Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 39
taldi einnig mikilvægt að samningar
nýráðinna lækna yrðu skoðaðir, því það
bæri á mistúlkunum á kjarasamningnum í
ráðningarsamningum þeirra.
Reynir ræddi einnig, eins og Svandís,
um vandann á landsbyggðinni og sagði að
ráðast þyrfti í átak vegna skorts á læknum
þar. Endurskipuleggja þyrfti starfsemina á
ýmsa lund.
Skortir á vilja til að fá lækna heim?
„Ekki eru svo mörg ár síðan mönnun þar
var stöðug, en það brotnaði niður eftir að
farið var í hagræðingaraðgerðir. Það starfa
800 íslenskir læknar erlendis og þeim fer
fjölgandi,“ sagði Reynir og að það skorti á
skilning á því að læknar komi ekki heim
til að vinna. „Ákveðinn kúltur“ gagnvart
læknum haldi þeim frá.
„Það er enginn skortur á læknum en
það skortir vilja til að ráða þá á þeim kjör-
um sem þarf svo þeir komi heim,“ sagði
hann. „Það er ekkert mál að leysa mál
landsbyggðarinnar ef það er virkilegur
vilji til. Það þarf vilja til að hleypa þessum
læknum heim til landsins.“
Rekstrartekjur Læknafélagsins hækk-
uðu um rúm 11% milli ára og námu um
141.389.227 krónur árið 2017.
Allir ársreikningar félagsins, ársreikn-
ingur LÍ 2017, Fræðslustofnunar lækna,
Orlofssjóðs og Fjölskyldu- og styrktarsjóðs,
voru samþykktir með öllum greiddum
atkvæðum.
Kristján Vigfússon og Reynir Arngrímsson. Kristján er
lektor í HR og stýrði öflugu hópastarfi á aðalfundinum
þar sem fulltrúum var skipað í nokkra 8 manna hópa
til að skeggræða um stefnumótun í heilbrigðismálum.
Mynd/Védís
Sú nýbreytni var prófuð að láta allan hópinn raða sér í aldursröð, þegjandi og hljóðalaust og án fums og fáts, - en það
var talsverður órói í bekknum. Mynd/Védís
Virkir, áhugasamir og vakandi félagsmenn í hinu 100 ára gamla félagi, LÍ. Myndir/gag.
AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS
LÆKNAblaðið 2018/104 571