Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 25

Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 25
LÆKNAblaðið 2018/104 557 að draga úr sóun, sem í dag er meðal annars er fólgin í því að fólk eyðir miklum tíma í einföld og tímafrek verk í stað þess að nýta dýrmætan tíma sinn til beinna samskipta við sjúklinga og vinna að framþróun og nýjungum í sínu fagi. Fjölmargar áskoranir í læknisfræði Þó svo að við horfum fram á miklar framfarir innan læknisfræði í náinni framtíð verða áskoranirnar vafalítið áfram mjög margar. Fjölgun aldraðra og þeirra sem þjást til dæmis af offitu, sykursýki og heilabilunarsjúkdómum mun leiða til aukins kostnaðar og álags á velferðarkerfi svo að ljóst er að huga þarf að grundvallar- breytingum á heilbrigðiskerfum Vesturlanda þar sem núverandi kerfi munu ekki ráða við hratt vaxandi þjónustuþarfir ört stækk- andi hóps fólks með langvinna sjúkdóma. Eftirlit og þjónusta mun þurfa að færast í auknum mæli út í samfélagið þar sem fylgst verður með sjúklingum með hjálp ýmissa tækja sem senda upplýsingar jafnóðum til lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks. Gervigreind mun vafalítið gegna mikilvægu hlutverki við að vinna úr sífellt auknu magni mælinga og upplýsinga og aðstoða við sjúkdómsgreiningar og ákvarðanir um meðferð ásamt því að auka öryggi og koma í veg fyrir mistök. Heimildir 1. www.zmescience.com/research/technology/smartphone-power-compared-to-apollo-432/ - nóvember 2018. 2. www.weforum.org/agenda/2018/05/society-reboot-operating-system-fourth-industrial- revolution/ - nóvember 2018. 3. www.sciencealert.com/driverless-cars-could-reduce-traffic-fatalities-by-up-to-90-says- report - nóvember 2018. 4. Wadhwa V. Medicine will advance more in the next 10 years than it did in the last 100. Stanford University 2016, https://singularityhub.com/2016/10/26/medicine-will-advance- -more-in-the-next-10-years-than-it-did-in-the-last-100/ - nóvember 2018. 5. Jiang F, Jiang Y, Zhi H, Dong Y, Li H, Ma S, et al. Artificial intelligence in healthcare: past, present and future. Stroke Vasc Neurol 2017 2: 230-43. 6. Shafique S, Tehsin S. Computer-aided diagnosis of acute lymphoblastic leukemia. Comput Math Methods Med 2018; 2018: 6125289. 7. Mar VJ, Soyer HP. Artificial intelligence for melanoma diagnosis: How can we deliver on the promise? Ann Oncol 2018; 29: 1625-28. 8. Du XL, Li WB, Hu BJ. Application of artificial intelligence in ophthalmology. Int J Opthalmol 2018; 11: 1555-61. 9. Nichols JA, Chan HW, Baker MAB. Machine learning: applications of artificial intelligence to imaging and diagnosis. Biophys Rev 2018; Epub. 10. Brodie A, Vasdev N. The future of robotic surgery. Ann R Coll Surg Engl 2018; 100 (Suppl 7): 4-13. 11. Palma E, Bufarini C. Robotized compounding of oncology drugs in a hospital pharmacy. Int J Pharm Compd 2014; 18: 358-64. 12. Sartorato F, Przybylowski L, Sarko DK. Improving therapeutic outcome in autistic spectr- um disorders: Enhancing social communication and sensory processing through the use of interactive robots. J Psychiatr Res 2017; 90: 1-11. 13. Darragh M, Ahn HS, MacDonald B, Liang A, Peri K, Kerse N, et al. Homecare Robots to Improve Health and Well-Being in Mild Cognitive Impairment and Early Stage Dementia: Results From a Scoping Study. J Am Med Dir Assoc 2017; 18: 1099. 14. Schrider DR, Kern AD. Supervised Machine Learning for Population Genetics: A New Paradigm. Trends Genet 2018; 34: 301-12. 15. Panteelev J, Gao H, Jia L. Recent applications of machine learning in medicinal chemistry. Bioorg Med Chem Lett 2018; 28: 2807-15. 16. Everett E, Kane B, Yoo A, Dobs A, Mathioudakis N. A Novel Approach for Fully Automated, Personalized Health Coaching for Adults with Prediabetes: Pilot Clinical Trial. J Med Internet Res 2018; 20: e72. 17. Gifford G, Crossley N, Fusar-Poli P, Schnack HG, Kahn RS, Koutsouleris N, et al. Using neuroimaging to help predict the onset of psychosis. Neuroimage 2017; 145: 209-17. 18. Ziermans TB, Schothorst PF, Schnack HG, Koolschijn PC, Kahn RS, van Engeland H, et al. Progressive structural brain changes during development of psychosis. Schizophr Bull 2012; 38: 519-30. 19. Susskind R, Susskind D. Technology will replace many doctors, lawyers and other pro- fessionals. Harvard Business Review 2016. hbr.org/2016/10/robots-will-replace-doctors- lawyers-and-other-professionals. - nóvember 2018. 20. racma.edu.au/index.php?option=com_content&view=article&id=936&Itemid=714 - nóvember 2018. Eins og fram hefur komið gengu í gildi skipulagsbreytingar eftir aðalfund LÍ 8.-9. nóvember síðastliðinn sem aðalfundur LÍ 2017 samþykkti. Á aðalfundinum 2018 voru til viðbótar sam- þykktar lagabreytingar sem hafa í för með sér að LR hættir þátttöku í útgáfu Læknablaðsins. Sú breyting var gerð að ósk aðalfundar LR síðastliðið vor sem samþykkti að LR hætti þátt- töku sinni í útgáfunni. Samþykkt var á aðalfundinum að LÍ héldi útgáfu Læknablaðsins áfram. Eftir þessa breytingu er útgáfustjórn Læknablaðsins skipuð formanni LÍ og ábyrgðarmanni blaðsins, auk formanna aðildar- félaganna fjögurra. Stjórn LÍ ræður ritstjóra, einn eða fleiri, til tveggja ára í senn og skipar ábyrgðarmann blaðsins úr þeirra hópi. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Læknablaðsins verður áfram Magnús Gottfreðssson læknir og ritstjórnarfulltrúi Védís Skarp- héðinsdóttir. Á aðalfundi LÍ 2017 var ákveðið að áskrift að Læknablaðinu væri innifalin í félagsgjaldi félagsmanna LÍ. Félagsmenn sem mega lögum samkvæmt hætta að greiða félagsgjald hætta á hinn bóginn að fá Læknablaðið nema þeir gerist áskrifendur að því og greiði áskriftargjald. Vaxandi kostnaður við útgáfustarf- semina er ein ástæða þess að lagabreytingin var gerð. Stjórn LÍ ákvað að fresta gildistöku þessarar samþykktar til 1. janúar 2019 þannig að félagsmenn sem ekki greiða félagsgjald fengju Lækna- blaðið endurgjaldslaust á aldarafmælisárinu. Þessi lagabreyting frá 2017 tekur þar með formlega gildi frá 1. janúar 2019. Útgáfustjórn Læknablaðsins hefur ákveðið að áskriftargjald Læknablaðsins fyrir 2019 verði 16.900 kr., sem gerir 1.408 kr. á mánuði og er það eins og áður segir innifalið í fé- lagsgjaldi til LÍ. Þeir sem ekki greiða félagsgjald LÍ verða því að greiða þetta áskriftargjald til að fá blaðið. Læknablaðið verður eftir áramót sent til allra þeirra sem hafa fengið það á árinu 2018. Þeim læknum sem ekki greiða lengur félagsgjald LÍ verður sendur greiðsluseðill fyrir áskriftargjaldi ársins 2019. Útgáfustjórn Læknablaðsins vonar að allir læknar sem ekki greiða lengur félagsgjald til LÍ kjósi engu að síður að halda áfram að vera áskrifendur að Læknablaðinu. Kjósi einhverj- ir læknar frekar að hætta að fá blaðið, nú þegar þeir þurfa að greiða fyrir það, eru þeir vinsamlega beðnir um að tilkynna það til skrifstofu LÍ eigi síðar en 20. janúar 2019, annaðhvort símleið- is í 564 4100 eða á netfangið lis@lis.is. Læknablaðið 2019 – tilkynning frá útgáfustjórn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.