Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 47

Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2018/104 579 áður segir hafa allir þjónustuveitendur í íslenska heilbrigðiskerf- inu aðgang að Heilsugátt og þannig er hér tilkomin einföld og þægileg boðleið sem allir geta notað. Skilaboð birtast ýmist á vinnulista læknis í Sögu (væntanlegt innan skamms) eða í Heilsugáttarglugga. Með þeim er hægt að vísa í ákveðinn tímapunkt í sjúkraskrá (tímalínu) – eins og tengill í tölvupósti. Hægt er að senda hvaða upplýsingar sem er samhliða til dæmis ICD-greiningarkóða og útskriftardeild til að auðvelda viðtakanda að átta sig á eðli skilaboða: Með þessu móti er afar auðvelt að láta heimilislækni vita af þjónustu án langra læknabréfa og heimilislæknir ræður sjálfur hversu lítið eða mikið hann les um tilfellið. Hægt er að senda skilaboð sjálfvirkt, til dæmis þegar útskriftarnóta er frágengin á Landspítala en þannig er tryggð 100% skilvirkni, einfaldara upp- lýsingaflæði og margfalt minni vinna bæði lækna og ritara en í dag. Slík flöggun þarf ekki að vera bundin við útskrift, til dæmis gætu skilaboð verið send sjálfvirkt strax við komu á bráðamót- töku, við lok aðgerðar á skurðstofu, við breytingar á lyfjakorti, meðferðartakmörkunum eða andláti sjúklings. Flagganir með skilaboðum auðvelda verulega samfellu í þjónustu milli heil- brigðisstofnana og gera mögulega hvers konar samvinnu milli Landspítala og heilsugæslu – eða annarra heilbrigðisstofnana þar sem Heilsugátt er aðgengileg á öllu landinu. Auðveldari samskipti eru einn mikilvægasti þáttur þess að lágmarka endurtekningar á rann- sóknum og minnka „læknaráp" sem eins og flestir læknar kannast við eru tímafrek og kostnaðarsöm og valda óþarfa raski fyrir sjúklinga. Tilvísanir með erindum Í læknabréfum er stundum að finna beiðni eða ráðleggingar um sértæka eftirfylgd, til dæmis rannsókn eða skilmerki sem þarf að bregðast við. Sendandi er með þessu að færa ákveðið verkefni yfir á viðtakanda sem hefur lítið um það að segja, samráð er ekki til staðar. Samskiptin eru einhliða og móttakandi hefur takmarkaða möguleika til að svara með formlegum hætti. Ekki síst vegna þessa getur viðtakandi talið sig þurfa að lesa ítarlega öll bréf sem berast – til að missa ekki af atriðum sem gjarnan leynast í löngum texta og veldur það streitu og jafnvel gremju. Áherslur um eftirfylgd geta því auðveldlega misfarist og valdið skaða fyrir skjólstæðinginn. Ekki er tryggt að allir viðtakendur fái eða lesi sín læknabréf og gerir það illt verra að sendandi getur ekki fylgt eftir hvort beiðni hafi verið móttekin. Þetta samskiptaform er því stórkostlega gall- að og óáreiðanlegt og væri líklega ekki leyfilegt hvar sem öryggi er í fyrirrúmi eins og gildir um viðkvæm sjúklingamál. Svokölluð erindi í skilaboðakerfi eru formgerð skilaboð sem krefjast viðtöku móttakanda. Móttakandi getur staðfest erindi, hafnað eða áframsent, en um leið fær sendandi tilkynningu um afgreiðslu erindisins. Samskiptin eru því í „closed loop“ sniði sem tryggir örugga tilfærslu á ábyrgð og gerir samskiptin fullkom- lega rekjanleg. Þannig getur læknir Landspítala útskrifað sjúkling og valið um leið að óska eftir eftirfylgd með því að gera erindi í skilaboðum: Móttakandi getur við afgreiðslu erindis sent skilaboð til baka en þannig á sér stað samtal og samvinna um sjúkling í stað boðunar. Ef heimilislæknir telur sig ekki geta tekið við tilvísun getur hann hafnað erindinu og viðtakandi fær hana aftur á sitt borð. Telji læknir að annar kollegi sé betur til þess fallinn að taka við tilvís- uninni er hægt að áframsenda erindið en ef hann tekur við því sjálfur staðfestir hann móttöku. Í öllum tilvikum fær sendandi sjálfvirk skilaboð til baka og getur því auðveldlega fylgst með ferli tilvísunarinnar og verið öruggur um móttöku hennar. Sendandi getur líka fylgst með út- sendum erindum og stöðu þeirra. Lokaorð Hér hefur verið skoðað hvernig læknabréf íþyngja þjónustu- veitendum heilbrigðiskerfisins með falskri væntingu um öryggi og samfellu og skapa lítil verðmæti miðað við kostnað. Með Heilsugátt hafa opnast möguleikar sem væru öllum aðilum til hagsbóta en hafa ekki verið nýttir og gætu haft góð áhrif á flæði upplýsinga, samskipti milli stofnana og samfellu í þjónustu við sjúklinga en ekki síst draga úr sóun. Pistillinn byggir á eigin skoðunum höfundar. Þeir möguleikar sem hér eru kynntir eru eigin hugmyndir og til þess ætlaðar að vekja upp umræður. Myndir birtar með samþykki ÓTÞ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.