegar til kynna að meiri árangur náist í loftgæðum þar sem
almenn notkun flugelda er bönnuð.5
Mikilvægt er talið að halda í hátíðarstemningu um ára-
mót og því gætu sveitarfélög verið með skipulagðar sýn-
ingar, eins og ljósasýningar í bland við tónlist, sem hefur
gefist vel til dæmis í Hong Kong. Þjóðmálakönnunin gefur
til kynna að 27% Íslendinga styðji bann við almennri notkun
flugelda. 80% landsmanna finnst gaman að horfa á flugelda,
en aðeins 45% finnst gaman að skjóta þeim upp. Flugeldasýn-
ingar á vegum opinberra aðila myndu því þjóna meirihluta
þjóðarinnar.
Af ofanskráðu er ljóst að óhófleg óstýrð notkun Íslendinga
á flugeldum leiðir til alvarlegrar fyrirsjáanlegrar mengunar
sem hefur áhrif á heilsu og vellíðan lungnasjúklinga sem eru
allt að 5-10% landsmanna og eru í þeim hópi bæði börn og
fullorðnir.
Heimildir
1. Andradóttir HÓ, Þorsteinsson Þ. Metmengun í Reykjavík af völdum flugelda -
kynning á niðurstöðum rannsóknar. Háskóli Íslands, 21. september 2018.
2. Thorsteinsson T, Gísladóttir G, Bullard J, McTainsh G..Dust storm contributions to
airborne particulate matter in Reykjavík, Iceland. Atmospheric Environm 2011; 45:
5924-33.
3. Þórðarson H. Svifryk áramót 2017/2018 – mæling á málmum og PAH.
Efnagreiningar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, 2018: skýrsla nr. 6EM18001.
4. Ríkisútvarpið (2018, 1. janúar). Mikil mengun. ruv.is/sarpurinn/klippa/mikil-
-mengun - nóvember 2018.
5. Lai YH, Brimblecombe P. Regulatory effects on particulate pollution in the early
hours of Chinese New Year, 2015. Environm Monit Assess 2017; 189: 467.