Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 61

Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 61
LÆKNAblaðið 2018/104 593 Arngrímur fékk kuldalegar móttökur þegar hann tók við héraðinu, en ávann sér fljótt traust og viðingu fólksins. Mörg- um fannst sérkennilegt að sjá þennan lágvaxna lækni, sem klæddur var að sveitamanna sið þegar hann kom fyrst til starfa, í háum ullarleistum klæddum yfir buxurnar upp undir hné. Hann leit ekki út eins og virðulegur embættismaður eins og Halldór Steinsen. Öll árin fór Arngrímur sjaldan úr hér- aði og ef hann fór burtu í einhvern tíma þurfti hann sjálfur að útvega sér afleys- ingu og borga fyrir. Í mörg erfið ferðalög fór hann á hestum og fótgangandi, til dæmis yfir Fróðárheiði til að bjarga ljós- móðurinni í Staðarsveit sem var að blæða út eftir fósturlát. Arngrímur þótti skemmtilegur og hlýr, en hann gat verið hvatvís og afar orðhepp- inn. Hann var vel hagmæltur og unnandi klassískrar tónlistar. Hann hafði mikinn bílaáhuga og átti til að setjast upp í nýja bíla hjá Ólsurum og reynslukeyra þá án formlegs leyfis. Arngrímur var þrotinn að kröftum þegar hann lét af störfum rúmlega sjötug- ur, enda ekki auðvelt fyrir aldraðan og heilsuveilan lækni að vera stöðugt á vakt og eiga von á að vera vakinn upp um næt- ur enda Ólafsvík á þeim tíma stór verstöð með fjölda farandverkamanna. Oft var þá í landlegum mikil drykkja og slagsmál og þufti læknirinn þá oft að gera að sárum manna. Arngrími fannst þeir útnesjamenn Ólsarar og Sandarar oft æði fyrirferðar- miklir og róstusamir, en engu að síður hjartahlýir, samhentir og hjálpsamir. Ólsarar og Sandarar kunnu vel að meta Arngrím og hans störf. Við starfslok var honum haldið mikið kveðjuhóf og íbúar héraðsins leystu hann út með nýrri Volvo- bifreið. Arngrímur lést þann 12. janúar 1972. Hann var jarðsettur frá Ólafsvíkurkirkju að viðstöddu fjölmenni. Í minningargrein Stefáns Sigurkarls- sonar lyfsala í Stykkishólmi segir: „Í fyrsta skipti, sem ég sá Arngrím Björnsson lækni lá hann hálfur undir „Ástin Gipsí“ jeppa, sem hann átti þá, og þegar hann skreið undan bíl sínum krímóttur í framan með tól sín og hóf að útlista fyrir mér leyndar- dóma bílafræðinnar, kom mér í hug vísan alkunna „Löngum var ég læknir minn, lögfræðingur, prestur" og víst er um það að Arngrímur mátti oft taka til hendi á fleiri sviðum en í sérgrein sinni. Til að mynda setti hann oft saman laglegar bög- ur, og lét sig ekki muna um að gera lag við, ef á þurfti að halda, enda maðurinn frábærlega tónvís, svo sem hann átti kyn til.” Heimildir Læknatal annað bindi 1970 Morgunblaðið 20. janúar 1972 Tíminn 20. janúar 1972 Vegur kom fyrst yfir Fróðárheiði 1930 sem var afar torfær fram yfir 1950 að hann var lagfærður. Útnesvegur fyrir Jökul varð fyrst almennilega ökufær upp úr 1950. Ólafsvík. Í Flatey, Arngrímur og séra Sigurður Haukdal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.